Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 35
FRÉTTIR 35Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
AFP
Lögreglan í Berlín, höfuðborg
Þýskalands, leysti í gær upp mót-
mæli þar sem um 5.000 manns
höfðu komið saman við Branden-
borgarhliðið til þess að mótmæla
hertum aðgerðum þýskra stjórn-
valda gegn kórónuveirunni.
Í tilkynningu lögreglunnar kom
fram að tvö hundruð mótmælendur
var ákveðið að beita piparúða og
vatnsbyssum til þess að dreifa
mannfjöldanum.
Þetta eru ekki einu mótmælin
sem hafa orðið í Evrópu undan-
farna daga vegna hertra sóttvarna-
aðgerða, en slík mótmæli hafa einn-
ig sést á Spáni, Ítalíu og Grikklandi
síðustu daga og vikur.
hefðu verið handteknir í kjölfarið.
Níu lögregluþjónar slösuðust í að-
gerðunum. Höfðu mótmælendur
fengið nokkrar viðvaranir um að
þeir þyrftu að setja upp andlits-
grímu en var því í engu sinnt. Lýsti
lögreglan þá mótmælin ólögleg.
Eftir að hluti mótmælenda hóf að
kasta öllu lauslegu í lögreglumenn
Óþreyjan að aukast mjög
Lögreglan leysti upp grímulaus mótmæli í Berlínarborg
Berlínarmótmæli Ung kona með kross en enga grímu leitar skjóls undan vatnsgusum Berlínarlögreglunnar.
Evrópuþingið lýsti því yfir í gær að
það myndi ekki gefa eftir í deilu sinni
við stjórnvöld í Ungverjalandi og
Póllandi, en þau hafa beitt neitunar-
valdi sínu á fjárlög Evrópusam-
bandsins og neyðarpakka vegna kór-
ónuveirunnar vegna ákvæða sem
tengja fjármagnið við „virðingu fyrir
réttarríkinu“.
Sagði í yfirlýsingu þingsins að
ekki yrði gengið lengra til þess að
friðþægja Ungverja og Pólverja, en
stjórnvöld í Slóveníu lýstu einnig yfir
stuðningi sínum við afstöðu ríkjanna
tveggja í gær.
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna munu funda í dag til þess að
ræða ýmis málefni sambandsins, þar
á meðal stöðu fríverslunarviðræðna
við Breta sem og hvernig hægt verði
að fá fjárlögin samþykkt.
Mateusz Morawiecki, forsætisráð-
herra Póllands, varði í gær ákvörðun
sína um að beita neitunarvaldinu, og
sagði að Evrópusamband þar sem
„evrópsk yfirstétt“ gæti kúgað veik-
ari aðildarríkin væri ekki í líkingu
við það ESB sem Pólverjar hefðu
gengið í á sínum tíma, og væri alls
ekki það samband sem þeir vildu
vera í. „Við segjum já við Evrópu-
sambandinu, en nei við að vera refs-
að eins og börn,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Sagði Morawiecki að með því að
tengja fjárlögin við stjórnmálalegt
ástand út frá stöðlum sem ákveðnir
væru í Brussel, væri sambandið
komið á vegferð sem gæti á endan-
um leitt til þess að það liðaðist í
sundur.
Leita „raunhæfra“ lausna
Clement Beaune, Evrópumálaráð-
herra Frakklands, sagði í gær að
sambandið væri að skoða allar
„raunhæfar“ lausnir til þess að
höggva á þann hnút sem kominn sé
upp, en bætti við að sambandið gæti,
ef allar aðrar lausnir væru fullreynd-
ar, reynt að láta fjárlögin ganga upp
án þátttöku ríkjanna þriggja.
Sagði Beaune að meðal þess sem
væri verið að skoða væri nánari út-
skýring á hugtakinu réttarríki og
hvernig það væri metið hvort aðild-
arríki sambandsins virtu það. Hins
vegar kæmi ekki til greina að draga
merkingu hugtaksins í efa.
„Evrópu getur ekki verið haldið í
gíslingu af nokkrum ríkisstjórnum
sem vilja ekki horfa fram á veginn og
virða ekki grunn stjórnmálaþróunar
okkar,“ sagði Beaune.
Evrópuþingið
gefur ekki eftir
Leggst gegn
mótbárum Ung-
verja og Pólverja
AFP
ESB Morawiecki segir reglurnar
ógna framtíð Evrópusambandsins.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
3
3
4
0
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 |www.hyundai.is
Spennandi
Hyundai i20.
Sýndu skynsemi.Veldu nýjan i20.
Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun
aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7” snertiskjár nýtir sér
fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu
ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára
verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
Heimsending
á reynsluakstri
Pantaðu tíma hjá okkur í síma 575 1200,
við komummeð bílinn, sótthreinan og fínan,
og sækjum hann svo aftur til þín.
Hyundai i20.Verð frá: 2.590.000 kr.