Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ StýrivextirSeðlabank-ans voru í gær lækkaðir um 0,25 prósentustig niður í 0,75% og hafa ekki verið lægri. Sú ástæða var gefin upp fyrir þessari lækkun að samkvæmt nóvemberspá séu horfur á meiri samdrætti á þessu ári en áður var talið og sömuleiðis séu horfur á að hagvöxtur verði minni á næsta ári en vonir hefðu staðið til. Stýrivextir verða ekki mikið lægri, en eins og Ásgeir Jóns- son seðlabankastjóri benti á þegar hann kynnti lækkunina eru stýrivextir víða í Evrópu komnir undir núllið. Tilgangurinn með því að lækka stýrivexti er að hleypa lífi í atvinnulífið með því að gera lánsfé ódýrara og ýta þannig undir athafnasemi. Ekki er þó gefið að lækkun stýrivaxta hafi tilætluð áhrif. Ingólfur Bender, aðalhagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins, bendir á það í grein í Við- skiptamogganum í gær að lang- tímavextir hafi verið að hækka hér á landi undanfarið og það sé alls ekki það sem hagkerfið þurfi á að halda í þessu árferði og gangi þvert á þau markmið að skapa öfluga viðspyrnu fyrir efnahagslífið. „Vextir hafa síðustu þrjá mánuði hækkað um nær eitt prósentustig, sem verður að teljast umtalsvert,“ skrif- ar Ingólfur. „Vaxtahækkunin á sér stað á sama tíma og fyrirtæki og heimili landsins eru að takast á við einn dýpsta og snarpasta sam- drátt í íslenskri efnahagssögu.“ Fróðlegt verður að sjá hvernig bankarnir bregðast nú við. Eflaust mun heyrast að meira þurfi til af hálfu Seðla- bankans. Hingað til hafa bankarnir ekki verið feimnir við að lækka innlánsvexti þegar stýrivextir hafa verið lækkaðir. Sparifjáreigendur hljóta að spyrja sig hvers vegna annað eigi að gilda um ávöxtun þess fjár, sem þeir lána bönkunum, en peninga, sem bankarnir lána öðrum, ekki síst í ljósi þess að tveir stóru bankanna þriggja eru nýbúnir að hækka vexti á húsnæðislánum. Fróðlegt verður að sjá hvernig bankarnir bregðast nú við. Ljóst er að styttist í bólu- efni við kórónuveirunni. Úti í heimi tóku markaðir við sér er það spurðist. Með slíkum tíð- indum dregur úr óvissu fjár- festinga og það verður tíma- bært að greiða fyrir því að hjól atvinnulífsins fari að snúast af krafti á ný. Það er ekki bara hagur efnahagslífsins heldur bankanna líka. Munu bankarnir skila lækkun stýri- vaxta áfram?} Örvun efnahagslífs Græddur ergeymdur eyr- ir sagði á blokkinni frá bankanum sem barnaskólarnir héldu utan um forðum. Börnin keyptu merki fyrir aura sem foreldrarnir tíndu flestir úr lúnu veski. Með fulla síðu var farið í bankann og beðið vaxta. Sá einn hafði eitt- hvað upp úr krafsinu sem fékk hagstætt lán hjá bankanum og borgaði með verðbrunnum krónum. Þótt átakið hafi verið gallað var það þó tákn um að ein- hverjir töldu sparnað vera dyggð. Og það er rétt og best- ur reynist hann þegar allir hafa nokkuð fyrir sinn snúð. Síðar náðu hlutlausir embætt- ismenn með lífsskoðun við ystu brún vinstrakantsins að stýra skattastefnu ríkisins allt of lengi og næsta óháð því hverjir sátu sem fjármálaráðherrar. En auðvitað varð samspilið mest og best þegar ráðherrann og embættismaðurinn voru jafnhlutlausir eins og í tíð þeirra Steingríms og Indriða. Tókst hlutleysingj- unum þá að hækka skatta 104 sinnum og hafa þeir verið að mestu blýfastir síðan. Þetta gleði- ríka og hlutlausa samband endaði unaðslega með því að kump- ánar enduðu báðir í framboði fyrir VG, sem undirstrikaði hversu óhlutdrægir báðir voru. Á Íslandi hefur tekist að tryggja að þegar vextir eru komnir niður í næstum ekkert þá heldur reglan að skatt- leggja skuli „verðbólgugróða“ sparenda, sem þýðir að á verð- tryggðum reikningum þar sem ávöxtun er næstum engin græðir ríkið með því að skatt- leggja verðbólguna. En eins og kunnugt er kemur sú aldrei til frádráttar hjá almenningi. Það mega íslensku stjórn- málaflokkarnir eiga að nánast enginn munur hefur reynst á þeim í slíkum efnum og þess vegna hefðu þeir Steingrímur getað dreift sér á aðra flokka sem hefði sjálfsagt verið sann- gjarnt og enginn tekið eftir neinu. Af hverju sameinast flokkarnir um að bregða fæti fyrir þá sem taka sparnað fram yfir bruðl?} Gufar upp geymdur aur Þ egar við heyrðum fyrst af nýju af- brigði kórónuveiru um eða rétt eft- ir síðustu áramót, sáum við líklega fæst fyrir okkur að í nóvember 2020 hefðu aðgerðir yfirvalda til að sporna við dreifingu veirunnar enn afgerandi áhrif á okkar daglega líf. Eftir því sem á líður heimsfaraldur upplifir almenningur sóttvarnaaðgerðir yfirvalda smám saman meira íþyngjandi og smám saman minnkar áhugi fólks á að fylgja sóttvarnaleið- beiningum. Þessu samfélagsástandi má lýsa með einu orði; farsóttarþreyta. Farsóttarþreyta getur einnig haft bein áhrif á líðan fólks og aðstæður, og getur til dæmis leitt til fjölþættra áhrifa á daglegt líf. Hreyfing minnkar, svefn verður óreglulegur, mataræði síðra, streita eykst og meiri hætta er á fé- lagslegri einangrun og einmanaleika. Áhrifin geta einnig falist í auknu ofbeldi, aukinni fátækt, auknu atvinnuleysi og auknum geðheilbrigðisvanda. Þessara áhrifa farsótt- arþreytunnar gætir víða hér á landi nú þegar, og Co- vid-19-faraldurinn er sökudólgurinn. Vísbendingar eru um að farsóttarþreyta færist í vöxt í Evrópu. Brýnt er að bregðast við þessu ástandi og vernda jafnframt þann árangur sem náðst hefur með sótt- varnaaðgerðum, um leið og við hlúum að bæði andlegri og líkamlegri heilsu almennings. Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin (WHO) hefur vakið máls á farsóttarþreytunni og skaðlegum afleiðingum hennar og lagt til að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að virkja almenning og hvetja til þátttöku í sótt- varnaaðgerðum á jákvæðan hátt. Einnig að stjórnvöld stuðli að gegnsæi í aðgerðum og sjái til þess að þær séu eins fyrirsjáanlegar og kostur er og að skiljanlegt sé hvaða röksemdir búi að baki þeim. Að mati WHO er einnig mik- ilvægt að fylgjast með líðan fólks á þessum for- dæmalausu tímum og byggja aðgerðir á gögn- um. Íslensk stjórnvöld og við í heilbrigðisráðu- neytinu erum sérstaklega meðvituð um þessi óbeinu áhrif Covid-19 á geðheilsu og líðan fólks. Líkt og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur haldið fram er áreiðanleg greining á stöðunni forsenda þess að við getum brugðist við þessum vanda. Heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknis hafa frá upphafi farald- ursins vaktað líðan almennings í nánu samráði við heil- brigðisstofnanir og notendur heilbrigðisþjónustu, ekki síst þau sem búa yfir eigin reynslu af geðheilbrigðisþjónustu. Nú á dögunum voru að tillögu landlæknis auk þess settir á laggirnar tveir stýrihópar; annars vegar hópur sem vaktar óbein áhrif Covid-19 á lýðheilsu og hins vegar hópur sem vaktar óbein áhrif Covid-19 á geðheilsu. Við þurfum að halda vöku okkar áfram og ég er viss um að vinna stýrihópanna mun nýtast vel í okkar flóknu bar- áttu við veiruna og bein og óbein áhrif hennar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Farsóttarþreyta Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Líflegt hefur verið á fisk-mörkuðum það sem af erári og salan 6,5% meirifyrstu tíu mánuðina held- ur en á sama tíma í fyrra. Salan nam rétt tæplega 100 þúsund tonn- um og aðeins 2016 og 1996 fór sal- an yfir 100 þúsund tonn á tíu mán- aða tímabili, síðarnefnda árið var talsvert selt af loðnu á mörkuð- unum. Alls skipti fiskur um eigendur á mörkuðunum fyrir 26,5 milljarða fyrstu tíu mánuði ársins og er það hærri upphæð en nokkru sinni áð- ur, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu, en þar er miðað við verðlag hvers árs. Búið er að selja fyrir 2,3 milljörðum meira í ár heldur en í fyrra og sex milljörðum meira heldur en 2018. Aldrei hefur meira verið selt af þorski á mörkuðunum heldur en það sem af er ári. Alls höfðu rúm- lega 44 þúsund tonn verið seld þeg- ar tveir mánuðir voru eftir af árinu. Þorskur hafði verið seldur fyrir tæpa 14,6 milljarða og með- alverðið verið hærra en í fyrra. Undanfarið hafa fengist um og yfir 400 krónur fyrir kílóið af óslægðum þorski að meðaltali og suma daga í september fór það vel yfir 500 krónur. Nokkrar skýringar geta verið á framboði á fiskmörkuðum í ár. Aflaheimildir í þorski hafa verið drjúgar í ár, þó svo að þær hafi minnkað nokkuð á nýbyrjuðu fisk- veiðiári frá árunum á undan. Mikið framboð var á þorski í sumar og á gott ár á strandveiðum frá maí til ágústloka þar eflaust hlut að máli, en megnið af þeim afla fer í sölu á mörkuðunum. Þannig voru júní og júlí þeir stærstu frá upphafi og ágúst, september og október með þeim stærstu. Margt getur haft áhrif Margt getur haft áhrif á sölu og framboð á fiskmörkuðum og hugsanlega hefur kórónuveiki- faraldurinn breytt vinnslu hjá ein- hverjum fyrirtækjanna í ljósi mark- aðsaðstæðna og leitt til þess að heldur meira hefur farið á mark- aðina. Tímabundnar breytingar geta síðan leitt til meiri sölu á mörkuðum, ótengt faraldrinum. Eyjólfur Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Reiknistofu fisk- markaðanna, áætlaði að sala ársins yrði um 105 þúsund tonn, en segir að niðurstaðan verði nær 110 þús- und tonnum. Byggt á tölfræðiút- reikningum reiknar hann með að salan á næsta ári verði um 108 þús- und tonn. Hann segist oft heyra úrtölu- raddir og spár um slæm ár á fisk- mörkuðum, en staðreyndin sé sú að salan síðustu ár hafi verið nokkuð stöðug, yfir 100 þúsund tonn á ári, og þróunin hafi verið upp á við. Þriðja mesta sala frá upphafi fiskmarkaða Magn og verðmæti afl a á fi skmörkuðunum í jan.-okt. 2001-2020 100 80 60 40 20 0 Þús. tonn 30 24 18 12 6 0 Heildarafl i á markaði (þús. tonn) Þar af þorskur Heildarverðmæti afl a (ma.kr.) ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 ’20 Heimild: Reiknistofa fi skmarkaða 86 39 77 33 79 31 85 32 88 33 93 29 86 25 80 21 90 29 83 28 79 89 97 91 91 101 92 98 94 100 M illj ar ða r k r. 27 34 40 38 37 43 43 42 36 44 12,6 13,7 9,6 25,1 26,5 18,2 Reiknistofa fiskmarkaða er reiknistofa/tölvuþjónusta fyrir íslensku fiskmarkaðina og teng- ir 11 fiskmarkaði á 45 stöðum í eitt uppboðsnet og heldur fisk- uppboð þar sem 200-300 kaup- endur kaupa fisk í fjarskiptum. RSF heldur einnig utan um pen- ingaflæðið á milli útgerða, kaupenda, fiskmarkaða og hins opinbera. Reiknistofan er hlutafélag í eigu þriggja fiskmarkaða, en það eru Fiskmarkaður Suður- nesja, Fismarkaður Íslands og Fiskmarkaður Vestmannaeyja. Auk uppboða á fiski starfrækja markaðirnir víða slægingar- þjónustu, sjá um löndun og ýmsa aðra þjónustu við bátana. 11 markaðir á 45 stöðum STARFA UM ALLT LAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.