Morgunblaðið - 19.11.2020, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Tjörn Ýmsir gengu út á frosna Reykjavíkurtjörn í fallegu sólsetri í gær.
Kristinn Magnússon
António Guterres,
aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, segir að
aldrei fyrr í sögunni
hafi orðið eins mikil
truflun á menntun og
nú í heimsfaraldrinum.
Skólum var lokað í
meira en 160 löndum
með áhrifum á um
milljarð nemenda.
Þetta hefur haft mikil
áhrif, bæði bein og óbein, á ein-
staklinga, fjölskyldur og samfélög
sem verða fyrir félagslegum og efna-
hagslegum kostnaði. Áhrif og áskor-
anir eru misjöfn en eins og margt
sem tengist þessari veiru, þá hittir
hún þá sem standa höllum fæti verr
fyrir, hvort heldur einstaklinga eða
samfélög.
Heimsfaraldur Covid-19
UNESCO hefur útlistað áhrif af
lokun skóla á ýmsa þætti sem hafa
bein og óbein áhrif á lýðheilsu. Þar
má nefna röskun á námi, félagslega
einangrun og áhrif á geðheilsu, auk-
ið brotthvarf, verri næringu, aukna
hættu á útsetningu fyrir ofbeldi,
misnotkun og vanrækslu ásamt
áhættuhegðun. Þá er faraldurinn
mikil áskorun fyrir kennara, for-
eldra og virkni samfélagsins, t.d.
hafa heilbrigðisstarfs-
menn sem eiga börn átt
erfiðara með að mæta
til vinnu þegar skóla-
starf er takmarkað.
Hérlendis hefur orðið
minni röskun á skóla-
starfi en í mörgum öðr-
um löndum og ber að
þakka yfirvöldum,
skólastjórnendum og
kennurum sem hafa
staðið sig frábærlega
við krefjandi aðstæður.
Á tímum farsóttar
leggja Sameinuðu þjóðirnar áherslu
á að skólar haldist opnir, að for-
gangsraða fé til menntunar, að ná til
jaðarsettra hópa og að leita nýrra
leiða til að veita og efla menntun til
framtíðar.
Mikilvægi menntunar
Menntun og skólastarf skiptir
miklu fyrir lýðheilsu. Grunnþekking
og færni, þar með talin rökhugsun,
félags- og tilfinningafærni, eru allt
mikilvægir þættir fyrir heilsuna. Þar
að auki er menntun grundvöllur fyr-
ir heilsulæsi, þ.e. að geta aflað og
unnið úr upplýsingum um þá þætti
sem hafa áhrif á heilsu; hvernig má
bæta hana, koma í veg fyrir sjúk-
dóma og greina réttmæti upplýs-
inga. Þá er fræðsla til verðandi for-
eldra lykill að góðu lífi barna en
grunnur að heilsu er lagður þegar í
móðurkviði. Loks er ótalið gildi
menntunar er kemur að því að afla
sér lífsviðurværis. Gildi menntunar
fyrir einstaklinginn er þannig mikið.
Menntun er einnig eitt það mik-
ilvægasta fyrir samfélag og fram-
þróun þess. Fyrir utan þýðingu
þekkingar þá auðgar menntun
menningu, gildi, þrótt þjóðar og
efnahag. Menntun stuðlar að jöfnuði
sem er einn af áhrifaþáttum heilsu.
Menntun eykur þannig bæði efna-
hagslega og félagslega velsæld.
Mikilvægi skólagöngu
Fyrir utan bein áhrif á menntun
er skólagangan sjálf þýðingarmikil.
Skólaumhverfið er næst á eftir
heimili barna mikilvægasta um-
hverfi þeirra. Fræðsluskylda á Ís-
landi er til 18 ára aldurs og gegna
leik-, grunn- og framhaldsskólar
mikilvægu uppeldis- og félagsmót-
unarhlutverki sem verður að standa
vörð um í gegnum þennan heims-
faraldur. Með skólastarfi getum við
tryggt einhvern stöðugleika við
krefjandi aðstæður þar sem daglegu
lífi er viðhaldið og er að einhverju
leyti fyrirsjáanlegt.
Í skólum gefst einstakt tækifæri
til að jafna stöðu nemenda og skapa
aðstæður sem efla andlega og líkam-
lega heilsu og bæta félagslega líðan
allra barna og ungmenna. Þar fer
fram stór hluti af félagsmótun nem-
enda, vinna við að efla sjálfsmynd og
rækta góð samskipti við aðra. Skólar
skapa börnum og ungmennum að-
stæður til heilbrigðra lifnaðarhátta
með því að efla færni þeirra í sam-
skiptum, byggja upp sjálfsmynd
þeirra, færni í að taka ákvarðanir,
setja sér markmið og hafa stjórn á
streitu. Þar er lögð rík áhersla á já-
kvæðan skólabrag og að heilsuefl-
andi áherslur skóla nái yfir holla
næringu, hreyfingu, hvíld, fræðslu
um svefn, hreinlæti, öryggi, seiglu
og kynheilbrigði.
Áskoranir á tímum farsóttar
Mikilvægt er að hafa í huga þær
áskoranir sem skólasamfélagið
stendur frammi fyrir. Mikil endur-
skipulagning hefur átt sér stað á
námi og kennslu í skólum landsins
og skiptir máli að fólk og stofnanir
fái þann stuðning sem þarf til þess
að leysa úr þeim áskorunum sem
þau standa frammi fyrir. Viðbragðs-
áætlanir eru nú sem fyrr mikilvægar
til að tryggja samfellu í skólastarfi
og standa vörð um áætlanir sem
þegar eru til staðar er varða barna-
verndarmál, eineltismál og fleira.
Þegar öllu er á botninn hvolft
kemur ekkert í staðinn fyrir stað-
nám barna og unglinga hvort sem er
í leik-, grunn- eða framhaldsskólum.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að
skólastarf barna í leik- og grunn-
skólum raskist sem minnst en ekki
má gleyma að nemendur í fram-
haldsskólum eru líka börn sem sam-
félaginu ber að standa vörð um. Því
þarf að forgangsraða menntun og
staðnámi barna og ungmenna á öll-
um þessum skólastigum. Liður í því
er að veita stuðning inn í skólakerfið
hvort sem snýr að búnaði, húsnæði,
þrifum, umhverfisaðstæðum eða
mannauði með það fyrir augum að
sem minnst röskun verði á skóla-
starfi miðað við opinberar sóttvarnir
á hverjum tíma. Lokunum skóla ætti
ekki að beita nema sem allra síðasta
úrræði. Til þess að forðast það þurfa
allir að hjálpast að; yfirvöld, skóla-
stjórnendur, kennarar, foreldrar og
við öll. Við erum jú öll almannavarn-
ir.
Eftir Ölmu D.
Möller » Lokunum skóla
ætti ekki að beita
nema sem allra síðasta
úrræði. Til þess að
forðast það þurfa allir
að hjálpast að; yfirvöld,
skólastjórnendur,
kennarar, foreldrar
og við öll. Við erum
jú öll almannavarnir.Alma D. Möller
Höfundur er landlæknir.
Lýðheilsa – mikilvægi menntunar og skólagöngu
Í dag eru 250 ár liðin
frá fæðingu Bertels
Thorvaldsens mynd-
höggvara og sann-
arlega við hæfi að
fagna þessum tíma-
mótum. Bertel Thor-
valdsen lifir enn í
minningu margra,
enda var hann stór-
kostlegur listamaður
sem naut meiri frægð-
ar um víða veröld en flestir aðrir af
íslensku bergi brotnir. Ferill hans
var einstakur og vert er að minnast
hans.
Ættaður úr Skagafirði
Móðir Bertels, Karen Dagnes, var
frá Jótlandi og faðir hans, Íslending-
urinn Gottskálk Þorvaldsson, var
fæddur að Reynistað í Skagafirði.
Dr. Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður og síðar forseti Íslands, benti
á, að listhneigðar hafi mjög gætt hjá
ættmennum Gottskálks. Er þar
meðal annarra nefndur til sögu Guð-
brandur Þorláksson, biskup á Hól-
um, sem móðir Gottskálks, Guðrún
Ásgrímsdóttir, föðuramma Bertels,
var komin af. En Guðbrandur biskup
tók sjálfur þátt í að myndskreyta
Biblíuna sem hann gaf út árið 1584,
þá fyrstu á íslensku.
Mótandi íslensk áhrif
Margt skýtur þannig stoðum und-
ir, að listræn æð Bertels sé runnin
frá hinum íslensku ættmennum
hans. Umskiptin sem orðið hafa frá
fyrri tíð eru mikil. Saga Gottskálks
leiðir hugann að aðstæðum í þjóð-
félagi okkar á hans tíma, 18. öldinni.
Til að hljóta háskólamenntun,
stunda listnám eða öðlast iðn-
menntun var þá vænlegast, oft eini
kosturinn, að leita til Kaup-
mannahafnar. Gottskálk var ekki
nema 16 ára, þegar hann fór þangað
að læra tréskurð árið 1757. Með
sama skipi fóru út tvö eldri systkini
hans, Ari til að læra silfursmíði, og
systir þeirra Ólöf, sem sneri fljótlega
heim aftur. Svo mikla áherslu lagði
séra Þorvaldur á velferð barna
sinna, að hann sendi þau öll til Kaup-
mannahafnar til að mennta sig. Gekk
hann mjög nærri sér
fjárhagslega til að
þetta mætti verða. Sú
áhersla, þær fórnir,
sem séra Þorvaldur
færði til þess að búa
börn sín sem best und-
ir lífið með staðgóðri
menntun, minna okkur
á að hlúa vel að mennt-
un þeirrar uppvaxandi
kynslóðar sem okkur
er trúað fyrir. List-
irnar sem auðga svo
ríkulega mannlífið og
vekja sífellt með ungum og eldri
gleði, verðum við einnig að hafa í há-
vegum.
Menntavegurinn: Iðnnámið
lagði grunninn
Vitað er að myndlist kynntist Ber-
tel fyrst í gegnum föður sinn. Sú
snilld sem hann sýndi í teikningu
fleytti honum aðeins 11 ára gömlum
inn í Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn. Þar var honum veitt sú
staðgóða undirstöðumenntun í list-
inni sem leiddi hann til Rómar, mið-
stöðvar lista- og menningar á hans
tíð. Það voru æðstu verðlaun Lista-
akademíunnar í Kaupmannahöfn,
gullmedalían, sem gerði Albert
Thorvaldsen kleift að komast til
Rómar. Eftir 6 lærdómsrík ár í Róm
hillti undir að hann þyrfti að hverfa
heim aftur. Þar voru menn aftur á
móti sammála um að hans biði fátt
annað en að höggva legsteina. Þá
gerðist kraftaverkið, honum auðn-
aðist að ljúka við og slá í gegn með
listaverkinu „Jason með gullreyfið“.
Framtíð hans á vængjum högg-
myndalistarinnar var tryggð. Dvöl
Thorvaldsens í Róm stóð í 40 ár.
Hann rak stórar vinnustofur með
tugum listamanna og listnema sem
vildu njóta leiðsagnar hans. Lista-
verk hans dreifðust út um álfuna og
vestur um haf – og vöktu hvarvetna
aðdáun.
Listaafrek Bertels
Þegar í vændum var að sigursæll
Napóleon kæmi til Rómar var Thor-
valdsen falið að skreyta Quirinale-
höllina, sem átti að verða aðsetur
keisarans. Bjó hann til á undra-
skömmum tíma lágmyndina Innreið
Alexanders í Babylon, sem margir
hafa talið taka öllum lágmyndum
fram. Eitt skýrasta merkið um stöðu
Thorvaldsens í heimi höggmynda-
listarinnar var að Vatíkanið fól hon-
um, þótt hann væri Lútherstrúar, að
gera veglegt minnismerki um Píus
páfa 7. til að setja upp í Péturskirkj-
unni. Mörg þekktustu verka Thor-
valdsens eru tengd trú og kirkju.
Skírnarfonturinn í Dómkirkju
Reykjavíkur er eitt þeirra og kom til
Íslands 1839. Hann sýnir á framhlið
Jóhannes skíra Jesú í ánni Jórdan; á
vinstri hlið Maríu með þá Jesú og Jó-
hannes á unga aldri; á hægri hlið er
Jesú að blessa börnin; og á bakhlið
eru þrír englar yfir tileinkun Thor-
valdsens til „ættarlandsins Íslands“
höggvinni í marmarann.
Þegar horft er á hin heillandi verk
Thorvaldsens kallar það fram í hug-
ann, hve sá boðskapur sem þeir
fluttu hefur öldum saman haft mik-
ilvæg jákvæð áhrif í íslensku þjóðlífi.
Ekki síst þegar á móti hefur blásið.
Örvað kærleika, þolgæði, sanngirni,
heiðarleika, umburðarlyndi og trú-
festi, svo nokkuð sé nefnt. Öll eru hin
kristnu gildi til þess fallin að bæta
samskipti okkar mannfólksins. Þau
fela í sér eiginleika sem við þurfum á
að halda, til að geta notið lífsins vel.
Gleðjumst nú öll – í aðdraganda
250 ára afmælis myndhöggvarans
Alberts Thorvaldsens – yfir því að
hafa átt, ásamt Dönum, svo frábær-
an listamann. Við gleðjumst yfir því
sem hann áorkaði og yfir þeirri
ræktarsemi sem hann sýndi Íslandi.
Og ekki þykir okkur minna til hans
koma fyrir það sem sagt er, að hann
hafi aldrei ofmetnast og umgengist
alla jafnt. Ræktarsemi Thorvaldsens
verður seint fullþökkuð.
250 ára fæðingarafmæli Bertels
Thorvaldsens myndhöggvara
Eftir Lilju Dögg
Alfreðsdóttur » Bertel Thorvaldsen
lifir enn í minningu
margra, enda var hann
stórkostlegur listamað-
ur sem naut meiri
frægðar um víða veröld
en flestir aðrir af ís-
lensku bergi brotnir.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.