Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 19.11.2020, Síða 45
langa samveru í leik og starfi. Við sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Anna Sigríður Indriðadóttir. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Í dag verður Ingibjörg vin- kona okkar lögð til hinstu hvílu og langar okkur að minnast hennar í fáeinum orðum. Ingibjörg átti góða bernsku, umvafin ástkærum foreldrum og systkinum. Við kynntumst henni í Goðheimunum, en Ingibjörg flutti síðust okkar vinkvennanna í götuna, þar sem við ólumst upp. Hún var systir Eyþórs, sem var einn besti vinur Ólafs bróður Guðrúnar. Því var mikill sam- gangur milli heimila okkar. Við fengum fyrst að smakka kaffi og ristað brauð með osti og sultu heima hjá Ingibjörgu og á laug- ardögum var boðið upp á skúffu- köku og kryddbrauð heima hjá Guðrúnu. Þær Ingibjörg og Guð- rún voru bekkjarsystur í Voga- skóla og sátu saman í unglinga- deildinni og í byrjun menntaskólans. Við upplifðum saman ung- lingsárin og gerðum margt skemmtilegt. Við vinkonurnar minnumst hennar með ferðút- varp á öxlinni gangandi eftir Goð- heimunum rétt eftir ferminguna, það var flottasta fermingargjöfin á þeim tíma. Ingibjörg var glæsi- leg, skemmtileg og vinsæl. Eftir annan bekk í MT fór Ingibjörg frá okkur og í Húsmæðraskólann á Laugarvatni og þaðan í hjúkr- unarfræði. Vinskapurinn hélst alla tíð þótt við æskuvinkonurnar færum síðar ólíkar leiðir í lífinu. Við hittumst reglulega gegnum árin og sögðum frægðarsögur af systkinum, börnum og barna- börnum. Anna bjó á Englandi og þegar hún kom í heimsókn var oft hittingur, þar sem við áttum góð- ar stundir saman. Við hlökkuðum allar til eftirlaunaáranna því við ætluðum að hittast oftar, spila brids, ræða um bókmenntir og listir og fara í gönguferðir. En líf- ið er eins og hafið, það gefur og það tekur. Við vottum fjölskyldu Ingi- bjargar okkar dýpstu samúð. Við þökkum þér Ingibjörg fyr- ir allar skemmtilegu samveru- stundirnar. Hvíldu í friði kæra vinkona. Anna Sverrisdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Elsku Ingibjörg, hliðaramma mín, amma gullmolanna okkar, var tekin of fljótt frá okkur, óvænt fráfall er alltaf erfitt fyrir alla aðstandendur. Amma Ingi-Ingibjörg eins og yngsta skottan kallaði hana sá ekki sólina fyrir henni og alltaf var tími fyrir lestur og leik og börnin öll sem eitt fengu óskerta athygli frá henni. Amma hefði fært fjöll fyrir þau ef það stæði í hennar valdi og mikil tilhlökkun var hjá henni að enn myndi bæt- ast í hópinn hennar í mars nk. Elsku Baldur minn og Sóldís, minning hennar lifir í hjarta okk- ar og ég veit að hún mun fylgjast vel með og jafnvel hnippa í okkur ef við stöndum okkur ekki, þar kemur inn hjúkrunin og um- hyggjan sem hún hafði fyrir öll- um í kringum sig. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar og stórfjöl- skyldunnar, höldum vel hvert ut- an um annað. Ástarkveðjur, Valgerður Hjördís Rúnarsdóttir, amma og hliðaramma.  Fleiri minningargreinar um Ingibjörgu Björgvins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 ✝ Kristján ÞórÞórisson fædd- ist í Reykholti í Borgarfirði 28. janúar 1932. Hann lést á Landspít- alanum 9. nóv- ember 2020. For- eldrar hans voru hjónin Þuríður Friðbjarnardóttir húsfreyja, f. 18. sept. 1900 á Grímsstöðum í Mývatnssveit, d. 11. febr. 1932 í Reykholti, og Þórir Steinþórsson, bóndi í Álftagerði við Mývatn, síðar skólastjóri og bóndi í Reyk- holti, f. 7. maí 1895 á Gaut- löndum í Mývatnssveit, d. 5. júní 1972 í Reykholti. Seinni kona Þóris og stjúpmóðir Kristjáns var Laufey Þórmund- ardóttir frá Bæ í Bæjarsveit, f. 4. des. 1908, d. 11. des. 1999. Systkini Kristjáns eru Jón, f. 22. sept. 1920, d. 5. des. 2001, Steingrímur, f. 15. júlí 1923, d. 16. sept. 2002, og Steinþóra Sigríður, f. 3. apríl 1926, d. 8. des. 2013. Systur Kristjáns, samfeðra, eru Sigrún, f. 19. des. 1936, d. 17. júní 2017, og Þóra f. 8. febr. 1944. Kristján ólst upp á mann- mörgu heimili í Héraðsskól- Guðjón Þór Guðmundsson, barn: Þórir, f. 1991. 2) Þor- gerður, f. 27. jan. 1956, í sam- búð með Sigurði St. Jörunds- syni. Maki I: Ragnar Hilmir Ragnarsson, d. 2020 (skildu), barn: Anna Katrín, f. 1979. Maki II: Þórhallur Eiríksson (skildu), barn: Auður Karítas, f. 1985. 3) Kristín Þóra, f. 28. mars 1957, maki: Rolf Sörby (skildu), börn: Sólveig, f. 1978, og Davíð, f. 1979. Barnsfaðir: Georg Ólafur Gunnarsson, d. 2016, barn: Katrín Ólöf, f. 1995. Þau Kristján og Auður skildu. Kristján kvæntist 17. des. 1960 seinni konu sinni, Aðalheiði Helgadóttur kenn- ara, f. 10. maí 1939, d. 28. maí 2003. Foreldrar hennar voru Sigríður Sigurðardóttir og Helgi Guðjón Guðmundsson. Barn Kristjáns og Aðalheiðar: 4) Steinþór, f. 7. júlí 1961, d. 23. maí 2015, börn: Aðalheiður Rósa, f. 1978, móðir hennar er Helga Ester Snorradóttir, Guð- rún Tinna, f. 1987, og Kristján, f. 1992, d. 2018, móðir þeirra er Dagbjört Þórunn Þráins- dóttir. Barnsmóðir: Erla Hann- esdóttir, f. 14. febr. 1935. For- eldrar hennar voru Hannes Hannesson og Sigríður Jóns- dóttir. Barn Kristjáns og Erlu: 5) Sif, f. 7. ágúst 1961, gift Trausta Þór Ósvaldssyni, börn: Svanhildur Erla, f. 1995 og Ós- vald Jarl, f. 1995. Útför Kristjáns fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 19. nóv- ember 2020. anum í Reykholti. Hann stundaði nám við Reykholts- skóla, útskrifaðist frá Samvinnu- skólanum í Reykja- vík árið 1950. Starfaði síðan hjá Landsbanka Ís- lands, Heildverslun Eggerts Kristjáns- sonar og Pósti og síma. Hann rak einnig eigin bókhaldsskrifstofu í Reykjavík. Frá 1979 var hann skrifstofustjóri hjá Sakadómi Reykjavíkur til ársins 1994. Á yngri árum stundaði hann ýmsar íþróttir af kappi og varð m.a. Íslandsmeistari í bringusundi. Einnig spilaði hann fótbolta með Þrótti. Kristján var búsettur í Reykja- vík eftir að hann lauk námi, en síðustu 4 árin bjó hann á Skjóli. Kristján kvæntist 30. júní 1956 fyrri konu sinni, Auði Steinþórsdóttur, f. 24. ágúst 1938. Foreldrar hennar voru Steinþór Ásgeirsson og Þor- gerður Þórarinsdóttir. Börn Kristjáns og Auðar: 1) Anna Þuríður, f. 16. júní 1954, maki: Jaime Tebé Morera (skildu), barn: Íris, f. 1977. Barnsfaðir: Góður vinur og föðurbróðir Þurýjar minnar synti síðasta sprett þessa lífs hinn 9. nóv- ember sl. – hafði verið ræstur til brottferðarinnar nokkru fyrr, en aðdragandinn talsvert lengri. Í heimsóknum til hans, í Lönguhlíð og Skjól, var samt gamli góði Diddi ekki svipur hjá sjón. Óminnisgyðjan búin að vefja hann örmum fyrir allmörgum árum, en framhjá henni unnt að ganga með því að ræða um löngu liðna tíð, m.a. árin hans góðu í Reykholti. Þar ólst hann upp með kapp- sömum systkinum sínum, svo mjög að borgfirskir áhorfendur íþróttamóta sáu raungerast í Reykholtsbræðrum, Jóni, Steingrími tengdapabba og Kristjáni, hendinguna þekktu úr Völuspá „bræður munu berj- ast“. Það var víst meira en dálítið leiðinlegt hjá þessum strákum að tapa. Ég geri þó ráð fyrir að á fyrsta íþróttamótinu, sem ég sé að Kristján var meðal kepp- enda, 10 ára gamall sumarið 1942, hafi allt farið fram með ró og spekt, 50 metra sundi drengja með frjálsri aðferð. Góður kunningi minn síðar, Reykhyltingurinn Birgir Þor- gilsson (14 ára) sigraði, Steini tengdapabbi (18 ára) varð ann- ar, og Diddi þriðji. Allir áttu þessir kappar eftir að setjast á skólabekk hjá Jónasi frá Hriflu í Samvinnuskólanum, en ég held að tveimur áratugum síðar eða svo hefðu þeir Birgir og Steini ekki náð gulli úr sund- fimum greipum sundkappans Kristjáns Þórissonar. Því miður hef ég ekki nákvæmar upplýs- ingar um glæstan sundferil hans, og verð því að stikla á stóru. Á sundmóti Ægis árið 1946 vann hann, þá keppandi Skóla- félags Reykhyltinga, 100 m bringusund drengja, vann sömu grein á Sundmeistaramóti Ís- lands árið eftir, og árið 1950 sigraði hann í 400 m bringu- sundi karla á Sundmeistara- móti Íslands í Hveragerði, og keppti þá fyrir Ungmennafélag Reykdæla. Skemmtileg tilviljun að í beinu framhaldi í frétt Vísis af sigri hans á mótinu stendur að í 50 m bringusundi telpna hafi Auður Steinþórsdóttir úr KR borið sigur úr býtum. Ekki hef ég hugmynd um það, en e.t.v. skutust þarna í Hveragerði ein- hverjar amorsörvar, en hitt veit ég að fjórum árum síðar kvænt- ist Kristján vinur minn ungri stúlku sem heitir einmitt Auður Steinþórsdóttir. En aðeins meira um sundfer- ilinn. Á Íslandsmeistaramóti 1952 vann Kristján gullverð- laun í 200 m bringusundi karla, bætti árangur sinn í sömu grein með sigri á sundmóti Ár- manns sama ár, og árið 1954 vann hann 200 metrana á af- mælismóti Ármanns, og vann þá í annað sinn verðlaunabikar, gefinn í minningu Kristjáns Þorgrímssonar. Árið 1954 setti hann nýtt Ís- landsmet í 500 m bringusundi. Afrekaskrá þessi gæti verið mun lengri, en auk fjölmargra sundkeppna um árabil stóð hann í marki Þróttar á Reykja- víkurmóti í knattspyrnu 1953, og þjálfaði KR-inga í sund- knattleik árið 1960. En eins vil ég geta, sem okk- ur Borgfirðingum þótti vænt um, að lengst af, og kannski alla tíð, keppti Kristján undir nafni Ungmennafélags Reyk- dæla. Eftir að Diddi kvæntist seinni konu sinni, henni Allý, og við Þurý byrjuðum að vera saman tókst með okkur öllum einlæg vinátta. Þær voru vinkonur áður, og við Diddi smullum vel saman. Gagnkvæmar heimsóknir fastur liður í tilverunni, margt sér til gamans gert og í ýmsu pælt. Minnumst við margra gleði- stunda í áranna rás, og söknum mjög þessara góðu vina. Við Þurý sendum dætrum Didda, fjölskyldum þeirra og öðrum aðstandendum einlægar samhryggðarkveðjur og minn- umst heiðursmannsins Krist- jáns Þórs Þórissonar með virð- ingu og þökk, manns sem hvar- vetna var tekið eftir vegna fágaðrar framkomu og glæsi- leika. Óli H. Þórðarson. Kristján Þór Þórisson Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PETREA AÐALHEIÐUR GÍSLADÓTTIR frá Hóli, Ólafsfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku fimmtudaginn 12. nóvember. Anna Linda Aðalgeirsdóttir Grétar Leifsson Hildur Bryndís Aðalgeirsd. Erla Aðalgeirsdóttir Jóhann Freyr Pálsson Vignir Aðalgeirsson Jónína Símonardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, ÞORMAR VIGNIR GUNNARSSON húsasmiður / ljósmyndari, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. nóvember. Helena Benjamínsdóttir Sólrún Líf Guðrún Von Telma Rut Mikael Bjarki Gunnar Þórisson Vilborg Þorgeirsdóttir Þórir Gunnarsson Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR J.N. INGÓLFSSON málarameistari, Fornastekk 3, Reykjavík, sem lést 10. nóvember, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 23. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. Útförinni verður streymt á vefslóðinni: www.sonik.is/sigurdur, einnig er hægt að nálgast útsendingu á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellow. Þorsteinn V. Sigurðsson Hrefna G. Magnúsdóttir Ingólfur Sigurðsson Sigríður Þóra Þorsteinsdóttir Pétur Þór Guðjónsson Fanney Rut Þorsteinsdóttir Bjarki Heiðar Sveinsson Rakel Ósk Jóelsdóttir Jónas Birgir Jónasson Magnús Hlífar Jóelsson Kristín Nordal Ingólfsdóttir Fredrik Ingólfsson Kristófer, Sunneva, Pétur, Tristan, Eva, Natalía, Logi, Viktoría og Lovísa Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ESTER HJALTALÍN, Heiðarbrún 43, Hveragerði, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 2. nóvember. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 20. nóvember klukkan 14 að viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá athöfninni á slóð www.ebkerfi.is/streymi Dagbjartur Tómasson Ólafur Róbert Dagbjartsson Jónína Jónsdóttir Sandra Dís Dagbjartsdóttir Ásgeir Einarsson Bjarni Dagur Dagbjartsson Birna Björt Eyjólfsdóttir Þorlákur Máni Dagbjartsson Elva Rún Erlingsdóttir Jón Logi Dagbjartsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, STEINÞÓRA JÓHANNESDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík 10. nóvember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Streymi frá jarðarförinni verður aðgengilegt samdægurs á mbl.is/andlat á slóðinni https://youtu.be/VsAx3EQka Erla Gunnarsdóttir Petrína Ólafsdóttir Finnur Guðmundsson Jón Steinar Ólafsson Praiya Kanisarn Salómon Þórarinsson Jóna Björg Kristinsdóttir Sigurlaug Þórarinsdóttir Leifur Þór Ingólfsson Jóhannes B. Þórarinsson Sigríður Elín Júlíusdóttir Sigrún Guðný Jóhannesdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.