Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 47
MINNINGAR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
✝ Jónína Guð-mundsdóttir
fæddist 6. júlí 1929
á Núpum í Ölfusi.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands 10. nóv-
ember 2020.
Foreldrar hennar
voru Markúsína
Jónsdóttir, f. 19.
mars 1900, d. 8. des-
ember 1994, og
Guðmundur Steindórsson, f. 18.
apríl 1906, d. 2. febrúar 1965.
Systkini Jónínu voru María, f.
1931, d. 1974, Steindór f. 1933, d.
2010, og Guðrún, f. 1935, d. 2007.
Jónína giftist annan í jólum
1953 Guðmundi Hjartarsyni, f.
20. febrúar 1925, d. 19. maí 2006,
frá Auðsholtshjáleigu í Ölfusi.
Börn þeirra eru: 1) Markús, f.
1953, d. 1954. 2) Sigþrúður, f.
1954, d. 1955. 3) Jóhann, f. 1957,
d. 1959. 4) Sigrún, f. 1960, gift
Jóni Halldóri Gunnarssyni, son-
ur Sveinungi, f. andvana 2004,
þau eru búsett í Hafnarfirði. 5)
Jóhanna, f. 1963, gift Ölveri
hefðbundna skólagöngu þess
tíma í Hveragerði. Eftir að
skólagöngu hennar lauk um
fermingu vann hún á æskuheim-
ili sínu vegna veikinda föður
síns. Ung að árum gegndi hún
ýmsum störfum utan heimilisins,
þar á meðal í mötuneyti og í slát-
urhúsi á Selfossi. Jónína og Guð-
mundur hófu búskap á Egils-
stöðum 1952 með foreldrum
Jónínu og bjuggu þar til ársins
1956 en það ár keyptu þau jörð-
ina Grænhól í Ölfusi. Þar bjuggu
þau og stunduðu blandaðan bú-
skap, byggðu upp húsakost og
ræktuðu landið til ársins 2001 er
þau brugðu búi og fluttu á Sel-
foss.
Jónína tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi í sínu nærumhverfi og
ber þá helst að nefna kvenfélagið
Bergþóru í Ölfusi og prjóna-
klúbb Rauða krossins eftir að
hún flutti á Selfoss. Jónína bjó á
heimili sínu fram á síðasta dag
en síðastliðin tvö ár sótti hún
dagdvöl í Árbliki á Selfossi.
Jónína verður jarðsungin frá
Kotstrandarkirkju í dag,
fimmtudaginn 19. nóvember
2020, og hefst athöfnin klukkan
13. Útförinni verður streymt á
slóðinni
https://promynd.is/jonina
Hægt er að nálgást virkan hlekk á:
https://www.mbl.is/andlat
Bjarnasyni, börn
Jónína Ásta, f.
1984, gift Má Ing-
ólfi Mássyni, dætur
þeirra Freyja Katr-
ín, f. 2010, og Edda
María, f. 2014; Elv-
ar Már, f. 1989,
unnusta Unnur
Þórisdóttir, sonur
þeirra Örvar Þór, f.
2019; og Júlía Brá,
f. 2001, þau er öll
búsett á Selfossi. 6) Guðbjörg, f.
1969, gift Sigvalda Guðmunds-
syni, börn Matthías, f. 2001, og
Katla, f. 2004, þau eru búsett á
Selfossi. 7) Steindór, f. 1970, var
kvæntur Lísu Lottu Björns-
dóttur, sonur þeirra Hjörtur Elí,
f. 1994, hann er búsettur á Reyð-
arfirði. Steindór er kvæntur
Klöru Öfjörð Sigfúsdóttur, synir
þeirra Almar Öfjörð, f. 2004, og
Auðunn Öfjörð, f. 2006, þau eru
búsett á Selfossi.
Jónína fluttist ársgömul að
Egilsstöðum í Ölfusi þar sem
hún ólst upp hjá foreldrum sín-
um og systkinum. Hún stundaði
Elsku mamma.
Þú kvaddir okkur um hádeg-
isbil á sólríkum og fallegum vetr-
ardegi. Höldum að þú hafir ekki
alveg lagt í þennan vetur. Þú
gafst okkur öllum tækifæri til að
kveðja. Þú leyfðir okkur eigin-
lega að fylgja þér til dyra eins og
þú gerðir alltaf. Við verðum þér
ævinlega þakklát fyrir allt það
góða sem þú gafst okkur. Fyrst
og fremst fyrir kærleiksríka,
örugga og yndislega æsku. Hug-
ur okkar leitar til baka til áranna
á Grænhól þar sem þið pabbi
bjugguð okkur gott heimili. Þar
unnuð þið saman alla tíð sem eitt.
Þú gekkst í nánast öll störf bæði
innan dyra sem utan. Þú hlúðir
að öllu lífi, hvort sem það voru
blómin inni í stofu eða dýrin í
sveitinni stór og smá.
Þú áttir stórt hjartasár, elsku
mamma. Börnin þrjú sem þú ólst
og misstir. Harmur sem þið
pabbi báruð alla tíð í hljóði. Það
hefur verið þung byrði að bera.
Þegar pabbi veiktist alvarlega
fyrir tæpum fimmtíu árum og
varð frá að hverfa í nokkra mán-
uði sýndir þú enn og aftur úr
hverju þú varst gerð. Við systk-
inin kornung og bústofninn ekki
lítill en stefnan var alltaf sú
sama, áfram veginn og enga upp-
gjöf að finna.
Þú varst okkur einstök móðir
umfram allt og sýndir fjölskyld-
um okkar fágæta umhyggju allt
til síðasta dags. Við eldhúsvask-
ana okkar liggja litríkar borðtu-
skurnar þínar og minna á þig.
Það verður notalegt að taka brátt
fram jólaskrautið því þar leynast
margar gersemarnar frá þér. Við
trúum því að nú séuð þið pabbi
sameinuð á nýjan leik og sjáum
við ykkur eiginlega fyrir okkur
saman úti við. En það var þín
hinsta ósk, inni á sjúkrahúsi, að
komast út og hreyfa þig. Það var
svo mikið þú, elsku mamma, allt-
af áfram veginn.
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Guðbjörg, Sigrún,
Jóhanna og Steindór.
Þegar ég kom í heiminn þá
varðst þú amma. Þegar kom að
því að gefa mér nafn kom ekkert
annað til greina en að ég fengi
nafnið Jónína. Ég er svo heppin
að hafa átt tvær yndislegar ömm-
ur og báðar hétuð þið Jónína og
mér þykir vænt um að hafa fengið
nafnið ykkar.
Þú varst sveitastelpa og þið afi
voruð bændur af lífi og sál. Mjög
stór hluti minna æskuminninga
tengist sveitinni og veru minni
hjá ykkur á Grænhól. Það var
alltaf nóg að gera og mörg verk
sem þurfti að sinna en í minning-
unni fékk ég alltaf að vera með og
var aldrei fyrir ykkur afa. Vissu-
lega fékk ég þó ekki að gera hvað
sem var og fann að það var passað
vel upp á mig. Ég fékk ýmis hlut-
verk eftir aldri og þroska og
stundum þurfti ég líka bara að
finna mér verkefni á meðan þið
sinntuð skylduverkum og það var
góður skóli og ég man ekki eftir
að mér hafi leiðst.
Þú bjóst yfir svo mörgum góð-
um kostum, þú varst alltaf traust,
yfirveguð, hlý og góð og bjóst yfir
mikilli þolinmæði. Ég man til
dæmis aldrei eftir að þú hafir
skammað mig þótt það hafi
örugglega þurft á köflum. Ég hef
séð þetta sama í kringum mínar
dætur, alltaf leið þeim vel í kring-
um þig og það var alltaf sama
hlýja viðmótið þótt fyrirferðin á
þeim hafi stundum verið mikil.
Þær tala alltaf fallega um ömmu
langömmu eins og þær kölluðu
þig alltaf og þegar það stóð til að
hitta fjölskylduna spurðu þær
hvort þú yrðir ekki örugglega
þar.
Þú náðir þeim áfanga að verða
91 árs. Það var mikill gleðidagur
6. júlí 2019 þegar við fögnuðum
stórafmæli þínu, 90 ára, í full-
komnu sumarveðri. Það sem ég
var stolt af þér, þú svo glæsileg og
barst það sko ekki með þér að
vera búin að ná þessum flotta
aldri.
Það var líka svo merkilegt með
þig að þú virtist eldast hægar en
aðrir. Svo gerðist það bara svona
allt í einu, alveg eins og hjá
mömmu þinni, að þú varðst aðeins
eldri, minnið fór aðeins að bresta
en gleðin fór ekki langt og þú
gerðir nú bara grín að því þegar
minnið stóð sig ekki eins og
skyldi. Á þessu óvenjulega ári
2020 urðu faðmlög skyndilega
óæskileg en þú sagðir að alltaf
hefði flensan komið og það væri
engin undantekning núna og svo
knúsaðir þú mig bless. Eins mikið
og við pössuðum öll upp á þig þá
er ég svo innilega þakklát fyrir
þessi síðustu knús sem þú gafst.
Kveðja
Minningin er mild og góð,
man ég alúð þína,
stundum getur lítið ljóð,
látið sorgir dvína.
Drottinn sem að lífið léði,
líka hinstu hvílu bjó,
dýrð sé yfir dánarbeði,
dreymi þig í friði og ró.
(Bjarni Kristinsson)
Elsku amma mín, Guð geymi
þig. Takk fyrir allt.
Þín nafna,
Jónína Ásta Ölversdóttir.
Látin er góð og eftirminnileg
kona, Jónína Guðmundsdóttir
húsfrú og bóndi frá Grænhól í Ölf-
usi. Hún var gift frænda mínum
Guðmundi Hjartarsyni bónda, en
þau hófu búskap þar árið 1956. Ég
minnist þess með virðingu og
þakklæti að hafa verið fyrsti kúa-
smalinn hjá þeim hjónum aðeins 9
ára gamall. Jónína var einstak-
lega dugleg kona og góð húsmóð-
ir, gekk í öll verk hvort sem það
var innandyra eða utan. Hún stóð
eins og klettur við hlið mannsins
síns í öllum verkum. Jónína
reyndist mér ákaflega vel, um-
hyggjusöm og hlý með góðan
húmor. Það voru mikil forréttindi
fyrir ungan dreng að komast í
sveit og upplifa allt það sem
sveitalífið hafði upp á að bjóða. Að
fá að umgangast dýrin, sinna þeim
og strjúka er einstök minning sem
aldrei gleymist. Í eitt sinn þegar
Jónína bað mig um að sækja eggin
út í hænsnakofa mætti mér
grimmur hani sem ég hræddist,
en Jónína kenndi mér að umgang-
ast hann. Þannig væri það með öll
dýrin, með nærgætni og tillitsemi
væri hægt að nálgast þau og eiga
sem bestu vini. Á þessum árum
var heyskapur mest unninn með
höndunum og vélum sem hestar
drógu. Um helgar komu vinir og
vandamenn að hjálpa til við hey-
skapinn og gat þá orðið nokkuð
margt um manninn, mig minnir að
það hafi verið hátt í fimmtán
manns í flekknum þegar mest var.
En það vafðist ekkert fyrir Jónínu
að gefa öllum góða hressingu að
afloknu verki. Þá gleymi ég ekki
ferðunum niður á engjar eða í for-
irnar, vel útilátið nestið hjá Jónínu
og stundum rjúkandi kakó.
Ógleymanlegt. Það virtist allt
leika í höndunum á henni og vera
henni svo auðvelt. Í veikindum
Guðmundar gekk hún í öll verk og
kláraði sig af því nokkuð örugg-
lega. Þá hafði ég á orði við hana
hvort þetta væri henni ekki erfitt,
svaraði hún þá að bragði nei nei,
þetta þarf að gera. Minningin um
Jónínu er góð, hún var kjarnorku-
kona sem skilaði sínu fullkomlega.
Mig langar með þessum fátæk-
legu orðum að þakka Jónínu fyrir
allt sem hún gerði fyrir mig í þau
fimm sumur sem ég dvaldi hjá
þeim hjónum. Var mér góð leið-
sögn og gott veganesti inn í lífið.
Ég og fjölskylda mín vottum öll-
um börnum, tengdabörnum og af-
komendum öllum innilegrar sam-
úðar og biðjum góðan Guð að
varðveita minningu hennar.
Björn Ingi Gíslason.
Elsku besta amma, það er erfitt
að kveðja þig á þessum skrítnu
tímum en núna vitum við að þú ert
á góðum stað, komin til afa upp í
himnaríki.
Amma var hjartahlý og bros-
mild kona sem tók alltaf vel á móti
okkur þegar maður kom í heim-
sókn. Allar fallegu og dýrmætu
minningarnar úr Sóltúninu fagra
eru ómetanlegar en í Sóltúni var
mikill gestagangur og amma tók
alltaf vel á móti öllum með faðm-
lagi og bros á vör. Oft þegar mað-
ur kom í heimsókn voru heimsins
bestu pönnukökur tilbúnar beint
af pönnunni og aldrei fórum við
svöng heim þar sem hún bauð allt-
af upp á alls kyns kræsingar og
lostæti.
Eitt það dýrmætasta eru allar
sögurnar sem hún sagði okkur um
gömlu dagana og sögurnar frá
Grænhól en hún hafði svo gaman
af því að segja okkur þegar raf-
magnið kom og þegar hún gekk
sem lítil stelpa yfir Ölfusá á ís til
Eyrarbakka.
Eftir að afi dó hélt hún upp á
jólin hjá fjórum börnunum sínum
til skiptis ár hvert og alltaf var
gaman þegar hún var hjá okkur.
Amma var dugleg að prjóna
vettlinga og sokka fyrir okkur fyr-
ir veturinn.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku amma okkar, guð geymi
þig um ókomna tíð.
Þín barnabörn,
Júlía Brá, Elvar Már,
Matthías, Katla, Hjörtur,
Almar og Auðunn.
Jónína
Guðmundsdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
fyrrv. leikskólastjóri,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki sunnudaginn 1. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn
20. nóvember klukkan 14. Vegna samkomutakmarkana verður
athöfnin einungis fyrir nánustu aðstandendur.
Útförinni verður streymt frá Facebook-síðu Sauðárkrókskirkju
og á slóðinni https://youtu.be/MrZsrcaCVnQ
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási.
Björn Sverrisson
Sigurbjörn Björnsson Bára Jónsdóttir
Sverrir Björn Björnsson Sonja Margrét Halldórsdóttir
Pétur Ingi Björnsson Regína Jóna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRARINN ÞORVALDSSON
frá Þóroddsstöðum í Hrútafirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. nóvember
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir afhöfnina. Athöfninni verður streymt á:
promynd.is/thorarinn
Anna Kristín Elísdóttir
Bergþór Þórarinsson
Gunnar Þórarinsson
Reynir Þórarinsson Ólöf Guðmundsdóttir
Sigríður Gróa Þóarinsdóttir Axel Gunnarsson
Oddur Valur Þórarinsson Sigubjörg Gróa Vilbergsdóttir
og afabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SIGURVIN GUÐBJARTSSON
frá Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði
fimmtudaginn 12. nóvember.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. nóvember
klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á
https://www.youtube.com/watch?v=5Gu-XqoLRmM
Þórey Kristín Guðbjartsdóttir
Reynir Snæfeld Stefánsson
Guðbjartur Guðbjartsson
Sigurður Bjarki Guðbjartsson
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Elskulegur bróðir minn,
TÓMAS ELLERT ÓSKARSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni
mánudaginn 16. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Þórir H. Óskarsson
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
STEINUNN INGIGERÐUR
STEFÁNSDÓTTIR
bókasafnsfræðingur,
lést fimmtudaginn 12. nóvember á
hjúkrunarheimilinu Mörkinni í faðmi
fjölskyldunnar.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Alzheimer-samtökin.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 24. nóvember
2020 klukkan 15. Í ljósi aðstæðna eru einungis boðsgestir
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni:
www.sonik.is/steinunn
Sigurður Valtýsson
Berglind Skúladóttir Sigurz
Bryndís Kara Sigurðardóttir
Stefán Ingi Sigurðarson