Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020 Þetta er efnismikið rit í stórubroti og einstaklega vel aðheiman búið af hálfu Sögu-félags; mynd á bókarspjaldi upphleypt munstur úr Sjónabók Ragnheiðar Jónsdóttur biskups- maddömu frá 17. öld. Breiðar spássíur eru fyrir minni myndir með meginmáli en ritið er ríkulega myndskreytt og prentað á vandaðan pappír; leturstærð hagfelld augum. Ritinu er skipt í kafla eftir tímabilum að frátöldum inngangi og lokaorðum. Milli kafla eru fallega upp- settar myndir eða leiðbein- ingar um til- tekin fyrirbæri heimilisiðnaðar undir fyrir- sögninni „Úr handraðanum“. Bókin er læsileg og ítarleg en það er skoðun þess sem þetta skrifar að nafn- laus ritrýni þar sem margir koma að endanlegum texta dregur jafnan úr stílþrifum og persónulegri framsetn- ingu höfundar. Hvað er heimilisiðnaður? Halldóra Bjarnadóttir sem um áratugi var áber- andi frumkvöðull á þessum vettvangi skilgreinir hann: „[Það sem] lands- menn vinna á hvaða tíma árs sem er til eigin afnota, úr þeim efnum sem til falla í landinu sjálfu. Í öðru lagi það sem framleitt er til eigin afnota eða til sölu, úr innlendu eða útlendu efni, þann tíma ársins, sem ekki er annað arðvænlegra að vinna“ (23). Þetta var allt saman handverk þótt verk- smiðjuframleiðsla styrkti framleiðsl- una, einkum ullarvinnsla. Heimilis- iðnaður er auk þess handverk sem „byggist á gömlum rótum og gamalli menningu“ (43). Heimilisiðnaðarfélag Íslands var stofnað 1913 og voru stofnendur 34, að meirihluta karlmenn og fyrsti forseti var kjörinn Jón Þórarinsson fræðslumálastjóri (49). Félagið var afsprengi breyttra samfélags- hátta. Í gamla bænda- samfélaginu var sjálfs- þurftarbúskapur markmiðið og hvert heimili var einnig vinnu- staður og átti að vera sjálfu sér nægt í sem flestu. Ótal frá- sagnir eru til um vinnuhörku, ekki síst við tóskap á haustmánuðum. Gömul vinnubrögð voru á hverfanda hveli í kaupstöðunum, fólki fækkaði í sveitum og 1930 voru þéttbýlisbúar orðnir fleiri en bændur og búalið – þótt margir bæjarmenn ættu raunar skepnur sér til búdrýginda. Forkólfa heimilisiðn- aðar dreymdi um að starfsemi þeirra stuðlaði að félagslegum stöðugleika um leið og menn hefðu hagrænan ávinning af starfseminni (54); atvinnu- leysi var landlægt víða um land yfir vetrarmánuðina. Síðar voru stofnuð heimilisiðnaðarfélög á Akureyri 1915, ennfremur á Seyðisfirði, Norðfirði, Ísafirði og Fáskrúðsfirði (75). Sam- band félaganna var stofnað 1919 (74) og frá 1928 hófst þátttaka í norrænu samstarfi (126). Félagið hefur átt sam- vinnu við byggðasöfnin sem risu hvert af öðru eftir seinna stríð til að safna munum sem notaðir voru við gamalt verklag, við Þjóðminjasafnið, Árbæj- arsafn, Þjóðdansafélag Reykjavíkur, stofnað 1951, kvenfélög og húsmæðra- skóla. Eftir seinna stríð má að sumu leyti segja að tíðarandi hafi breyst til óhagræðis fyrir félagið; hugtakið „ein- nota“ festir rætur um 1965 (161). Frá 1952 hefur félagið notið fjárstyrks úr ríkissjóði (169). Félagið festi kaup á Laufásvegi 2 árið 1971 en seldi þá eign 2007 og keypti nýtt húsnæði við Net- hyl 2E þar sem félagið er enn til húsa og rekur skóla sinn. Starfsemi heimilisiðnaðarfélagsins var einkum ferns konar, að halda nám- skeið til að kenna ákveðin vinnubrögð eða til að fitja upp á nýjungum, að gefa út alls konar fræðsluefni, að halda sýn- ingar og taka þátt í starfi norrænu systurfélaganna og frá 1951 til 98 að reka verslun, Íslenskan heimilisiðnað. Uppistaðan í versluninni var löngum ullarvarn- ingur, bæði handunninn og verksmiðjufram- leiddur. Um skeið voru verslanir við Laufásveg 2 og í Hafnarstræti 1-3, en búðinni við Lauf- ásveg var lokað 1983. Þá var farið að halla undan fæti í búðarrekstrinum (186). Saumanámskeið voru mjög vinsæl, eink- um á kreppuárunum og fram að seinna stríði, „hjálp til sjálfshjálpar“. Árið 1931 voru fluttar inn rúmlega 600 saumavélar (139) og þær urðu vinsælar á heimilum landsins. Hin síðari ár hafa námskeið um íslenska þjóðbúninginn verið eftir- sóknarverð og eftir hrunið 2008 snar- jókst þátttaka í hefðbundnum sauma- námskeiðum. Félagar urðu líklega flestir á níutíu ára afmæli félagsins eða um 800 talsins (261). Heimilisiðnaður í gamalli merkingu orðsins hefur snarminnkað en starf- semi reist á gömlum gildum og þjóð- legum menningararfi fer nú fremur fram á vinnustofum eða verkstæðum nema prjónaskapur, ekki síst á lopa- peisum. Hugtökin heimilisiðnaður, listiðnaður og hönnun eru oft í sam- floti. Tímaritinu Hug og hendi var ýtt úr vör 1966 og var eins konar flaggskip félagsins með fjölbreyttu efni ár hvert síðan að árinu 1998 frátöldu (239). Ekki er samræmt í ritinu hvernig heiti tímaritsins er fallbeygt, stundum er bara fyrra nafnorðið og þágufallið hendi sést ekki. Hvaða áhrif hefur félagið svo haft? Það hefur vissulega staðið vörð um fornar hefðir í handverki, einkum kvenna, og gefið út merkilegt fræðslu- efni, bjargað verðmætum menningar- minjum; ætli Íslenska sjónabók beri þar ekki hæst. Listiðnaðarmenn hafa sótt í smiðju Heimilisiðnaðarfélagsins og öfugt. Líklega er borin meiri virð- ing nú fyrir handverki en var við upp- haf 21. aldar. Hitt er síðan harla ljóst að heimilisiðnaður á undir högg að sækja á hraðfleygri öld snjalltækja þegar orð eins og ,spuni’ og ,vefur’ hafa allt aðra merkingu í huga ungs fólks en forðum var. En á öld sjálf- bærni ætti landið að rísa ef hugur fylgir máli. Sagnfræði Handa á milli - Heimilisiðnaðarfélag Íslands í hundrað ár bbbbn Eftir Áslaugu Sverrisdóttur. Sögufélag 2020. Innbundin, 303 bls; samantekt á ensku, viðaukar, skrár um heimildir, myndir, nöfn og efnisorð. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Að búa og hlúa að sínu Áslaug Sverrisdóttir Ævisaga Ellerts B.Schram er lipurlegaskrifuð og skemmti-leg aflestrar. Frá- sögnin öll er skipuleg, textinn efnisríkur og lesandinn verður nánast ósjálfrátt förunautur sögu- manns, sem átt hefur viðburðaríka og skemmtilega ævi. Æskudag- arnir í Vesturbæ voru skemmti- legir og gáfu tóninn fyrir fjörugt framhald með fótbolta í aðahlutverki. Og íþróttirnar móta fólk og kenna því margt, sbr. orð Ellerts sem virðast vera eins- konar leiðarstef fyrir lífið: „Við lærum ekki bara að tapa og sigra heldur líka góða framkomu og virðingu fyrir öllum sem taka þátt, inni á leikvellinum og í starfinu öllu hver svo sem sigurinn hlýt- ur.“ Um langa tíð hefur Ellert B. Schram verið áberandi maður í ís- lensku þjóðlífi, verið alþing- ismaður, í forystustörfum í íþróttahreyfingunni og ritstjóri á DV. Frá mörgu á ferli sínum hef- ur Ellert áður sagt, til dæmis í viðtölum og blaðapistlum, svo fátt í bókinni kemur endilega á óvart. Áhugavert er að fræðast um al- menna afstöðu Ellerts til manna og málefna. Hann er kreddulaus og fer jafnan þá leið sem heilbrigð skynsemi býður. Hreinn og beinn og stendur með sjálfum sér! Velur frelsi í stað fjötra og talar máli þeirra sem eiga undir högg að sækja. Leitar að stystu leiðinni í mark, án þess þó að gefa afslátt af sannfæringu sinni. Nýtur þess að eiga samskipti við allskonar fólk, kynnast aðstæðum þess og lífi. Gleði og lífsforvitni: þetta er nokkuð sem skín alls staðar í gegn í bókinni. Þar má líka finna fjölda frásagna af eftirminnilegu fólki, góðum tilsvörum og spaugilegum atvikum; smámyndir sem gefa líf- inu gildi. Á síðari hluta ferils síns hafði Ellert vistaskipti í stjórnmálum og fór fram undir merkjum Samfylk- ingar. Greinir í því sambandi frá því að afstaða sín til málefna hafi breyst og hann verið sannfærður um að skipta yrði kökunni jafnar. Slík hreinskilni er til eftirbreytni og eins þegar Ellert greinir frá ýmsu í sínu persónulega lífi, feil- sporum og öðru sem betur hefði mátt fara. Ellert er saga gæfu- manns, góð bók og vel skrifuð! Morgunblaðið/Ásdís Sögumaður „Ævisaga Ellerts B. Schram er lipurlega skrifuð og skemmti- leg aflestrar. Frásögnin öll er skipuleg, textinn efnisríkur og lesandinn verður nánast ósjálfrátt förunautur sögumanns,“ skrifar rýnir. Ævisaga Ellert bbbmn Eftir Ellert B. Schram. Björn Jón Bragason skráði. Skrudda 2020. Innb., 272 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Saga gæfumanns Hljóðleikhús Þjóðleikhússins hefur göngu sína í kvöld kl. 20 með flutn- ingi á völdum brotum úr Skugga- Sveini eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Í kvöld og næstu fjóra fimmtudaga verður boðið upp á útvarpsleikrit í beinni frá Kristalsal Þjóðleikhúss- ins. Um er að ræða menningar- sögulega merk verk, bæði íslenska klassík og eldri verk sem lítið eða aldrei hafa verið leikin hérlendis. Útsendingin verður á vef og Facebook-síðu Þjóðleikhússins. „Skugga-Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var fyrst sett á svið í Reykjavík árið 1862 og varla hefur nokkurt íslenskt leikrit verið leikið oftar hér á landi. Verk- ið er alþýðlegur gamanleikur með söngvum og efnið hjátrú, ótti við hið ókunna, ást og hatur,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að að Karl Olgeir Olgeirsson sjái um tón- listarstjórn. Ólafía Hrönn Jóns- dóttir leikur titilhlutverkið, en eins og fram kom í Morgunblaðinu um helgina mun hún á næsta leikári leika sama hlutverk í uppfærslu Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Þjóðleikhúsið sem Marta Nordal leikstýrir. Meðal annarra leikara í flutningi kvöldsins eru Hilmir Snær Guðnason sem túlkar Grasa-Guddu, Örn Árnason sem leikur Jón sterka og Ketil skræk og Hildur Vala Baldursdóttir sem leikur Ástu en leikstjórinn verður sögumaður. Valin brot úr Skugga-Sveini flutt í beinni útsendingu frá Kristalsal Þjóðleikhússins Morgunblaðið/Golli Sveinn Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur Skugga-Svein í beinni í kvöld kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.