Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Eyesland býður upp á gott úrval af útivistar- og
íþróttagleraugum. Við erum einnig með góðar lausnir
fyrir sjóngler, sólgleraugu og annað sem snýr að góðum
lausnum fyrir útivistina.
Skoðaðu vefverslun okkar eyesland.is
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, er meðal þeirra sem taka
þátt í Kolapse, rafrænum vettvangi
sem ætlað er að stuðla að samtali
þjóða um neyðarástand í loftslags-
og samfélagsmálum. Listamenn úr
ólíkum greinum, aðgerðasinnar og
leiðtogar munu sameina krafta sína,
kynna verk sín og taka þátt í um-
ræðum um framtíð jarðar og þær
áskoranir sem næstu áratugir munu
hafa í för með sér, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Að Kolapse stendur, auk RIFF,
vefurinn Kabinett (sjá wearekab-
inett.com) sem er vettvangur og
samfélag listamanna sem hefur það
markmið að auka meðvitund, upplifa
nokkur andartök friðar, hlusta á tón-
list, horfa á kvikmyndir og taka
skref fram á við í áríðandi baráttu
fyrir umhverfinu og þeim félagslegu
vandamálum sem eru aðsteðjandi í
samtímanum.
Hófst í Argentínu
Kolapse hefst 19. nóvember og
stendur yfir til 21. febrúar á næsta
ári og er lýst sem vettvangi sem orð-
ið hafi til í Argentínu fyrir um ári.
Edo Costantini, stjórnandi Kabinett
í samstarfi við stjórnvöld þar í landi,
tónlistarkonan Patti Smith og fleiri
ræddu þá aðsteðjandi vanda sem
heimsbyggðin glímdi nú við og
hvernig Argentína gæti verið í for-
ystuhlutverki í baráttunni gegn
þeim ógnum.
Í tilkynningu segir að RIFF hafi í
dagskrársetningu sinni undanfarin ár
lagt áherslu á málefni sem þessi, svo
sem í flokknum Betri heimur þar sem
kastljósinu sé jafnan beint að stöðu
heimsins og þeim vandamálum sem
steðji að og tengist m.a. loftslags-
málum.
Kvikmyndir geta
verið í lykilhlutverki
„Getum við haldið áfram enda-
laust eins og ekkert hafi í skorist?
Getur jörðin þolað þennan ágang?
Hver er siðferðisvitund okkar
gagnvart okkur sjálfum og öðrum?
Svör við slíkum spurningum halda
okkur á RIFF við efnið; okkar
ástríða er að koma áhugaverðum og
brýnum skilaboðum um ástand
heimsins á framfæri með sýningu
úrvalskvikmynda og ýmiss konar
umræðum og uppákomum.
Við teljum að betri heimur sé
mögulegur og kvikmyndir geti ver-
ið þar í lykilhlutverki. Þær hafa
kraftinn til að koma á breytingum
sem eru þarfar og mikilvægar,“
segir í fyrrnefndri tilkynningu frá
RIFF.
Þrjú verk
RIFF kynnir þrjú verk á hátíð-
inni, opnunarmyndina Last And
First Men eftir Jóhann Jóhannsson
heitinn og sýnt verður auk hennar
viðtal við kvikmyndatökumann
myndarinnar, Sturlu Brandt Gröv-
len, um gerð myndarinnar. Önnur
myndin er hin austurríska Earth
eftir Nikolaus Geyrhalter sem var á
RIFF í fyrra og verður einnig flutt
TED-spjall Andra Snæs Magnason-
ar, rithöfundar og kvikmyndagerð-
armanns, um nýjustu bók hans, Um
tímann og vatnið, sem tekið var upp
sérstaklega í samvinnu við Iceland
Naturally á ensku auk sérstaks við-
burðar Um tímann og vatnið með
Andra Snæ og Högna Egilssyni sem
tekið var upp í Borgarleikhúsinu í
síðustu viku og er samstarfsverkefni
við Nordic-safnið í Seattle í Banda-
ríkjunum og Kolapse. Anní Ólafs-
dóttir leikstýrir því myndbandi og
Lind Höskuldsdóttir klippti það.
Frekari upplýsingar má finna á
wearekabinett.com.
„Við teljum að betri heimur sé mögulegur“
RIFF tekur þátt í Kolapse, rafrænum vettvangi sem ætlað er að stuðla að samtali þjóða um neyðar-
ástand í loftslags- og samfélagsmálum „Getur jörðin þolað þennan ágang?“ er lykilspurningin
Heillandi Stilla úr Last and First Men, kvikmynd Jóhanns Jóhannssonar.
Út er komið nýtt
tölublað Stuðla-
bergs, tímarits
helgað hefðbund-
inni ljóðlist. Rit-
sjóri þess er
Ragnar Ingi Að-
alsteinsson.
Meðal efnis í
Stuðlabergi að
þessu sinni er
grein um allt
aðra gerð af vísu eftir Vatnsenda-
Rósu en áður hefur verið þekkt og
hefst með línununum „Augun mín
og augun þín,/ó, þá fögru steina“.
Viðtal er við Jónas Friðrik Guðna-
son á Raufarhöfn en þekkt lög hafa
verið samin við mörg ljóð hans.
Grein er í ritinu um tilurð Þórs-
merkurljóðs Sigurðar Þórarins-
sonar en það mun samið í rann-
sóknarferð við Grímsvötn, þá er
þar dægurvísnaþáttur þar sem
alþingismenn yrkja um virðingu Al-
þingis og opnuviðtal við Ragnheiði
Gröndal tónlistarkonu, sem segir
áhuga sinn á bragfræði og ljóða-
gerð hafa byrjað snemma. Í Stuðla-
bergi er líka grein um vestur-
íslensku skáldkonuna Undínu,
fjallað um ljóð Valdimars Tóm-
assonar og margt fleira.
Fjölbreytt efni í
nýju Stuðlabergi
Ragnar Ingi
Aðalsteinsson
Bandaríski rapp-
arinn Lil Wayne
hefur verið
ákærður fyrir að
hafa skotvopn í
fórum sínum og
ef hann verður
fundinn sekur
getur hann þurft
að sitja inni í allt
að tíu ár.
Við leit í einkaþotu Lils Wayne,
ssem heitir réttu nafni Dwayne
Michael Carter Jr., fannst gull-
húðuð skammbyssa. Wayne sat áð-
ur inni í átta mánuði eftir að hafa
verið dæmdur fyrir ólöglega byssu-
eign og er eftir dóminn bannað að
eiga skotvopn.
Samkvæmt Vulture-vefnum hef-
ur Lil Wayne sagt byssuna hafa
verið gjöf til sín á feðradaginn.
Byssan fannst í þotunni í desem-
ber í fyrra en málið verður tekið
fyrir af dómstól nú á aðventunni.
Lögmaður Waynes segir hann aldr-
ei hafa notað þessa skammbyssu.
Það vakti athygli að Lil Wayne átti
fund með Donald Trump Banda-
ríkjaforseta á dögunum.
Lil Wayne gæti
fengið tíu ára dóm
Lil Wayne