Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
„Ferðin gekk betur en við bjuggumst við, bæði
að koma taug á milli skipanna og heimförin
sjálf,“ segir Ásgeir Erlendsson upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við
Morgunblaðið. Lagarfoss kom í höfn í Reykja-
vík um tvöleytið í gær, en flutningaskipið varð
vélarvana um 230 sjómílum suðvestur af Garð-
skaga á sunnudag. Þegar ljóst var að viðgerðir
hefðu ekki borið árangur var varðskipið Þór
kallað út til aðstoðar, og hélt það af stað í átt
til höfuðborgarinnar aðfaranótt 29. desember
með Lagarfoss í eftirdragi, sem er 17.600 tonn
að stærð. Áætlað var að skipin kæmu ekki til
Reykjavíkurhafnar fyrr en í dag, gamlársdag,
en Þór gekk á 8-9 hnútum alla leiðina. Taug-
inni milli Þórs og Lagarfoss var þó sleppt
klukkan hálftvö í gær þar sem hafnsögubátar
tóku við flutningaskipinu, og var ferðalagið
frá Garðskaga til Reykjavíkur því ekki lengra
en einn og hálfur sólarhringur. jonn@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þór dró Lagarfoss frá Garðskaga til Reykjavíkur
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Seldir voru hátt í 30 þúsund miðar
á þrenna streymistónleika sem
haldnir voru á vegum Senu Live.
Tónleikarnir sem
um ræðir eru
jólatónleikar
Bubba Mort-
hens, Björgvins
Halldórssonar
og Jóhönnu Guð-
rúnar. Stærstir
voru jóla-
tónleikar Björg-
vins þar sem um
fjórtán þúsund
miðar seldust. Á
tónleika Bubba voru seldir um tíu
þúsund miðar og hjá Jóhönnu voru
þeir um tvö þúsund talsins. Þá hafa
tónleikarnir verið leigðir nokkur
hundruð sinnum yfir jólahátíðina.
Að sögn Ísleifs Þórhallssonar,
framkvæmdastjóra Senu Live,
gekk sala á tónleikana mun betur
en hann þorði að vona. „Salan er
miklu meiri en á venjulega tón-
leika. Nú er um að ræða heimili
þannig að salan margfaldaðist. Í
upphafi vissum við ekki hvernig
fólk myndi taka í þetta en þetta fór
langt fram úr björtustu vonum,“
segir Ísleifur, en ljóst er að tekjur
af tónleikunum hlaupa á tugum
milljóna króna. Samkvæmt grófum
útreikningum Morgunblaðsins eru
heildartekjur af umræddum
streymistónleikum tæplega hundr-
að milljónir króna. Aðspurður seg-
ir Ísleifur að tekjur af tónleikunum
séu farnar að nálgast hefðbundið
ár. „Miðaverðið er lægra en salan
aftur á móti miklu meiri. Við vild-
um halda verðinu niðri og reyna
þannig að selja meira en áður. Það
tókst heldur betur og tekjurnar
eru farnar að slaga í venjulegt ár.“
Streymt í 25 löndum
Að hans sögn myndi aldrei
ganga að selja 14 þúsund miða á
hefðbundna jólatónleika hjá Björg-
vini Halldórs. „Svona mikið magn
af miðum þýðir að við þyrftum að
leigja Eldborgarsal Hörpu tíu
sinnum. Það myndi auðvitað aldrei
ganga,“ segir Ísleifur og bætir við
að framvegis verði boðið upp á
streymi frá tónleikum. Það verði
áfram gert eftir að faraldrinum
lýkur. „Þetta hefur opnað nýjar
víddir fyrir okkur. Fólk er greini-
lega til í að sitja heima og kaupa
miða á streymi. Við seldum miða í
25 löndum þannig að við náum að
selja miða ansi víða. Streymið
verður klárlega áfram í boði eftir
að allt fer á fullt. Það er komið til
að vera þótt það komi auðvitað
aldrei neitt í staðinn fyrir að sitja í
salnum.“
Streymistónleikar skila
nær hundrað milljónum
Hátt í 30 þúsund miðar seldust á þrjá streymisviðburði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tónleikar Bubbi Morthens hélt vel heppnaða tónleika á Þorláksmessu.
Ísleifur
Þórhallsson