Morgunblaðið - 31.12.2020, Page 12

Morgunblaðið - 31.12.2020, Page 12
Úti að leika Ingibjörg með smalahundinum Kötu úti í snjónum. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ingibjörg svaraði fúsleganokkrum spurningum blaða-manns um sauðfé, jólasveina,Grýlu, jólaköttinn, álfa og ósýnilega vini. Hvað áttu margar kindur og hvað heita þær? „Ég á fimm kindur, ein heitir Rósmaría, hún er ekki gömul. Svo á ég Elínu, hún er eldri og stærri og með ljósmórauðar doppur á bak- inu og kringum augun. Móbauga er fyrsta kindin mín og hún er alveg eins og Elín, nema með dekkri bauga og hleypur oftast frá mér þegar ég ætla að kíkja á hana. Kar- en á ég líka en ég þekki hana ekki vel, hún er hvít. Ég á eina sem fæddist í fyrra og heitir Klafna og er svolítið reið við mig og ég er smá hrædd við hana, en hún er samt falleg, með horn. Ég átti kind sem hét Mía-Litla og hún var skemmtileg, góð og falleg. Hún var mamma Klöfnu.“ Eru kindurnar þínar spakar og getur þú klappað þeim? „Þær eru ekki allar spakar. Elín er mjög róleg og góð og það er allt í lagi að klappa henni, en henni finnst það ekki mjög gaman. Hún borðar mél úr hendinni minni. Mér finnst skemmtilegra að klappa Grameðlu, hún er gömul og góð kind sem mamma á. Hún er frek og hún borðar stundum úr vösun- um á gallanum hennar mömmu. Keisari er hrúturinn hennar mömmu, hann er spakur og fullorð- inn, með stutt horn. Það þurfti að laga þau svo þau meiddu hann ekki. Hann kemur alltaf og talar við okkur, hann elskar krakka og hann er aldrei óþekkur, nema einu sinni þegar við vorum að reka hrút- ana út á tún, þá stoppaði hann og vildi ekki fara. Við vorum smá hrædd við hann og stoppuðum en þá stökk hann yfir girðinguna og fór. Við leyfðum honum að ráða, það er alltaf best að leyfa honum að ráða. Við pabbi sóttum hann svo seinna og settum hann inn hjá kindunum, hann vildi frekar vera þar heldur en hjá hinum hrút- unum.“ Hvað gerðir þú til að gleðja kindurnar þínar um jólin? „Ég hef verið að gefa þeim mél og ég ætla að gefa þeim meira í dag. Þeim finnst það mjög gott. Allar kindurnar fá sérstaklega gott jólahey, mínar líka.“ Kom Stekkjastaur í fjárhúsin hjá þér fyrir jól, eða annar jóla- sveinn? Heyrðir þú eitthvað í þeim eða sást til þeirra? „Þó vísan segi að Stekkjastaur fari í fjárhúsin, þá gerir hann það ekki í alvöru heldur setur bara í skóinn. Giljagaur gæti þó verið að fara aðeins í fjárhúsið en hann fer örugglega í fjós. Það er ekki til fjós hjá okkur af því við eigum ekki kýr, en amma og afi áttu kýr einu sinni. Ef fólk á ekki fjárhús og ekki fjós, þá fer Giljagaur í hesthúsin. Ef fólk á ekkert svoleiðis hús þá setur hann bara í skóinn. Ég hef bara séð jólasveina í leikskólanum og hjá ömmu, en ekki í fjárhúsinu, þeir setja ekkert í skóinn þar. Kjöt- krókur stal kjöti í gamla daga, en núna stela hundarnir kjöti. Kannski afi hafi tekið hangikjöt líka, ég er ekki alveg viss. Egill bróðir minn sá einu sinni jólasvein taka skyr, þeir labba bara um jólasveinarnir og taka allskonar en það er ekki í lagi þó þeir þekki alla. Það má ekki stela, en jólasveinarnir gera það af því það er hægt að kaupa nýtt í staðinn. Ég skrifaði bréf til eins jólasveins og bað hann um að gefa mér krípí dúkku, en hann tók bréf- ið og gaf mér blýant. Einu sinni áttum við fjögur rauð kerti og svo vantaði í þau. Kertasníkir hefur tekið þau, en ekki étið þau, bara kveikt á þeim uppi á fjalli.“ Varðst þú eitthvað vör við jóla- köttinn núna? „Ég hef ekki séð jólaköttinn! Hann hefur aldrei komið en kannski eru allir kettir jólakettir, eða bara þeir sem ég þekki. Ég held að kötturinn okkar, hann Út- lagi, sé kannski jólaköttur. Lang- amma mín átti hann, en hann býr núna hjá okkur. Systir mín sagði mér að Útlagi væri jólakötturinn og að hann mundi borða mig ef ég fengi ekki mjúka pakka með fötum. Það var gott að ég fékk mjúka pakka, hann var að bíða. Hann er alveg góður núna. Hann er samt sterkari en litlir krakkar og litlir hundar. Hann hefur stokkið á mig og bitið mig, en það var samt ekk- ert mjög fast.“ Í bæjargilinu heima hjá þér eru klettar sem heita Grýla og Leppalúði, heldur þú að þau fari kannski á stjá um áramótin? „Grýla var einu sinni að ferð- ast um allan heiminn og kom við á öllum bæjum til að sækja krakka, en hún fann engan svo hún dó. Hún var að labba í gilinu hér og þá kom sól og þá varð hún að steini. Leppalúði var svo leiðinlegur við Grýlu, vildi ekki borða börn svo hann varð að steini líka. Grýla lifn- ar kannski við ef krakkar eru nógu mikið óþægir, en annars verður hún alltaf steinn. Grýla í gilinu er mjög löng og ljót og ég vil aldrei sjá hana. Ég sá tröllaspor í Reyk- holti þegar ég var í göngutúr þar með vinkonu minni, það var eftir stærra tröll en Grýlu og Leppa- lúða.“ Nú flytja álfar alltaf búferlum um áramót, heldurðu að þú eigir eftir að hitta álfa í kvöld? „Álfarnir koma líklega úr eld- inum á áramótabrennunni. Allir sem hafa farið á áramótabrennu hafa séð það gerast. Það er erfitt að vita hverjir eru álfar og hverjir eru mannfólk svo ég veit ekki hvort ég mundi þekkja þá eða hvort ég gæti talað við þá, þeir eru alveg eins og fólk. Þeir eru samt góðir og vilja alveg hitta og sjá fólk. Ég veit alveg að litlu punktarnir sem koma frá brennunni eru álfar, en það veit það enginn annar.“ Hefur þú einhvern tíma heyrt álfasöng í álfhól eða kletti, eða orð- ið vör við huldufólk? „Nei, ég veit ekki hvað huldu- fólk er. Magnús bróðir minn lék sér ofan á álfasteini og eftir það var hann óheppinn. Egill bróðir minn var að hvíla sig hjá steini og settist og heyrði þá smá tal sem kom úr steininum. Þeir halda að álfar bölvi fólki.“ Hefur þú eða einhver sem þú þekkir átt ósýnilegan vin? „Já, ég á ósýnilega vini. Þeir búa annars staðar. Þeir heita ekk- ert en ég ræð hvað þeir heita þegar þeir koma. Ég bý þá til og þess vegna sér þá enginn. Þá ræð ég öllu og ég get stjórnað þeim. Ég vil að þeir komi þegar ég er ein, sem er ekki oft.“ Þú og fjölskylda þín ætlið að kveikja stórt bál í kvöld á gamlárs- kvöld til að kveðja árið, ætlar þú að bjóða álfakóngi og álfadrottningu velkomin þangað? „Já, en ég held að bara ég muni sjá þau. Þau munu ekki koma ríðandi, örugglega frekar á hest- vagni og fyrir vagninum verða hvít- ir hestar með vængi. Álfarnir munu klæðast sparikjólum og ég ætla líka að vera í kjól og heilsa álfunum, en við þurfum ekki að tala saman. Ef álfakóngur og álfadrottning koma þá hlakka ég til.“ Álfarnir koma líklega úr eldinum Ljósmyndir/Kristín Sigríður Magnúsdóttir Sæl Ingibjörg kann vel við sig í fjárhúsinu með kindunum, hér er hún nýbúin að gefa hey á garðann með mömmu. Ingibjörg Elín Traustadóttir er fimm ára sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum. Hún hefur séð tröllaspor eftir stærra tröll en Grýlu og Leppalúða. Hana grunar að afi hennar hafi kannski tekið hangikjötið en ekki Kjötkrókur. Hún á ósýnilega vini sem hún getur stjórnað. Þegar kveikt verður í áramótabrennu heima hjá henni í kvöld ætlar hún að vera í kjól og hún hlakkar til að heilsa álfunum sem koma. Dekur Ingibjörg réttir kind tuggu. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.