Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 19

Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 19
Mikilvægasti dagur ársins! Í dag er mikilvægasti dagur ársins í starfi björgunarsveita landsins því að nú seljum við flugelda sem fjármagna megnið af okkar starfi á komandi ári. Án flugeldasölunnar getum við ekki sinnt þeim verkefnum sem okkur eru falin, en þetta óvenjulega ár hefur verið fjárhagslega erfitt fyrir okkur. Flugeldar eru vinsæl og skemmtileg vara sem orðin er mikilvæg hefð á flestum heimilum, vara sem við höfum selt í yfir 50 ár. Stöðugt er unnið að því að gera flugeldana umhverfisvænni, m.a. með því að taka úr þeim óæskileg efni en í logni getur skapast af þeim svifryk, sérstaklega á meðan mesta skothríðin gengur yfir. Við hvetjum alla landsmenn til þess að fagna áramótum og kveðja þetta eftirminnilega ár með flugeldum. Við skorum á þig að versla við björgunarsveitirnar því þannig tryggir þú áfram öflugt starf okkar og um leið eigið öryggi. Við erum til fyrir þig. Gleðilegt ár!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.