Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Nú eru tíu smáhýsi á Þórdísar-
stöðum auk gamla íbúðarhússins
sem notað er fyrir starfsfólk.
Fólkið bókar sig mest beint í
gegnum alþjóðlegar bókunarsíður.
„Við lítum á þókununina til bók-
unarsíðanna sem auglýsinga- og
markaðskostnað okkar,“ segir Sæ-
mundur og heldur áfram: „Það var
næstum fullbókað alveg þangað til
kórónuveirufaraldurinn kom upp.
Við erum bjartsýn á að það fari í
sama farið þegar honum lýkur.“
Sæmundur segir að vissulega
taki tekjufallið í heimsfaraldrinum í
hjá þessu fyrirtæki eins og öðrum í
ferðaþjónustunni en hann segir að
aðgerðir stjórnvalda hjálpi mikið
og Landsbankinn taki einnig skyn-
samlega á málum fyrirtækis þeirra.
Þau verði því tilbúin þegar faraldr-
inum lýkur og fólk fer aftur að
streyma til Íslands.
Hleðslustöð við hvert hús
Við uppbygginguna hefur
áhersla verið á umhverfismál og
græna ferðamennsku. Nefnir Sæ-
mundur sem dæmi að hleðslu-
stöðvar fyrir rafbíla séu við öll hús-
in. Þórdísarstaðir séu því tilbúnir
að taka við rafbílavæðingunni þeg-
ar hún nær til bílaleiganna.
Sæmundur hefur mikla trú á
staðsetningunni. Segir að Snæfells-
nes sé mikil náttúruperla og er viss
um að innan fárra ára verði það
jafn vinsælt hjá erlendu ferðafólki
og Suðurlandið er nú. Sérstaða
Þórdísarstaða er kyrrðin og frið-
sældin sem þar ríkir og tengslin við
náttúruna. Segir Sæmundur að
gestirnir dvelji oft nokkra daga í
húsunum, fari í gönguferðir og
njóti kyrrðarinnar og útsýnisins að
Kirkjufelli.
Nefnir hann að fellið sé orðið eitt
þekktasta vörumerki Íslands meðal
erlendra ferðamanna. Segir hann
þá sögu að á miðju ferðamanna-
sumrinu 2018 hafi komið fólk ak-
andi á bílaleigubíl úr Mýrdal og
gist eina nótt á Þórdísarstöðum, í
þeim eina tilgangi að sjá Kirkjufell,
og ekið síðan morguninn eftir til
Keflavíkur til að fara í flug heim til
sín í Malasíu.
Eru bjartsýn á framtíðina
Einn eigenda ferðaþjónustunnar á Þórdísarstöðum á Snæfellsnesi telur að ferðafólk skili sér fljótt
til landsins þegar veiran hefur verið kveðin niður Leggja áherslu á græna ferðamennsku
Snæfellsnes Átta af tíu smáhýsum ferðaþjónustunnar á Þórdísarstöðum. Lögð er áhersla á umhverfismál.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er mjög bjartsýnn á að ferða-
fólk fari að koma aftur til Íslands.
Það var svo mikil athygli á Íslandi
áður en farald-
urinn skall á. Svo
tókum við vanda-
málið föstum
tökum og ég tel
að fólk líti til Ís-
lands sem betri
staðar til að
dvelja á en stór-
borgir heimsins,“
segir Sæmundur
Runólfsson, einn
eigenda ferða-
þjónustunnar á Þórdísarstöðum í
Eyrarsveit á Snæfellsnesi.
Sæmundur bætir því við að gott
sé að taka á móti ferðafólki við
þessar aðstæður á Þórdísarstöðum.
Gistingin er í smáhýsum og fólk
fari beint í sín hús. Smithættan sé
því minni en þar sem fara þarf um
sameiginleg rými. Segir Sæmundur
að þrátt fyrir kórónuveiru-
faraldurinn hafi gestir verið að
koma í vetur, ekki margir en samt
hafi alltaf verið einhver viðskipti.
Hröð uppbygging
Ferðaþjónustan á Þórdísar-
stöðum hefur verið byggð upp á
stuttum tíma. Sæmundur, Pétur
Örn Sverrisson og Bjarni Jónasson
keyptu jörðina árið 2017 og hófu
strax framkvæmdir. Byggð voru
nokkur smáhýsi með útsýni yfir
Grundarfjörð og til hins formfagra
Kirkjufells. Gekk uppbyggingin svo
vel að byrjað var að leigja fyrstu
húsin um haustið.
Sæmundur
Runólfsson
„Gráta mun eg Gísla, bróður
minn,“ segir Þórdís; „en mun
eigi vel fagnað Gísla bana ef
grautur er
ger og gef-
inn?“ Svo
segir í Gísla
sögu Súrs-
sonar frá því
þegar Eyjólf-
ur grái kom
að Helgafelli
eftir víg
Gísla Súrs-
sonar. Gísli hafði varist vel og
drengilega í Geirþjófsfirði áður
en hann var veginn. Fagnaði
Börkur hinn digri, bróðir Þór-
dísar, víginu og bað Þórdísi að
gera vel við Eyjólf. Þórdís var
systir Gísla og líkaði ekki.
Þegar gestirnir voru að mat-
ast þreif Þórdís sverð Gísla
sem Eyjólfur hafði lagt hjá sér
og lagði til hans svo mikið sár
varð af þótt ekki tækist henni
að bana honum. Börkur bauð
Eyjólfi sjálfdæmi fyrir atlöguna
og gerði hann full manngjöld.
Þórdís nefndi sér votta og
sagði skilið við Börk. Kvaðst
eigi skyldu koma síðan í sömu
sæng hjá honum. Fór hún þá að
búa á Þórdísarstöðum úti á
Eyri.
Þórdís flyst
að Þórdís-
arstöðum
SYSTIR GÍSLA SÚRSSONAR
Útsýni Kirkjufell
blasti við Þórdísi.
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐU VERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði í læknisfræði,
stofnuðum af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni.
Verðlaunin nema kr 6.000.000
Þau veitast vísindamanni, sem náð hefur framúrskarandi árangri á sviði læknisfræði
eða skyldra greina (þ.m.t. líffræði, lyfjafræði, hjúkrunarfræði, sálfræði, sjúkraþjálfunar,
lýðvísinda o.s.frv.). Heimilt er að endurnýja fyrri tilnefningar. Frestur til tilnefninga er til
31.01.2021. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á Vísindum á vordögum á Landspítala 2021.
Stjórn Verðlaunasjóðs Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar,
Hellulandi 10. Reykjavík 108 (thordhar@simnet.is).
Verðlaun
Akstur Strætó um áramótin tekur
hefðbundnum breytingum. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður ekið í dag
samkvæmt laugardagsáætlun en
bætt við ferðum um morguninn. Ek-
ið verður til kl. 15. Á morgun, nýárs-
dag, verður tekið samkvæmt sunnu-
dagsáætlun.
Á landsbyggðinni verður ekið í
dag, gamlársdag, samkvæmt laug-
ardagsáætlun til hádegis. Á nýárs-
dag fara engir vagnar Strætó út á
land.
Vísar Strætó bs. að öðru leyti til
upplýsinga um áramótaaksturinn á
vefnum straeto.is.
Akstur Strætó
um áramótin
Strætó Takmarkaður akstur um áramót.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa
lónsins, afhenti vísindasjóði
Krabbameinsfélags Íslands styrk
upp á 2,2 milljónir króna, en fyrir-
tækið hefur styrkt félagið á hverju
ári síðan 2015. Upphæðinni var
safnað með þátttöku í Mottumars
og Bleikum október, en hluti af sölu
sturtugels og varasalva Blá lónsins
var látinn renna til sjóðsins.
„Það er okkur alltaf sönn ánægja
að geta veitt fjárstuðning sem
þennan, enda er mikilvægt að efla
og styrkja íslenskar rannsóknir á
krabbameinum og er vísindasjóður
Krabbameinsfélagsins vel til þess
fallinn,“ segir Grímur.
Markmið vísindasjóðsins er að
efla íslenskar rannsóknir á krabba-
meinum, meðal annars með því að
styrkja með fjárframlögum rann-
sóknir á orsökum krabbameina, for-
vörnum, meðferðum og lífsgæðum
sjúklinga, og hafa 30 rannsóknir
hlotið styrki að upphæð 227 millj-
ónir króna frá fyrstu úthlutun hans.
„Stuðningur Bláa lónsins hefur ver-
ið okkur mikilvægur í gegnum tíð-
ina. Við höfum séð mikinn vöxt um-
sókna um styrki í sjóðinn og
fögnum því þessum stuðningi sem
gerir okkur kleift að styrkja fleiri
rannsóknir, enda eru þær drifkraft-
urinn í að ná enn betri árangri
varðandi krabbamein á Íslandi,“
segir Halla Þorvaldsdóttir fram-
kvæmdastjóri Krabbameinsfélags-
ins í tilkynningu.
Ljósmynd/Cindy Rún Li
Styrkur Grímur Sæmundsen afhendir Höllu Þorvaldsdóttur gjöfina.
Bláa lónið styrkir
Krabbameinsfélagið
Rúmar tvær milljónir söfnuðust