Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 37

Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 37
Ein hugsun hefur endurómað í kringum mig undan-farna daga og vikur: „Þetta ár er senn á enda ogþess verður ekki saknað!“Að einhverju leyti endurspeglar þessi hugsun þá trú okkar að áramót marki tímamót og á nýársdag renni upp nýr tími. Og um þessi áramót leyfi ég mér að trúa því að ára- mótin muni sannarlega marka tímamót því að árið sem nú er á enda hefur reynst afar krefjandi fyrir fjölmarga þó að það hafi um leið sýnt hvað í okkur býr. Jarðhræringar, snjóflóð, skriðuföll, efnahagskreppa og heimsfaraldur sem kallaði á samkomutakmarkanir sem aldrei höfðu verið settar áður í lýðveldissögunni; allt markaði þetta árið sem er að líða. Ár sem reyndi á samfélagslega innviði á öll- um sviðum. Ár sem reyndi á almannavarnir og björgunar- sveitir, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, atvinnulífið og velferð- arsamfélagið. En líka ár sem kallaði fram styrk og hugrekki íslensks samfélags. Mikilvægi þess að eiga öflugt heilbrigðis- kerfi þar sem allir eiga jafnan aðgang og afburðafagfólk sem sýndi gríðarlegt þrek og ábyrgð í fordæmalausum aðstæðum. Að eiga öfluga skóla og skólafólk sem þurfti reglulega að aðlaga allt skólastarf að breyttum veruleika. Að eiga sterkt velferðar- kerfi sem grípur fólk sem verður fyrir því áfalli að missa vinn- una. Frá því að faraldurinn skall á hafa stjórnvöld haft tvö skýr markmið. Í fyrsta lagi að vernda líf og heilsu landsmanna. Í öðru lagi að gera það sem til þurfti til að lágmarka samfélags- og efnahagsleg áhrif faraldursins. Með þessi markmið að leið- arljósi höfum við tekist á við hverja áskorunina á fætur annarri og stöndum uppi nú í lok árs sem sterkt samfélag sem náð hef- ur markverðum árangri í baráttunni við faraldurinn. Aðgerðir stjórnvalda miðuðu strax að því að styðja við al- menning og atvinnulíf. Hlutastarfaleiðin, lokunarstyrkir, tekjufallsstyrkir og viðspyrnustyrkir eru allt risavaxnar stuðn- ingsaðgerðir við vinnandi fólk og fyrirtæki. Þá voru atvinnu- leysisbætur hækkaðar, tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta lengt og barnabætur hækkaðar. Frá upphafi lögðum við áherslu á mótvægisaðgerðir til að bregðast við félagslegum af- leiðingum sem þekkt er að fylgja efnahagskreppum. Vitundar- vakning um heimilisofbeldi, aukin framlög til geðheilbrigðis- þjónustu, stuðningur við félagslega viðkvæma hópa og styrkir til Kvennaathvarfsins eru dæmi um verkefni sem ráðist var í strax. Fjárlög verja velferð Alþingi samþykkti nú fyrir jól fjárlög sem fyrst og fremst snúast um viðbrögð við heimsfaraldri en sýna líka einbeittan vilja til að standa vörð um þær mikilvægu grunnstoðir sem hafa rækilega sannað gildi sitt á árinu; velferðarkerfið, heilbrigðis- kerfið og menntakerfið. Um leið er haldið áfram að auka opin- berar fjárfestingar til að vinna gegn atvinnuleysinu en það hef- ur ekki verið meira í seinni tíð. Hallinn á ríkissjóði verður 320 milljarðar króna á næsta ári og hefur aldrei verið meiri í lýðveldissögunni. Það er bæði vegna þess að skattkerfið og afkomutryggingakerfin virka eins og þau eiga að virka í kreppu en líka vegna þess að stjórnvöld tóku þá pólitísku ákvörðun að beita ríkisfjármálunum af fullum þunga til þess að verja grunnþjónustuna og alla þá miklu upp- byggingu sem þar hefur orðið á síðustu árum með almenna vel- sæld, nýsköpun og græna atvinnuþróun í forgrunni. Þetta var stórpólitísk ákvörðun sem er fjarri því að vera sjálfsögð í kreppu eins og dæmin sanna en ég hef mikla trú á að sé sú rétta við þessar aðstæður. Peningastefnan sem birst hef- ur í umtalsvert lægri vöxtum en áður hafa þekkst hér á landi hefur síðan stutt vel við þessar ákvarðanir. Þar er jafnframt á ferðinni stórt lífskjaramál en lægri vextir létta skuldsettum heimilum róðurinn við þessar erfiðu aðstæður. Þó að margir muni fagna því sérstaklega að þetta ár sé að líða í aldanna skaut og óskandi að það komi aldrei til baka þá hefur það líka leitt í ljós hvað við eigum sterkt samfélag. Sam- félag þar sem vísindamenn hafa forgangsraðað baráttunni við heimsfaraldurinn til að leggja sitt af mörkum til að sigrast á veirunni. Samfélag þar sem hið opinbera og einkaaðilar hafa unnið saman sem ein manneskja í þessu stóra verkefni – og nefni ég þar einstakt framlag Íslenskrar erfðagreiningar í glímunni við faraldurinn. Samfélag þar sem við hugum að náunganum og hjálpumst öll að. Íslenskur almenningur hefur nálgast þetta verkefni af skynsemi og yfirvegun – eiginleikar sem hafa valdið því að við höfum náð markverðum árangri í þessari baráttu. Stórar áskoranir framundan Í ágúst birtist vísindagrein um að bráðnun Grænlandsjökuls væri hraðari en áður hefði verið talið og jafnvel óafturkræf. Þetta er enn ein viðvörunin um loftslagsvána sem er stærsta áskorunin sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir. Ísland kynnti ný og metnaðarfull markmið í loftslagsmálum nú í byrj- un desember sem byggjast á grunni uppfærðrar aðgerðaáætl- unar í loftslagsmálum sem kynnt var í sumar. Þar er boðað að í stað 40% samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda í samstarfi við ESB og Noreg verði samdrátturinn 55% og að auki muni Ís- land stefna að áfangamarkmiði í kolefnishlutleysi í kringum ár- ið 2030. Þá verður lögð aukin áhersla á loftslagstengd verkefni í þróunarsamvinnu Íslendinga. Frá upphafi þessa kjörtímabils hefur baráttan gegn lofts- lagsvánni verið forgangsmál þessarar ríkisstjórnar sem kynnti fyrstu fjármögnuðu aðgerðaáætlunina í loftslagsmálum árið 2018. Blaðinu hefur sannarlega verið snúið við á kjörtímabilinu í þessum málaflokki. Ísland hefur alla burði til að taka forystu í þessari baráttu og byggja upp þekkingu á grænum lausnum til framtíðar sem gagnast okkur sjálfum sem og öllu alþjóðasam- félaginu. Önnur stór áskorun strax á komandi ári er viðspyrnan að loknum heimsfaraldri. Atvinnuleysi má ekki verða langtímaböl í samfélagi okkar og mikilvægt er að skapa fleiri störf og undir- byggja nýjar stoðir í atvinnulífinu til framtíðar. Líklega hefur fátt jafn afgerandi neikvæð áhrif á jöfnuð innan samfélaga og langvarandi atvinnuleysi og því er mikið undir þegar við tök- umst á við það verkefni að ná atvinnuleysinu hratt og örugglega niður. Þar þarf bæði að styðja atvinnuleitendur til að sækja sér nýja færni og þekkingu í takt við breyttan vinnumarkað og tækniframfarir sem og að styðja við fjölbreytta atvinnu- uppbyggingu. Áhersla stjórnvalda á fjárfestingar og félags- legar aðgerðir mun stuðla að því að tryggja að Ísland verði áfram samfélag jöfnuðar og jafnra tækifæra. Skýr áhersla stjórnvalda á að efla grunnrannsóknir og ný- sköpun í kreppunni mun skila aukinni verðmætasköpun í öllum atvinnugreinum, nýjum störfum og auknum viðnámsþrótti ís- lensks hagkerfis. Það mun stuðla að því að hraða grænni um- breytingu og að sama skapi reynast okkur mikilvæg fjárfesting til að takast á við fjórðu iðnbyltinguna en segja má að heimsfar- aldurinn hafi virkað eins og hraðall fyrir samfélagið inn í nýja tækni og breytta atvinnuhætti. Ferðaþjónustan mun eiga sér bjarta framtíð þegar faraldrinum linnir og fyrirhugaður þjóð- garður á hálendi Íslands mun reynast sterkt aðdráttarafl ásamt því að vera mikilvægt framlag til náttúruverndar. Bólusetningar við COVID-19 hófust hér á landi í vikunni. Ís- land hefur í samstarfi við ESB og Noreg gert nokkra samninga við ólíka bóluefnisframleiðendur til að tryggja sem best hags- muni og öryggi landsmanna. Bóluefni fyrir samfélagið allt hef- ur verið tryggt í gegnum þessa sameiginlegu samninga og hafa stjórnvöld gætt hagsmuna Íslands í hvívetna og munu halda því áfram. Bólusetning mun smám saman breyta vígstöðu okkar gagnvart veirunni. Vissulega munum við áfram þurfa að viðhafa sóttvarnaráðstafanir á nýju ári en róðurinn mun léttast þegar líður á árið. Það eru því bjartari tímar framundan. Árið hefur verið erfitt en samfélagið hefur sýnt mikinn styrk og úthald. Við munum saman koma sterkari út úr kófinu. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ár hamfara og hugrekkis Bólusetning mun smám saman breyta vígstöðu okkar gagnvart veirunni. Vissulega munum við áfram þurfa að viðhafa sóttvarnaráðstafanir á nýju ári en róðurinn mun léttast þegar líður á árið. Það eru því bjartari tímar framundan. Árið hefur verið erfitt en samfélagið hefur sýnt mikinn styrk og úthald. Við munum saman koma sterkari út úr kófinu. STJÓRNMÁL 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.