Morgunblaðið - 31.12.2020, Síða 40
40 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2020
Við komum bjartsýn inn í árið 2020. Við vorum ísókn til betri lífskjara og höfðum sýnt fyrirhyggjumeð því að nýta góð ár til að styrkja samfélags-lega innviði.
Ekki leið á löngu þar til örlögin höfðu tekið málin í sínar
hendur og verkefni landsmanna breyttust í samræmi við
það. Segja má að árið hafi hafist með óveðri og hörmungum
fyrir vestan og endað með hörmungum fyrir austan. Snjó-
flóðin við Flateyri og Suðureyri voru óþægileg áminning
um hve grátt náttúran hefur leikið íbúa á svæðinu í gegnum
tíðina. Aurskriðurnar á Seyðisfirði breyttu ekki bara ásýnd
þessa gullfallega bæjar heldur skildu eftir ónot og óöryggi
hjá bæjarbúum.
Það var ekkert minna en kraftaverk að mannskaði skyldi
hvorugu sinni hljótast af. Þá er ekki síður kraftaverki líkast
að sjá hverju samtakamátturinn í þessum samfélögum fær
áorkað, með öflugum stuðningi frá björgunarfólki, sjálf-
boðaliðum og öðru framlínufólkinu eftir slíka atburði. Það
eru verðmæti sem engar vísitölur ná yfir.
Þessi samtakamáttur hefur verið einkennandi í við-
brögðum okkar við heimsfaraldri kórónuveirunnar. Og nú
við lok árs er það einmitt þetta sem stendur upp úr. Æðru-
leysið og krafturinn í samfélaginu öllu þegar náttúru-
hamfarir og heimsfaraldur reyna á styrk okkar og þolgæði.
Á traustum grunni
Við sem byggjum þessa eyju höfum reynslu margra kyn-
slóða af því að náttúruöflin og óviðráðanlegar ytri aðstæður
geta ráðið miklu um lífsafkomuna. Sú bjarta framtíð sem
við horfðum til í upphafi árs var ekki byggð á vissu um að
allt myndi ganga að óskum. Við gátum horft bjartsýnum
augun fram á veginn vitandi að ef aðstæður breyttust og
þær reyndu á styrk okkar höfðum við gert ráðstafanir og
búið í haginn. Greitt niður skuldir og sýnt fyrirhyggju,
safnað forða og styrkt efnahagslega og félagslega innviði.
Á þessum grunni gátum við sagt strax í upphafi farald-
ursins að við ætluðum að bregðast við af krafti og viðbrögð
okkar myndu einkennast af því að við vildum heldur gera
meira en minna. Markmið okkar hafa verið skýr: að verja
heilsu landsmanna og lágmarka á sama tíma efnahagslegt
tjón af útbreiðslu veirunnar. Það er best gert með því að
standa með fólki sem tapað hefur starfinu og fyrirtækjum
sem upplifa tekjuhrun.
Leiðin út úr efnahagslægðinni liggur í gegnum atvinnu-
lífið. Öllu skiptir að fyrirtæki geti fundið viðspyrnu og sótt
fram á nýju ári eftir því sem allar ytri aðstæður verða hag-
felldari. Með því fjölgar störfum og hjólin fara að snúast á
ný.
Í því skyni höfum við undanfarna mánuði teflt fram fjöl-
mörgum úrræðum. Má þar nefna ráðningarstyrki, hluta-
bætur, laun í sóttkví, tekjutengdar atvinnuleysisbætur,
ferðagjöf, tekjufallsstyrki, lokunarstyrki, viðspyrnustyrki
og þannig mætti áfram telja. Við höfum sömuleiðis innleitt
frestanir og endurgreiðslur skatta og gjalda og haldið
áfram skattalækkunum. Á sama tíma höfum við varið vel-
ferðarkerfin, stóraukið stuðning við nýsköpun og umbylt
þjónustu ríkisins með stafrænum lausnum. Ekki má gleyma
sérstöku fjárfestingaátaki í samgöngum sem við höfum þeg-
ar hrint af stað.
Um áramótin lækka skattar á laun annað árið í röð,
tryggingagjaldið lækkar tímabundið og fjármagnstekju-
skattur verður sanngjarnari. Á næsta ári ætlum við að
hvetja til aukinna fjárfestinga í grænum lausnum með
skattalegum ívilnunum og ég hef lagt fyrir þingið tillögur
til breytinga á skattareglum í þágu almannaheillastarfsemi
í landinu. Skattkerfið þarf betur að bera með sér að við
kunnum virkilega að meta allt það mikilvæga starf.
Í þessum anda viljum við halda áfram.
Allt tekur þetta enda
Þótt líkamleg veikindi, smittölur, sóttkví og efnahagsáföll
hafi átt sviðið í almennri umfjöllun ársins má ekki vanmeta
áhrifin af þessum áföllum á andlega heilsu landsmanna. Þar
getur óvissan um framvinduna orðið sjálfstæð uppspretta
vanlíðunar því skiljanlega er þolinmæði þeirra sem óttast
um heilsu sína eða hafa tapað lífsviðurværi sínu af skornum
skammti. Í upphafi vonuðumst við til að ástandið myndi
ekki vara nema í nokkra mánuði, svo mögulega út árið og
hér erum við enn, um tíu mánuðum síðar, að skipuleggja
okkur fyrir árið 2021.
Heilbrigðisstarfsfólk hefur lyft grettistaki undir stöðugu
álagi. Kennarar allt frá leikskólastigi upp í háskóla halda
áfram að mennta næstu kynslóðir í krefjandi umhverfi. Við-
bragðsaðilar á öllum sviðum sinna útköllum og verkefnum í
erfiðum aðstæðum, oftar en ekki útsettir fyrir smitum. At-
vinnurekendur og einyrkjar hafa þurft að opna og loka
rekstri sínum í samræmi við sveiflur faraldursins og starfs-
fólk víða þurft að minnka starfshlutfall eða jafnvel leita á
ný mið. Áfram mætti lengi telja.
Börnin okkar hafa misst af skóla, íþróttum og dýrmætum
stundum með vinum sínum og leikfélögum. Framhalds- og
háskólanemar hafa þurft að mynda og rækta vinasambönd
gegnum tölvuskjái, en ekki á böllum og skemmtunum. Við
foreldrarnir þurfum að útskýra þetta allt saman samhliða
auknum byrðum, meiri áhyggjum og færri samverustundum
með vinum okkar og vinnufélögum.
Við megum öll vera stolt af því hverju við sem samfélag
höfum áorkað á krefjandi og erfiðum tímum. Með sama
hugarfari mun staðan halda áfram að batna dag frá degi,
því allt tekur þetta enda.
Stóru stundirnar
Afrek Íslendinga hafa síst verið færri á þessu óvenjulega
ári en önnur ár. Skemmst er að minnast óskarsverðlauna
Hildar Guðnadóttur fyrir tónsmíðar og kvennalandsliðið
heldur áfram að feta sigurbrautina á knattspyrnuvellinum
með sigurvegara í Meistaradeild Evrópu í fyrirliðastöðu.
„Það verður erfitt að toppa þetta ár,“ sagði hún þegar hún
tók við titlinum Íþróttamaður ársins. Það voru orð að
sönnu.
Vísindamenn okkar, með Íslenska erfðagreiningu
fremsta í flokki, hafa unnið stórmerkilegt starf á árinu og
lagt heiminum öllum lið við greiningar og þróun lausna í
heimsfaraldrinum. Sóttvarnalæknir Íslands vakti fyrstur
formlega athygli á því er virtist vera uppruni gríðarlegs
smits í Ölpunum og þríeykið hefur miðlað víða því sem
lagt hefur grunn að góðum árangri innanlands. Controlant
hlaut í nóvember Nýsköpunarverðlaun Íslands 2020 en
lausnir fyrirtækisins leika stórt hlutverk við að tryggja
örugga dreifingu á bóluefni um allan heim.
Land tækifæranna
Við finnum að það birtir til með hverjum deginum. Dag-
inn tók að lengja á ný fyrir tíu dögum og á næstu mánuð-
um mun jafnframt birta til í efnahags- og sálarlífi þjóð-
arinnar. Fyrstu Íslendingarnir voru bólusettir fyrir
kórónuveirunni hér á landi í vikunni og fram undan er
mikið verk við bólusetningar og endurreisn hagkerfisins.
Þessi þjóð hefur áður brotist út úr erfiðum aðstæðum og
staðið sterkari á eftir. Sama verður upp á teningnum nú.
Samfélag okkar byggist á því fólki sem hér býr. Fólki
sem hefur með dugnaði, sköpunargleði og þrautseigju gert
afskekkta eldfjallaeyju í norðri að einu mesta velferðar-
samfélagi heims. Samfélagi sem vill að allir fái að nýta
krafta sína og hafi hvata til að sækja fram á eigin verð-
leikum. Það eru þessir styrkleikar sem munu umfram
annað koma okkur aftur á réttan kjöl.
Ísland er land tækifæranna. Með þeim dugnaði, fram-
takssemi og óbilandi trú á framtíð lands og þjóðar sem
lagði grunn að þeirri stöðu getum við gert næsta ár að ári
tækifæranna. Í lífi hvers og eins og um leið heillar þjóðar.
Gleðilegt nýtt ár.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við áramót
Ísland er land tækifæranna. Með þeim dugnaði,
framtakssemi og óbilandi trú á framtíð lands og
þjóðar sem lagði grunn að þeirri stöðu getum
við gert næsta ár að ári tækifæranna. Í lífi hvers
og eins og um leið heillar þjóðar.