Morgunblaðið - 31.12.2020, Side 72
Unnendur banda-
rísku rokkdrottn-
ingarinnar Patti
Smith geta fylgst
með henni koma
fram í streymi á
miðnætti í kvöld,
gamlárskvöld.
Nýr vettvangur fyrir listrænar
uppákomur á vefnum, Circa.art,
stendur að viðburðinum sem verð-
ur streymt á auglýsingaskiltum á
Piccadilly Circus-torginu í London
en einnig á Youtube-rás miðilsins.
Kl. 23.45 hefst sýning á verki
þýsku myndlistarkonunnar Anne
Imhof, sem vann Gullna ljónið á
Feneyjatvíæringnum 2017, og á
miðnætti tekur við 15 mínútna
gjörningur Patti Smith sem varð 74
ára í gær.
Patti Smith í beinu
streymi á miðnætti
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 366. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Á árinu eru margir sætir sigrar en ég
man líka eftir erfiðum dögum þar sem
ég var að drepast í líkamanum þegar
ég fór fram úr á morgnana. Stundum
þurfti ég að berjast áfram í gegnum
þetta en ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að taka þátt í þessum keppn-
um á ári þar sem fullt af íþróttafólki
gat ekki keppt vegna kórónuveir-
unnar. Þegar upp er staðið þá gekk
þetta allt saman upp,“ segir íþrótta-
maður ársins 2020, Sara Björk Gunn-
arsdóttir. 62-63
Sætir sigrar en man líka
eftir erfiðum dögum
ÍÞRÓTTIR MENNING
ER HAFIN!
ALLT AÐ
50%
AF
VÖLDUM VÖRUM
30. des. - 8. feb.
Útsalan
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Lokað gamlársdag og nýársdag
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ekki við mig. Ég var yfirleitt ein og
því var mikil hjálp í því þegar
mamma þurfti að vinna heima.
Stundum fannst mér mér ganga illa
í prófunum, hélt að ég væri að falla,
og því kemur árangurinn sérstak-
lega á óvart.“
Þrátt fyrir utanaðkomandi áhrif
hefur námið verið í forgangi hjá
Selmu Lind. „Árangurinn er sam-
viskuseminni að þakka frekar en
metnaðinum,“ segir hún. „Mamma
segir stundum að illu sé best aflokið
og ég hef haft það í huga, en ég hef
lagt mig fram um að skila alltaf öll-
um verkefnum eins vel og ég get og
á réttum tíma. Það hefur greinilega
borgað sig.“
Framtíðin er óljós hjá Selmu
Lind, sem verður tvítug í janúar.
Hún segist þurfa að hvíla sig frá
námi þar til í haust vegna þess að
árið hafi tekið mjög mikið á. „Þegar
ég var yngri sagði pabbi alltaf að ég
ætti að verða verkfræðingur, ég
sagði já við því áður en ég vissi
hvað það var en núna er ég ekki al-
veg viss,“ segir hún. Telur samt
sennilegt að hún leggi fyrir sig nám
sem tengist raungreinum og sér-
staklega stærðfræði. „Það kemur í
ljós hvað ég geri.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Selma Lind Davíðsdóttir, stúdent af
tölvubraut, fékk 9,48 í meðal-
einkunn og var dúx í hópi nemenda
sem útskrifuðust frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti skömmu fyrir
jól. Hún segist vera mjög sam-
viskusöm og það hafi skilað sér.
„Mér fannst líka gaman í tölvu-
áfanganum og stærðfræðinni,“ seg-
ir hún.
Vegna samkomutakmarkana í
kórónuveirufaraldrinum var út-
skriftinni streymt, en nemendur
mættu í athöfnina í skólanum og
tóku við skírteinum sínum. 66 nem-
endur útskrifuðust með stúdents-
próf, 16 sem húsasmiðir, 18 sem
rafvirkjar, 13 sem sjúkraliðar og
níu útskrifuðust af snyrtibraut.
Selma Lind fékk 9 eða 10 í öllum
fögum og fékk flest verðlaun, við-
urkenningu fyrir bestan árangur á
stúdentsprófi, viðurkenningu frá
Soroptimistaklúbbi Hóla og Fella
og verðlaun fyrir ágætisárangur í
raungreinum, stærðfræði og tölvu-
greinum. Enn fremur veitti Styrkt-
arsjóður Kristínar Arnalds henni
viðurkenningu fyrir bestan árangur
í íslensku. Hlynur Gíslason hlaut
viðurkenningu fyrir bestan árangur
á rafvirkjabraut, í dönsku og
spænsku, en hann útskrifaðist bæði
af rafvirkjabraut og sem stúdent.
Þá veitti Rótarýklúbbur Breiðholts
Lindu Björgu Björnsdóttur, ný-
stúdent af félagsfræðabraut, viður-
kenningu fyrir störf að félags-
málum.
Erfitt vegna veirunnar
Kórónuveirufaraldurinn setti
stórt strik í reikninginn hjá Selmu
Lind og hún segir að líðandi ár hafi
verið mjög erfitt og liðið hægt. „Ég
var við það að gefast upp á náminu
og er því mjög fegin að því sé lok-
ið,“ segir hún. Til nánari útskýr-
ingar segir hún að námið hafi að
mestu verið í fjarkennslu og fyrir-
komulagið hafi átt illa við sig. „Öll
vinnan var heima og öll þessi skipu-
lagning, sem ég varð að sinna, átti
Samviskusemi Selmu
Lindar skilaði sér
Var með 9 og 10 í öllum fögum á stúdentsprófi og dúx í FB
Dúx Selma Lind Davíðsdóttir fékk 9,48 í meðaleinkunn í FB.
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 2. janúar. Að
venju verður öflug fréttaþjón-
usta á fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is, yfir áramótin.
Hægt er að senda ábendingar
um fréttir á netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftar-
deildar er opið í dag, gamlárs-
dag, frá kl. 8-12.
Lokað er á nýársdag. Þjón-
ustuverið verður opið laugar-
daginn 2. janúar frá kl. 8-12.
Auglýsingadeildin er lokuð til
mánudagsins 4. janúar. Net-
fang þjónustuvers er askrift-
@mbl.is. Hægt er að bóka
dánartilkynningar á mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um áramót