Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 11

Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 11
11 Ávarp biskups Íslands, Agnesar M. Sigurðardóttur Fjármála- og efnahagsráðherra, forseti kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúar, vígslubiskupar, góðir gestir. Ég vil byrja á því að þakka sóknarnefnd og starfsfólki hér í kirkjunni fyrir aðstöðuna og tónlistarfólkinu fyrir flutninginn. Einnig vil ég þakka forsætisnefnd, kirkjuráði og starfsfólki sem undirbúið hefur þingið. Fullveldið Í ár höfum við hér á landi minnst 100 ára afmælis fullveldisins. Við vitum að árið 1918 var hörmungarár fyrir þjóðina, frostaveturinn mikli, spænska veikin dró marga til dauða og Katla spúði eldi, ösku og hrauni yfir land og skepnur. Sambandslagasamningurinn milli Dana og Íslendinga var ljós í myrkrinu en hann var undirritaður og samþykktur árið 1918 og tók formlega gildi þann 1. desember eins og kunnugt er. Með því náðist megináfangi í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og brautin rudd fyrir lýðveldisstofnuninni árið 1944. Það liðu mörg ár, mikil vinna var unnin, nokkrir áfangasigrar náðust og þjóðaratkvæðagreiðslur fóru fram þar til samningurinn tók gildi. Samtal, skýr markmið og tiltrú á verkefnið skiluðu þessum árangri. Kirkjuþingið og stjórnskipan þjóðkirkjunnar Þegar samningar nást og ákvarðanir eru teknar hefur alla jafna farið fram mikil vinna og samtal og tiltrú á verkefnið áður en niðurstaða fæst. Það á einnig við um kirkjuna. Á þessu ári eru 60 ár frá því að kirkjuþing var fyrst haldið og 20 ár frá því fyrst var sett kirkjuþing í nýju lagaumhverfi. Biskup Íslands var forseti þingsins fyrstu 40 árin en nýja þinginu, ef svo má að orði komast, hefur verið stýrt af fjórum forsetum. Jón Helgason var fyrsti forsetinn og tók þátt í að móta starfshætti hins nýja kirkjuþings. Hann tókst á hendur að móta starf kirkjunnar í nýju lagaumhverfi sem forseti þingsins og stýra mótunarárunum en flestar þær starfsreglur sem í gildi eru í dag eru í grunninn frá fyrsta ári þingsins. Næsti forseti var Pétur Kr. Hafstein sem stýrði þinginu á umbrotatímum þegar erfið mál komu upp í kirkjunni og önnur erfið mál voru til umræðu. Þegar hann þurfti að hætta vegna veikinda tók varaforseti við, Margrét Björnsdóttir, en á aukakirkjuþingi þann 1. september 2012 tók núverandi forseti Magnús E. Kristjánsson við keflinu. Ljóst er að á þessu þingi verður kosinn nýr forseti þar sem Magnús er að hætta á þinginu. Vil ég þakka þér Magnús samstarfið og framlag þitt til þjóðkirkjunnar. Ég bið þér og fjölskyldu þinni farsældar og blessunar Guðs í bráð og lengd. Þegar kirkjuþing kom fyrst saman árið 1958 hafði kirkjuráð verið starfandi í 26 ár, frá árinu 1932. Alþingi samþykkti lög um kirkjuráð íslensku þjóðkirkjunnar árið 1931 og árið 1957 setti Alþingi lög um kirkjuþing. Í ritinu „Saga kirkjuráðs og kirkjuþings“ sem sr. Magnús Guðjónsson tók saman segir í inngangi: „Í ritsmíðinni er einkum fjallað um tvær mikilvægustu stofnanir íslensku þjóðkirkjunnar, kirkjuráð og kirkjuþing, og áhrif þeirra á allt starf kirkjunnar. Þessar stofnanir eru áfangar á leið kirkjunnar til frekara sjálfstæðis.“ Sr. Magnús segir að markmið skrifanna sé „að gera eins og kostur er grein fyrir þeirri þróun, sem kirkjan hefur gengið í gegnum og þó aðallega frá miðri 19. öld, þegar aðeins fer
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.