Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 32

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 32
32 33 sóknargjöldum og að fjármagna stór verkefni. En tilfinningin af þessum eftirhrunsárum er góð, þrátt fyrir allt. Við unnum verkefni sem urðu kirkjunni til góðs. Kostnaður við Daginn í dag DVD útgáfuna (3 DVD diskar, íslenskt efni) var um 30 milljónir – sala og styrkir skiluðu um 27 milljónum, rest ásamt hlutdeild í föstum kostnaði (t.d. launum) ber Kirkjuhúsið. HVER ER STAÐAN Í DAG? Fjárhagsstaða er þokkaleg í dag, tekjur 2017 rúmlega 61 milljón og gjöld um 58 milljónir. Endanleg niðurstaða í lok apríl. Tekjurnar hafa dregist saman á 9 árum. KIRKJUHÚSIÐ – SKÁLHOLTSÚTGÁFAN ER Í EIGU ÞJÓÐKIRKJUNNAR Hún er hluti af starfsumhverfi þjóðkirkjunnar, eins og sóknir landsins og aðrar stofnanir hennar, og sett á stofn til að þjóna þjóðkirkjunni, sóknum landsins og almenningi með þjónustu, útgáfu og verslun á kristnum grunni. Prestastéttin hefur umvafið þessa kirkjustofnun með uppörvun og væntumþykju en það dugar ekki lengur eitt og sér. Það er ljóst að þjóðkirkjan væntir þess að fá meiri tekjur af því húsnæði sem Kirkjuhúsið – Skálholtsútgáfan er í. Því er kominn tími til að kirkjustjórnin meti hvort þörf sé fyrir þjónustumiðstöð, verslun fyrir almenning og kristið útgáfufélag í þeirri mynd sem hún hefur verið rekin frá upphafi og taki ákvörðun eftir því með framhaldið. Framkvæmdastjórinn hefur alveg sama kjarkinn (hvaðan sem hann nú kemur!). Mikið vinnuálag, tveir starfsmenn, vinnutími lengist fram í frítíma og alltaf með verkefni heima. Hins vegar eru stór verkefni framundan þetta ár, þar má meðal annars nefna útgáfu á nýrri skírnarkveðju (minningabók frá fæðingu til fermingar) nú í vor og útgáfa nýrrar sálmabókar sem Skálholtsútgáfan hefur unnið að frá því árið 2012 og síðari ár í samstarfi við Sálmabókarnefnd þjóðkirkjunnar. Þau verkefni munu klárast undir stjórn núverandi framkvæmdastjóra en hún telur að þeim verkefnum ljúki eigi síðar en 1. apríl 2019. Vert væri að skoða þessi mál nú þegar. STJÓRNARMÁLEFNI Stjórn Kirkjuhússins-Skálholtsútgáfunnar er afar fórnfúst og gott fólk. Leggur mikið á sig fyrir stofnuna og vinnur ótal verkefni. Sérstaklega má nefna framkvæmdanefndina, Hrein stjórnarformann, Elínu Elísabetu og Höllu Jónsdóttur en við hittumst mjög oft enda erum við útgáfuráðið. Nú bætist Sigfús þar inn sem verkefnisstjóri fræðslusviðs og stjórnarmaður. Sérstaklega vil ég þakka Hreini S. Hákonarsyni sem er vakinn og sofinn yfir þessari stofnun. Fjárhagsleg ábyrgð er framkvæmdanefndar en í raun ber ég sjálf á allan hátt ábyrgð á fjárhagi, að allt gangi vel og allt gangi upp. Erum „nonprofit“ og viljum gera upp kringum núllið. Við höfum lengi haft mikið frumkvæði og framkvæmt ótrúlegustu hluti. Það sem kannski margir átta sig ekki á er að þótt við séum stofnun á vegum kirkjunnar þá þurfum við til dæmis að selja fyrir launum og launatengdum gjöldum, húsnæði, aðföngum, innflutningi, nýsköpun, prentun, kynningu og auglýsingum og svo framvegis. Kirkjuhúsið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.