Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 25
25
Á (2)82. fundi hinn 9. október var tekin fyrir fundargerð kirkjustarfs- og fasteignahóps
kirkjuráðs, dags. 8. október 2018. Tekinn var fyrir liður 2, hlunnindi af prestssetursjörðum.
Lögð fram tillaga starfshópsins að breytingu á 23. gr. starfsreglna nr. 950/2009. Kirkjuráð
samþykkir að tillagan verði lögð fyrir komandi kirkjuþing.
Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála
Verkefni kirkjuráðs á sviði fjármála voru til umfjöllunar á alls ellefu fundum á starfsárinu.
Á (2)72. fundi hinn 12. desember 2017 var lögð fram fundargerð fjármálahóps kirkjuráðs
8. desember 2017 ásamt tillögum um fjárhagsáætlanir biskupsstofu, kirkjumálasjóðs,
Kristnisjóðs, Jöfnunarsjóðs sókna, Skálholtsstaðar og Tónskóla þjóðkirkjunnar 2018.
Kirkjuráð samþykkti þær með fyrirvara um framlög á fjárlögum. Áætlanirnar voru
birtar sem fylgiskjöl með fundargerð fundarins. Þá voru lagðir fram ársreikningar kirkju-
málasjóðs og Hjálparstarfs kirkjunnar.
Á (2)73. fundi hinn 9. janúar 2018 var tekin fyrir og samþykkt fjárhagsáætlun Skálholts.
Á (2)74. fundi hinn 20. febrúar 2018 var tekinn fyrir ársreikningur kirkjumálasjóðs fyrir
árið 2016 og samþykktur. Jafnframt samþykkt tillaga um að fjármálahópur kirkjuráðs
vinni tillögur um að snúa við halla sjóðsins.
Á (2)76. fundi hinn 10. febrúar 2018 voru lögð fram drög að húsaleigusamningi vegna
Laugavegar 31. Kirkjuráð fól framkvæmdastjóra að ganga frá samningnum.
Á (2)79. fundi hinn 12. júní 2018 var tekin fyrir fundargerð fjármálahóps frá 8. júní. Tekinn
fyrir 3. liður, Egils staðakirkja, styrkur til viðhalds. Sam þykktur styrkur úr Jöfn unar sjóði
sókna að fjárhæð 5 m.kr. á þessu ári. Jafnframt samþykkt vilyrði fyrir 10 m.kr. styrk árin 2019
og 2020 gegn staðfestingu viðskiptabanka sóknarinnar á fjár mögnun fram kvæmdarinnar.
Á (2)81. fundi hinn 20. september 2018 var lagður fram þjónustusamningur vegna
Strandarkirkju. Kirkjuráð ályktar að fela framkvæmdastjóra að ganga frá samningnum.
Á (2)83. fundi hinn 29. október 2018 voru lagðar fram rekstraráætlanir biskupsstofu og
sjóða og stofnana þjóðkirkjunnar fyrir árið 2019 og ályktaði kirkjuráð að þeim skyldi
vísað til kynningar á komandi kirkjuþingi og eftir atvikum til umfjöllunar í fjármálahópi
kirkjuráðs að því loknu, til undirbúnings endanlegrar ákvörðunar á desemberfundi
ráðsins.
Önnur verkefni en þau er varða fjármál og fasteignir
Málefni Skálholts
Málefni Skálholts voru til umfjöllunar með einum eða öðrum hætti á níu fundum
kirkjuráðs á kirkjuþingsárinu.
Á (2)72. fundi hinn 12. desember 2017 var kynnt arkitektasamkeppni vegna breytinga á
vígslubiskupshúsi í Skálholti og ákveðið var að sækja um styrk úr húsafriðunarsjóði 2018
vegna verkefnisins: Viðgerð á gluggum Gerðar Helgadóttur í Skálholtsdómkirkju. Þá var
kynntur samstarfssamningur við Alta, ráðgjafarfyrirtæki vegna uppbyggingar í Skálholti