Gerðir kirkjuþings - 2018, Blaðsíða 24
24 25
Kirkjuráð samþykkir yfirmatsgerðina og felur lögmönnum sínum að ganga til samninga
um málið á grundvelli hennar. Þá var lagt fram erindið Hörgársveit, Glæsibær, aðalskipulag,
skipulagslýsing. Kirkjuráð gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna og tekur undir
álit kirkjugarðaráðs um hana, dags. 4. apríl 2018. Kirkjuráð bendir á að eðlilegt sé að
leita álits sóknarnefndar Möðruvallaklaustursóknar og kirkjugarðsstjórnar. Þá var lagt
fram erindið Langanesbyggð, Skeggjastaðir, ljósleiðaralagning. Kirkjuráð fellst á erindið
og veitir heimild til að Langanesbyggð leggi ljósleiðara um land kirkjumálasjóðs að
Skeggjastöðum. Kirkjuráð samþykkir jafnframt að óska eftir að fá ljósleiðarann tengdan við
fasteign sjóðsins að Skeggjastöðum, sbr. erindið. Þá var lagt fram erindi varðandi aðalfund
Veiðifélags Árnesinga. Kirkjuráð samþykkir að fela Drífu Kristjánsdóttur formanni
Tungufljótsdeildar Veiðifélags Árnesinga umboð til að fara með atkvæði Kirkjumálasjóðs
í veiðifélaginu vegna jarðanna Mosfells og Skálholts á aðalfundi veiðifélagsins 2018.
Að lokum var lagt fram erindi fráfarandi sóknarprests að Laufási í Eyjafirði varðandi
tímabundna nýtingu útihúsa í námsleyfi sínu. Kirkjuráð samþykkir erindið enda gangi
það ekki gegn hagsmunum kirkjumálasjóðs.
(2)77. fundur kirkjuráðs sem haldinn var hinn 27. apríl 2018 var aukafundur og þar engin
fasteignamál á dagskrá.
Á (2)78. fundi hinn 15. maí 2018 var samþykkt tillaga fasteignahóps um viðhald
prestbústaðarins að Holti í Önundarfirði. Þá var jafnframt staðfest umboð sóknarprestsins
í Vopnafirði til setu í stjórn veiðifélags Hofsár. Einnig var samþykkt afgreiðsla starfshópsins
varðandi breytingar á lóðamörkum í Reykholti og ábúanda falið að leiða málið til lykta.
Lagt var fram erindi varðandi leyfi til fornleifarannsókna á jörðinni Odda á Rangárvöllum
og leyfið samþykkt. Að lokum var lagt fyrir málið Valþjófsstaður, línulögn. Málið hafði
áður verið á dagskrá 276. fundar og þar samþykkt. Fram hafði komið nýtt og hærra tilboð
um bætur vegna línulagnar um jörðina. Kirkjuráð samþykkir hið breytta tilboð og áritar
það til samþykkis landeiganda. Kirkjuráð felur framkvæmdastjóra að undirrita önnur
skjöl málsins.
Á (2)79. fundi hinn 12. júní 2018 var tekið fyrir málefni er varðar hlunnindi
prestssetursjarða, tillaga fasteignahóps þess efnis að hópnum verði falið að leggja fram
hugmyndir, komi ekki fram tillögur frá nefndinni sem skipuð var árið 2016 svo kirkjuráð
geti lagt málið fyrir komandi kirkjuþing 2018. Tillaga starfshópsins samþykkt. Að lokum
samþykkti kirkjuráð erindi Sveitarfélagsins Skagafjarðar varðandi lagningu ljósleiðara að
Mælifelli.
Á (2)80. fundi hinn 21. ágúst 2018 var tekin fyrir fundargerð kirkjustarfs- og fasteignahóps
kirkjuráðs, dags. 20. ágúst 2018. Tekið fyrir erindi leigjanda kirkjumálasjóðs varðandi
viðhald Valþjófsstaðar. Kirkjuráð samþykkir tillögu starfshópsins um að honum
verði heimilaðar lagfæringar á útihúsum á eigin kostnað. Tekið fyrir kauptilboð
kirkjumálasjóðs í fasteignina Sunnuvegur 4 á Þórshöfn. Kirkjuráð staðfestir kauptilboðið
og felur framkvæmdastjóra að ganga frá kaupunum. Tekið fyrir málið Reykholtsskógar,
samningur um leigu lands og ræktun skóga. Samningurinn lagður fram. Kirkjuráð
staðfestir samninginn og fagnar verkefninu.