Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 31
31
1. mál 2018 Fskj. B
Kirkjuhúsið – Skálholtsútgáfan, skýrsla 9. febrúar 2018.
TILGANGUR OG MARKMIÐ SAMKVÆMT SKIPULAGSSKRÁ
Skálholtsútgáfan er útgáfufélag þjóðkirkjunnar. Til hennar var stofnað af dr. Sigurbirni
Einarssyni, biskupi. Hún skal annast útgáfu á fræðsluefni til notkunar í kirkjustarfi og að
gefa út lesefni, tónlistarefni og annað efni fyrir almenning þar sem kristin sjónarmið eru
skýrð.
Um Kirkjuhúsið segir að það skuli annast dreifingu og sölu fræðsluefnis og tilheyrandi
þjónustu við kirkjulega aðila, selja muni og gjafavöru á kristnum grunni.
Markmið útgáfufélagsins taka mið af skipulagsskránni og tengingu við íslenskt samfélag á
hverjum tíma, einnig fræðslustefnu og fjölskyldustefnu þjóðkirkjunnar.
YFIRLIT STARFSEMI
2008-2018 Tímabil samdráttar og breytinga – en einnig sóknar
Árin fyrir 2008 var Kirkjuhúsið – Skálholtsúgáfan á margan hátt blómstrandi. Hún
byggðist hægt og sígandi upp með skýrum markmiðum og góðri samvinnu við fræðslusvið
biskupsstofu. Öllu sem við gáfum út var vel tekið. Kirkjuhúsið sem þjónustumiðstöð
byggðist upp og verkefnin mörg. Verslunin var þekkt og vel sótt. Kirkjuhúsið var til dæmis
miðstöð sölu á biblíum og sálmabókum, kertum og öðru fyrir fermingar. Útgáfufélagið
var öflugt og mikil efnisgerð í gangi. Margs konar fræðsluefni og bækur gefnar út, tónlist
og sönghefti og allt notað í kirkjum á heimilum og í samstarfi kirkna og skóla, það var
eftirspurn eftir barnabókum, CD diskum með barnatónlist, alls konar efni af ýmsum toga.
Góð kynning kallaði á viðbrögð og það tók aðeins færri ár að borga upp kostnað við
útgáfu, á litlum íslenskum markaði.
Svo kom árið 2008, það haust var mikil útgáfa en andrúmsloftið rafmagnað. Það var
eins og að ganga á vegg gagnvart okkar helstu viðskiptavinum, kirkjusóknum á Íslandi.
Allir héldu að sér höndum. Þetta var vinnuumhverfi á Íslandi í árslok 2008.
Árið 2009 var undarlegt. Þá hafði starfsfólki hjá okkur fækkað um einn (okt. 2008)
þannig að við gátum brugðist við miklum samdrætti. Í árslok 2010 gáfum við út fyrsta
DVD diskinn Daginn í dag, það var frábær ráðstöfun. Margvísleg önnur útgáfa sá þá
dagsins ljós. Árin eftir það voru mögnuð! Rannveig Sigurbjörnsdóttir treysti okkur fyrir
nokkrum verkefnum tengdum Sigurbirni biskupi, tvo diska í viðbót af DVD efni Daginn
í dag fyrir börn gáfum við út, einnig nýtt fermingarefni Con Dios og einnig Sálmar 2013.
Þar tókum við að okkur útgáfuna gegn engu mótframlagi, bókin seld á kr. 500,- til sókna.
Átta mánaða vinna við útvegun leyfa með öðrum verkefnum.
Í stuttu máli sóttum við fram og gáfum ekkert eftir.
Á þessu tímabili sóttum við fram af kappi. Það mætti segja að þarna hafi frekar
ráðið löngun til að gera vel og uppfylla fagnaðarerindið á erfiðum tíma í sögu þjóðar og
kirkju. Við vorum á sama tíma að missa tekjur af föstum verkefnum vegna samdráttar á