Gerðir kirkjuþings - 2018, Blaðsíða 27
27
framhaldsfundi kirkjuþings sem kallaði á aðgerðir af hálfu ráðsins, en það var 21. mál,
Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007,
með síðari breytingum. Málið var samþykkt með þingskjali 58. Skrifstofa kirkjuráðs sendi
samþykktina til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda eftir að hún hafði verið árituð af forseta
kirkjuþings. Þá var fjallað um kirkjuþing 2018 og ályktaði kirkjuráð að kirkjuþing 2018
skyldi halda í Vídalínskirkju og hefjast laugardaginn 3. nóvember. Þá staðfesti kirkjuráð
skipan uppstillingarnefndar þjóðkirkjunnar, sbr. kjör kirkjuþings 2017 til hennar. Bókað var
að kirkjuráð hefði móttekið fundargerð nefndarinnar, dags. 31. mars 2018 og fundargerð,
dags. 8. apríl 2018, þar sem tilnefndir eru frambjóðendur til kirkjuþings. Að lokum var
lögð fram tilkynning um ákvörðun kjörstjórnar þjóðkirkjunnar, þar sem tilgreindar eru
dagsetningar vegna seinni umferðar í kosningu vígslubiskups í Skálholti. Bókað var að
kirkjuráð gerði ekki athugasemdir við ákvörðun kjörstjórnarinnar.
Á (2)77. fundi hinn 27. apríl 2018, sem var aukafundur, var til umfjöllunar erindi kjörstjórnar
þjóðkirkjunnar varðandi framlengingu á tíma kosningar til embættis vígslubiskups
í Skálholti. Vegna mistaka sem hefðu orðið í póstdreifingu hjá Íslandspósti ohf. væri
óhjákvæmilegt að framlengja þann tíma sem kosningin stendur til 14. maí nk. Greint var
frá því áliti kjörstjórnar þjóðkirkjunnar að bregðast þurfi skjótt við og birta auglýsingu um
þessa breytingu og því er farið fram á samþykki kirkjuráðs á þessari ákvörðun, sbr. 2. mgr.
7. gr. starfsreglnanna. Kirkjuráð samþykkir erindi kjörstjórnar þjóðkirkjunnar.
Á (2)78. fundi hinn 15. maí 2018 ályktaði kirkjuráð að skipa sr. Örnu Grétarsdóttur
formann stjórnar Skálholtsútgáfunnar.
á (2)79. fundi hinn 12. júní 2018 voru lögð fram erindisbréf framkvæmdastjóra kirkjuráðs
og starfslýsing lögfræðings kirkjuþings og kirkjuráðs. Bókað var að kirkjuráð hefði
gert nokkrar breytingar á texta skjalanna og samþykkt þau svo breytt. Samkvæmt 3. gr.
gildandi starfsreglna um kirkjuráð nr. 817/2000, með síðari breytingum, skal erindisbréf
framkvæmdastjóra ráðsins kynnt á kirkjuþingi. Erindisbréfið ásamt starfslýsingu
lögfræðings kirkjuþings og kirkjuráðs eru fylgiskjöl með skýrslu þessari.
Á (2)81. fundi hinn 20. september kynnti lögfræðingur kirkjuþings og kirkjuráðs frumvarp
til starfsreglna um breytingu á ýmsum starfsreglum þjóðkirkjunnar. Málinu var vísað til
lagahóps kirkjuráðs.
Í skýrslu þessari hefur verið leitast við að greina frá öllum þeim málum sem tekin voru á
dagskrá kirkjuráðs á kirkjuþingsárinu og afgreidd voru með ákvörðun eða skuldbindandi
samþykkt. Um heimild er vitnað til fundargerða kirkjuráðs eins og þær eru birtar á vefsíðu
kirkjuráðs.
Reykjavík í nóvember 2016
Kirkjuráð
Agnes M. Sigurðardóttir, forseti kirkjuráðs
Elínborg Gísladóttir Gísli Gunnarsson
Stefán Magnússon Svana Helen Björnsdóttir