Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 30

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 30
30 31 Erindisbréf fyrir framkvæmdastjóra kirkjuráðs Kirkjuráð er fjölskipað stjórnvald. Um starfsemi þess fer að lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum. Kirkjuþing setur starfsreglur um kirkjuráð. Samkvæmt þeim ræður kirkjuráð framkvæmdastjóra og setur honum erindisbréf sem skal kynnt á kirkjuþingi. Framkvæmdastjóri framfylgir ákvörðunum ráðsins og hefur umsjón og eftirlit með störfum og verkefnum á vegum þess skv. nánari fyrirmælum ráðsins. Framkvæmdastjóri er næsti yfirmaður starfsmanna kirkjuráðs. Framkvæmdastjóri fer með fyrirsvar ráðsins milli funda í samráði við forseta ráðsins. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á, og hefur eftirlit með að stjórnsýsla kirkjuráðs sé í samræmi við lög og starfsreglur. Framkvæmdastjóri annast samskipti kirkjuráðs við ráðuneyti, Alþingi, Ríkisendurskoðun, aðra opinbera aðila og aðra þá sem hafa þarf samskipti við eða æskja samskipta við kirkjuráð, eftir atvikum í samráði við lögfræðing kirkjuþings og skrifstofustjóra biskupsstofu. Hann veitir upplýsingar um ráðið og tekur á móti erindum sem berast ráðinu. Hann undirbýr fundi ráðsins og semur dagskrá þeirra í samráði við forseta ráðsins. Hann undirbýr jafnframt aðra fundi á vegum kirkjuráðs eða með þátttöku ráðsins, situr slíka fundi og gerir kirkjuráði grein fyrir þeim. Framkvæmdastjóri skipuleggur og undirbýr fundi fyrir samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar. Framkvæmdastjóri situr í þeim nefndum, stjórnum og ráðum sem kirkjuráð ákveður og tekst á hendur önnur tilfallandi verkefni eftir nánari ákvörðun kirkjuráðs. Framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón með stjórnsýslu og rekstri fasteigna kirkjumálasjóðs samkvæmt starfsreglum og stefnumótun kirkjuþings, ákvörðunum kirkjuráðs og samþykktri fjárhags- og framkvæmda- áætlun. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á fjármálastjórn kirkjuráðs, þ.m.t. gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar fyrir sjóði og stofnanir sem heyra undir kirkjuráð í samvinnu við fjármálastjóra biskupsstofu. Hann hefur umsjón með úthlutunum úr sjóðum sem heyra undir kirkjuráð. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á og hefur eftirlit með því að ráðstöfun fjármuna sé ætíð með þeim hætti að gætt sé hagkvæmni í hvívetna og standist allar kröfur sem Ríkisendurskoðun gerir til meðferðar á opinberu fé. Hann gerir tillögur um hagræðingu í rekstri, eftir því sem tilefni gefast til. Verkefni framkvæmdastjóra á sviði fjármála skal hann vinna í samráði við fjármálastjóra biskupsstofu eftir því sem við á. 1. mál 2018 Fskj. A
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.