Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 33

Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 33
33 – Skálholtsútgáfan þarf að standa undir sér og fjármagnar sjálf sín útgáfuverkefni af rekstri en getur sótt um styrk til útgáfuverkefna. SKÁLHOLTSÚTGÁFAN Skálholtsútgáfan, útgáfufélag þjóðkirkjunnar er rekstraraðili verslunarinnar Kirkjuhúsið á jarðhæð biskupsstofu á Laugavegi 31. Gegnum árin hefur þessi stofnun þjóðkirkjunnar þróast í það að vera ekki aðeins útgáfufélag og verslun á kristnum grunni heldur líka félagsmiðstöð fyrir starfsfólk kirkjunnar og þá ekki síst fyrir presta, sem á leið um og á erindi við biskupsstofu. Hér er rætt um starfið og ýmsar leiðir og lausnir fundnar um leið og nýtt fræðsluefni er kynnt yfir kaffibolla. Auðvitað eru sagðar sögur af skemmtilegu fólki og ótrúlegum atburðum á kirkjuvettvangi. Fólk á leið til funda á biskupsstofu rennur einnig í gegn í stríðum straumum, gegnum lagerinn, sérstaklega yfir vetrartímann og vekur gleði hjá starfsfólki hér. Auðvitað er þetta mikið aukaálag og í því sambandi höfum við margoft bent á möguleika þess að sameina verslun og móttöku biskupsstofu og kaffihús í andyri. Útgáfa á vegum Skálholtsútgáfunnar er heilmikil ef miðað er við starfsmannafjölda, við erum tvær sem sinnum þjónustu, verslun og útgáfu (og kynningu!) en fáum margskonar aðkeypta aðstoð við úrvinnslu og ritstjórn útgáfuverkefna, einnig ómetanlega aðstoð frá stjórn og útgáfuráði okkar. Við sinnum útgáfu fyrir innra starf kirkjunnar. Mörg stór verkefni eru í vinnslu, þar má nefna ný skírnarkveðja sem jafnframt er minningabók barnsins frá fæðingu til fermingar og síðan er það Sálmabókarútgáfan 2018 í samstarfi við sálmabókarnefnd þjóðkirkjunnar, eins og áður var minnst á. Mikil samvinna hefur verið við fræðslusvið biskupsstofu þar sem Elín Elísabet Jóhannsdóttir hefur staðið vaktina og ekki síður við Sigfús og Hildi Björk frá áramótum 2018. Skálholtsútgáfan og fræðslusviðið eru tvær hliðar á sama peningi og er það góð ráðstöfun. Enda erum við að vinna sömu verkefni á sviði kirkjufræðslu. Öll verkefni á sviði kirkjufræðslu og útgáfu eru unnin saman og þannig hefur það alltaf verið. Á hverju ári stendur fræðslusvið biskupsstofu og Skálholtsútgáfan saman að kynningu á barnastarfi kirkjunnar. Hvert ár er útbúið myndband sem náð hafa mikilli útbreiðslu á samfélagsmiðlum. Stuttmyndir hafa einnig verið framleiddar fyrir barnastarf kirkjunnar, auk fjölbreytts efnis fyrir sunnudagaskólann. Fundað er með fræðslusviði nánast vikulega. Skálholtsútgáfan vill vera framsækin, prógressív kristin útgáfa sem hlustar á samtímann. Hún vill styðja forelda í uppeldishlutverki sínu í flókinni veröld, gefa út efni sem svarar spurningum lífsins og mæta þörfum fólks sem vill fræðast um kristna trú, í mótbyr og meðbyr lífsins, gefa út stuðningsefni til að nota á erfiðum tímum og á tímamótum. Styðja kirkjurnar í sínu fræðsluhlutverki – efni fyrir barnastarf ýmis konar, fermingarstarf, skírnarfræðsluefni, barnabiblíur, svo eitthvað sé nefnt. Útgefið efni – (fjölda titla/verkefna) er gríðarmikið. Í dag telst okkur til að útgefnir titlar séu um 400. Bækur á kristnum grunni af ýmsum toga (127) – Fjársjóðir, plaköt og ýmislegt annað efni (25). Barnabækur og DVD efni fyrir börn (74). Fræðsluefni fyrir börn og unglinga (62). Tónlist, kórbækur, CD, sálmabókarútgáfa (55). Fermingarefni (18) auk þess ýmislegt annað efni árlegt eins og barnastarfsefni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.