Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 41

Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 41
41 Á sama tíma og lausafjárhlutfallið lækkar, hækkar eigin fjárhlutfallið úr 0,89 í 0,9. Það ætti að segja okkur að staðan væri að styrkjast en hækkun á eigin fé er vegna fast eigna mats hækk- unar fasteigna sem þarf ekki að endurspegla raunverulega aukningu eigna, sér stak lega í ljósi þess að margar fasteignir eru í brýnni þörf fyrir viðhald sem ekki hefur verið hægt að sinna. Kristnisjóður Tekjur Kristnisjóðs eru hluti af kirkjujarðasamkomulaginu og eiga að jafngilda 15 prestslaunum. Rekstur Kristnisjóðs skilaði tæpum 10 millj. kr. í tekjuafgang. Tekjur sjóðsins voru 129,5 millj. kr. sem er lækkun frá fyrra ári. Veittir styrkir úr sjóðnum voru 67,7 millj. kr. allt frá 300 þús. kr. til 11,3 millj. kr. Rekstur Kristnisjóðs var á tímabili sameinaður rekstri kirkjumálasjóðs, því var breytt á árinu 2016 en algjör bókhaldslegur aðskilnaður á milli sjóða varð ekki fyrr en árið 2017. Launakostnaður Kristnisjóðs er innheimtur frá biskupsstofu með kostnaðarhlutdeild en starfsmenn sjóðsins fá laun sín greidd með launakeyrslu fjársýslu ríkisins. Allar eignir Kristnisjóðs eru veltufjármunir. Jöfnunarsjóður sókna Tekjur Jöfnunarsjóðs sókna eru 18,5% af sóknargjöldum til þjóðkirkjusafnaða, tekjurnar eru viðbót við önnur sóknargjöld sem ríkið greiðir sóknum landsins. Jöfnunarsjóður fékk endurgreitt framlag frá biskupsstofu að fjárhæð 86 millj. kr. Tekjuafgangur Jöfnunarsjóðs var 122,9 millj. kr. sem leggjast við sjóð til úthlutunar styrkja. Rekstrarkostnaður Jöfnunarsjóðs var 17,4 millj. kr. en önnur gjöld voru úthlutaðir styrkir. Allar eignir Jöfnunarsjóðs eru veltufjármunir. Rekstraráætlanir 2019 Biskupsstofa Gert er ráð fyrir að rekstur biskupsstofu skili um 26 millj. kr. afgangi í lok árs en fjárfestingaþörf er áætluð um 14 millj.kr. Er þar eingöngu um endurnýjun á tölvubúnaði og hönnunarkostnað vegna þjónustuvefs kirkjunnar að ræða. Launakostnaður skrifstofu hækkar milli ára vegna komandi kjarasamninga og ráðninga nýrra starfsmanna, ráðnir hafa verið upplýsingafulltrúi og persónuverndarfulltrúi, áætlað er að ráða jafnréttisfulltrúa á komandi ári. Gerður hefur verið nýr leigusamningur við kirkjumálasjóð sem tók gildi 1. janúar 2018 vegna húsaleigu fyrir Laugaveg 31, húsaleigan hækkar verulega vegna þessa. Lögfræðikostnaður er hækkaður í áætlun vegna yfirstandandi mála. Biskupsstofa er að taka í gagnið nýtt bókhaldskerfi fyrir aðrar stofnanir og sjóði til að geta veitt betri þjónustu en verið hefur, kostnaður vegna þess hefur verið áætlaður á þjálfun starfsmanna og tölvumál. Aðrir liðir hækka vegna verðlagsbreytinga.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.