Gerðir kirkjuþings - 2018, Síða 83
83
15. gr.
Embættisbústaðir verða lagðir til skv. 1. og 2. gr. fasteignastefnunnar.
Kaup, sala og leiga.
16. gr.
Kirkjuþing skal samþykkja kaup og sölu á fasteignum, þ.m.t. spildur/lóðir úr jörðum
kirkjumálasjóðs, svo og leigusamninga sem gilda lengur eða eru með lengri uppsagnarfresti
en fimm ár.
Að jafnaði er óheimilt að afmarka, stofna, leigja eða selja spildu/lóð á jörð í eigu
kirkjumálasjóðs nema á jaðri (merkjum) jarðarinnar. Skal þess enn fremur gætt að
staðsetning raski ekki friðhelgi heimilis, þ.e. prestsbústaðar eða annars íbúðarhúss á
viðkomandi jörð.
17. gr.
Við kaup á fasteign skal að jafnaði auglýst eftir eign, nema sérstakar aðstæður gefi tilefni
til annars.
18. gr.
Eigi skal kaupa fasteignir á jörðum kirkjumálasjóðs eða annað sem þeim tengist nema við
ábúðarlok. Nú er kaupskylda kirkjumálasjóðs ekki fyrir hendi og skal þá eigi heimilt að
kaupa eignir nema brýna nauðsyn þyki bera til.
19. gr.
Fasteignir kirkjumálasjóðs, sem seldar eru, skulu auglýstar til sölu og öllum gefinn kostur
á að bjóða í þær. Kirkjuþing getur samþykkt undantekningar frá þessu í einstökum
tilvikum. Þess skal ávallt gætt að tryggja viðhlítandi landsréttindi kirkna og kirkjugarða ef
við á, áður en sala fer fram.
Nýbyggingar.
20. gr.
Við nýbyggingar fasteigna á vegum þjóðkirkjunnar skal að jafnaði kanna hvort efna skuli
til samkeppni um hönnun, einkum ef um mannvirki á prestssetursjörðum er að ræða.
Landbúnaðarstarfsemi á jörðum í eigu þjóðkirkjunnar.
21. gr.
Þjóðkirkjan fjárfestir ekki í uppbyggingu landbúnaðarstarfsemi á jörðum í eigu
kirkjumálasjóðs, nema því aðeins að brýna nauðsyn beri til, lög mæli fyrir um, eða telja
megi slíkt fjárhagslega hagkvæmt.
22. gr.
Framleiðsluréttur á jörðum skal að jafnaði seldur við lok ábúðar í samræmi við nánari
reglur þar að lútandi.