Gerðir kirkjuþings - 2018, Page 91
91
B 3) Fræðsluefni fyrir eldri borgara
Svipað og í B 2) en aukin áhersla á samverur og helgihald.
Samvera með máltíð sem dregur úr einmannaleika.
Góð umfjöllun um Biblíutexta bæði í fyrirlestrum og námskeiðum.
Söfnuðir leggi áherslu á að skapa umhverfi þar sem eldra fólk getur deilt þekkingu sinni
og lífsreynslu með öðrum.
Heimsóknir milli sókna og prestakalla.
C Símenntun starfsfólks
Markmið:
Að allir sem koma til starfa eða þjónustu á vettvangi þjóðkirkjunnar fái viðeigandi
fræðslu og þjálfun.
Sérmenntað starfsfólk innan kirkjunnar eigi reglulega kost á sí- og endurmenntun til
að efla og viðhalda starfshæfni og verjast kulnun í starfi.
Að öllum er sinna sjálfboðnu starfi innan kirkjunnar sé boðið að sækja námskeið er efli
þau í hlutverki sínu og veiti fræðslu um grundvöll og starfsemi kirkjunnar. Námskeið
sem minna á að við erum hluti af stærri heild kristinna einstaklinga.
C 1) Fyrir presta og annað starfsfólk þjóðkirkjunnar
Símenntun starfsfólks í samvinnu við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla
Íslands, Skálholtsskóla og aðrar menntastofnanir.
Fræðsla um eðli og afleiðingar kynferðisbrota og þjálfun um æskileg viðbrögð þegar
greint er frá kynferðisbroti.
Fræðsla um sálgæslu í samvinnu við endurmenntun Háskóla Íslands.
Símenntun um prédikunarfræði.
Guðfræði- og djáknanemum sé tryggð þjálfun í safnaðarstarfi.
Reglulega sé kannað meðal presta og starfsfólks hvaða atriði þau telja að gott sé að fá
fræðslu um.
C 2) Fyrir starfsfólk safnaða: Djákna, organista, kirkjuverði, æskulýðsstarfsfólk o.fl.
Starfsfólki þjóðkirkjunnar, launuðu sem ólaunuðu, sé boðið upp á grunnfræðslu um
kristna trú og miðlun hennar, svo og mannleg samskipti og um sálgæslu. Námskeið séu
löguð að hlutverki ólíkra starfshópa.
Fræðsla um eðli og afleiðingar kynferðisbrota og þjálfun viðbragða þegar greint er
frá kynferðisbroti. Sérstök námskeið fyrir starfsfólk, s.s. meðhjálpara/kirkjuverði/
hringjara/tónlistarfólk/organista.
C 3) Fyrir sjálfboðaliða í kirkjustarfi
Námskeið fyrir sóknarnefndir um skyldur og ábyrgð þeirra.
Námskeið um kirkjuna og kristna trú.
Uppbyggjandi námskeið fyrir starfsfólk og ýmsir viðburðir til að viðhalda starfsgleði
og sýna sjálfboðaliðum þakklæti fyrir þeirra framlag.