Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 96

Gerðir kirkjuþings - 2018, Side 96
96 97 □Mál sem heyra undir teymi þjóðkirkjunnar eru eftirfarandi: a) Taka við tilkynningum þeirra sem telja að brotið hafi verið á sér samkvæmt starfsreglum þessum. Leiðbeina viðkomandi um lagaleg úrræði og úrræði að öðru leyti, beita ákvæðum starfsreglnanna til úrlausnar máls, ef óskað er, og fylgja því þá eftir. Til lagalegra úrræða telst aðstoð við að kæra mál til lögreglu og/eða leggja mál fyrir úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar, sbr. 12. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum. Hvort tveggja er háð ósk viðkomandi. b) Taka til umfjöllunar mál sem úrskurðar- eða áfrýjunarnefndir þjóðkirkjunnar eða biskup Íslands kunna að vísa til teymisins og veita þeim þá ráðgjöf í slíkum málum. c) Leiðbeina viðkomandi skv. a-lið, ef teymið telur rétt að hann leiti sér aðstoðar fagaðila utan teymisins, og sjá til þess að það samband komist á, ef óskað er. Sama gildir ef viðkomandi óskar eftir talsmanni við meðferð máls. d) Komi til aðstoðar fagaðila, sbr. c-lið fyrri málsl. 2. mgr. 6. gr. starfsreglnanna er heimilt að aðstoðin nái til fjölskyldu viðkomandi og annarra innan kirkjunnar er málið varðar. e) Verði mál viðkomandi skv. a-lið tekið til úrlausnar skal teymið afhenda honum rökstudda niðurstöðu sína. Enn fremur skal teymið afhenda biskupi Íslands niðurstöðuna, þó þannig að upplýsingar verði gerðar ópersónugreinanlegar, ef viðkomandi fer þess á leit eða teymið telur það rétt. f) Afhenda biskupi Íslands árlega skýrslu um starfsemi teymisins og koma með ábendingar ef teymið telur að breyta þurfi starfsreglum þessum eða stefnu þjóðkirkjunnar, sbr. 1. mgr. 6. gr. 7. gr. Fræðsla og forvarnir. ■Teymi þjóðkirkjunnar hefur umsjón með eftirfarandi fræðslu og forvörnum innan þjóðkirkjunnar í samráði við yfirstjórn kirkjunnar: a) Upplýsastarfsfólkkirkjunnarumstefnuþjóðkirkjunnar,verklagogverkferla,sbr. 1. mgr. 6. gr., og hvernig þessari stefnu verði beitt við úrlausn mála sem falla undir starfsreglur þessar. b) Leiðbeina og fræða að aukisérstaklega þá sems tarfa við yfirstjórn kirkjunnar um þau atriði er falla undir a-lið þessarar greinar. c) Vera biskupi Íslands og öðrum kirkjuyfirvöldum til ráðgjafar um mál sem heyra undir starfsreglur þessar. d) Stuðla að forvörnum og fræðslu um þá röngu háttsemi og ætluð brot sem eiga undir stefnu þjóðkirkjunnar, sbr. 1. mgr. 6. gr., og starfsreglur þessar í samvinnu við fræðslusvið biskupsstofu. □Við fræðslu og forvarnir, skv. 1. mgr., er teyminu heimilt að leita til sérfróðra fagaðila við beitingu þessarar greinar. Skal það þá gert með rökstuddri beiðni til kirkjuráðs, sem ákveður greiðslu þessa kostnaðar, sbr. meginreglu í 10. gr. svo og 15. gr. starfsreglnanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.