Skólavarðan - 2020, Síða 10
10 SKÓLAVARÐAN HAUST 2020
KENNARASAMBANDIÐ / Fréttir
Nýr valkostur í
kennaranámi
Alls hófu 540 nemendur nám, í haust,
á nýju MT-námsleiðunum (Master of
Teaching) fyrir verðandi leikskóla-,
grunnskóla- og framhaldsskólakennara
við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Í þessum hópi eru um 200 nemendur
sem voru í M.Ed námi en óskuðu eftir
að færa sig yfir í MT-námið. Um sjötíu
nýnemar skráðu sig til náms í MT við
kennaradeild Háskólans á Akureyri
nú í haust og þá mun stór hópur sem
stundaði M.Ed nám í fyrravetur hafa
fært sig yfir í MT-námsleiðina.
Þá berast þær fregnir af Mennta-
vísindasviði HÍ að þó nokkrir hafi
snúið aftur í leikskóla- og grunnskóla-
kennaranám eftir hlé. Þessi hópur
hyggst ljúka MT-gráðu.
En hvað felst í MT-gráðu? Þessi
nýja námsleið er ein af þeim breyting-
um sem var innleidd þegar ný lög um
menntun, hæfni og ráðningu kennara
og skólastjórnenda við leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla tóku
gildi árið 2019.
Þá var það gert mögulegt að hægt
væri að ljúka kennaranámi með því að
taka kennslufræðileg námskeið í stað
þess að skrifa 30 eininga rannsóknar-
ritgerð. Samkvæmt lögum fá þessir
nemendur gráðuna MT en þess ber að
geta að þessi prófgráða veitir ekki rétt
til að hefja doktorsnám.
MT-námsleiðin býður nemendum
að sérhæfa sig meira en áður; svo sem
í kennslu yngri barna eða ákveðinni
námsgrein. MT-gráðan uppfyllir
skilyrði fyrir því að fá leyfisbréf til að
nota starfsheitið kennari.
Ljóst er að þessi nýja námsleið fer
vel af stað ef horft er á aðsókn í Háskól-
anum á Akureyri og Háskóla Íslands.
MT-gráða í kennaranámi
540
hófu nám á
nýjum MT-
námsleiðum í
haust.
Mynd: Kristinn Ingvarsson, Háskóla Íslands.
Námskeið að
hausti falla
niður
Ekki verður efnt til námskeiða fyrir
trúnaðarmenn KÍ í haust eins og venja
hefur verið mörg undanfarin ár. Ástæð-
an er heimsfaraldur kórónuveirunnar.
Þess í stað verður efni fyrir trún-
aðarmenn yfirfarið og betrumbætt á vef
KÍ. Standa vonir til að þær umbætur
nýtist ekki bara trúnaðarmönnum
heldur öllum félagsmönnum.
Merkileg
skýrsla kynnt
Kjaratölfræðinefnd kynnti sína fyrstu
skýrslu, Samningalotan 2019-2020,
á dögunum. Fjallað er um efnahags-
mál, umgjörð kjarasamninga, gerða
kjarasamninga í yfirstandandi lotu og
mælingar Hagstofunnar á launaþróun.
Aðild að kjaratölfræðinefnd eiga
forsætisráðuneyti, félagsmálaráðuneyti,
fjármála- og efnahagsráðuneyti, ASÍ,
BHM, BSRB, KÍ, Samband íslenskra
sveitarfélaga, SA og Hagstofa Íslands.
Fulltrúi KÍ er Oddur S. Jakobsson
hagfræðingur. Auðvelt er að nálgast
skýrsluna á vef KÍ.
Aukaþing í
nóvember
Kennarasamband Íslands hefur boðað
til aukaþings sem fram fer dagana 26.
og 27. nóvember.
Sökum óvissu í þjóðfélaginu vegna
COVID-19 verður aukaþingið rafrænt
og þingfulltrúar munu taka þátt í
störfum þingsins á netinu. Ekki verður
um staðbundna viðburði að ræða.
Ástæða þess að efnt er til auka-
þings er samþykkt frá 7. þingi KÍ sem
fram fór í apríl 2018. „Boða skal til
aukaþings árið 2020 sem hefur heimild
til lagabreytinga sem geta öðlast gildi
skv. ákvörðun aukaþingsins,“ segir í
bráðabirgðaákvæði síðasta þings.
Þingsetning verður klukkan 13
fimmtudaginn 26. nóvember og er
áformað að þinginu ljúki klukkan 17
daginn eftir, eða þann 27. nóvember.
Aukaþingið verður kynnt nánar á
vef KÍ þegar nær dregur.