Skólavarðan - 2020, Side 42
42 SKÓLAVARÐAN HAUST 2020
MANNRÉTTINDI / UNESCO-skólar
friðar, jarðarinnar og vísinda. Skól-
arnir eiga jafnframt að standa árlega
fyrir einum viðburði sem tengist
Sameinuðu þjóðunum. Þetta geta
verið þemadagar eða viðburðir sem
tengjast gildum Sameinuðu þjóðanna
eða heimsmarkmiðunum. Á hverju
ári skila síðan skólarnir yfirliti yfir
þau verkefni sem skólinn hefur sinnt
innan vettvangs skólanetsins. Félag
Sameinuðu þjóðanna aðstoðar skóla í
umsóknarferlinu og veitir ráðgjöf við
innleiðingu verkefnisins.“
Mikilvæg fræðsla
Kristrún, sem er sjálf kennari, er með
M.Ed. gráðu í náms- og kennslufræði
frá Háskóla Íslands. Lokaritgerðin
hennar fjallaði um mannréttinda-
kennslu í grunnskólum. Hún er einnig
með B.A. gráðu í blaðamennsku og
stjórnmálafræði frá Metropolitan
State University of Denver. „Ég hef
starfað sem grunnskólakennari frá
árinu 2010 og hef lengi haft áhuga
á mannréttindum. Ég hef ávallt lagt
mikla áherslu á mannréttindi í minni
kennslu og hef kennt sérstaka áfanga
um mannréttindi, lýðræði, jafnrétti
og gagnrýna hugsun.“ Kristrún segir
mikilvægt að nemendur fræðist um
mannréttindi og að þeir séu meðvitaðir
um gildi þeirra. Að þeir þekki og skilji
lýðræði, jafnrétti, samkennd, sam-
vinnu og gagnrýna hugsun. „Skólinn
sem menntastofnun gegnir veigamiklu
hlutverki í uppeldi, námi og þroska
barna. Mannréttindi eru ekki sjálfsögð
og því verður að standa vörð um þau
og varðveita það sem áunnist hefur.
Margir skólar eru að gera góða hluti
í að notast við fjölbreyttar kennslu-
aðferðir og efla þar með félagsfærni
nemenda. Í kjölfarið hafa nemendur
tekið meiri þátt í kennslustundum
sem er auðvitað jákvætt og gott. Það
er mikilvægt að vekja nemendur til
umhugsunar og kalla eftir umræðum í
skólastofunni.“
Heimsins stærsta kennslustund
Kristrún segir ábyrgðarhlutverk
núverandi kynslóðar gagnvart komandi
kynslóðum vera mikið og þar komi
hlutverk skólans sterkt inn í. „Mik-
ilvægt er að heyra hvað nemendur
hafa fram að færa og hvaða skoðanir
þeir hafa á málum. Grundvallarþættir
Barnasáttmálans eru jafnrétti, lýðræði
og mannréttindi. Þar er einnig kveðið
skýrt á um rétt barna til að tjá skoðanir
sínar og taka þátt í ákvarðanatöku er
varðar hagsmuni þeirra. Í verkefnum
tengdum heimsmarkmiðunum er m.a.
lögð áhersla á að fá börnin að borðinu í
ákvarðanatöku. Þau eru spurð álits.“
Heimsins stærsta kennslustund
(World Largest Lesson) er árlegt
átak sem snýr að kennslu á heims -
markmiðunum og er styrkt af UNESCO
og UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna). Að sögn Kristrúnar er
markmiðið að efla vitund nemenda og
hvetja þá til aðgerða er kemur að sjálf-
bærri þróun og heimsmarkmiðunum.
„Í ár verður lögð áhersla á loftslagsmál
og hvernig ungt fólk getur lagt sitt af
mörkum til að styðja við aðgerðir í
loftslagsmálum. Unga fólkið hefur verið
duglegt við að vekja athygli á þessum
málaflokki sem er gott mál. Umhverfis-
vernd skipar æ meiri sess í lífi fólks og
það vekur von.“
Að sögn Kristrúnar þarf að hlusta
meira á raddir barna. „Börn hafa svo
margt til málanna að leggja. Það er
alltof oft sem verið er að taka ákvarð-
anir um börn án þess að þau séu spurð.
Það er gaman að sjá hvernig börn sjá
heiminn fyrir sér, þau sjá hlutina oft
með öðrum augum en fullorðnir, jafnvel
nýja og athyglisverða fleti. Framtíðin
er þeirra og þá er ekki nema eðlilegt að
þau séu spurð álits.“
Kristrún segir starf kennara vera
mjög annasamt og að mörgu að hyggja.
„Eitt af því sem kennarar hafa ekki mik-
ið af er tími. Þess vegna er mikilvægt að
þeir hafi aðgang að skólaneti eins og því
sem UNESCO skólanetið býður upp á.
Auk þess hafa kennarar UNESCO- skóla
aðgang að sérstakri FB-síðu þar sem
þeir skiptast á skoðunum og deila m.a.
námsefni og góðum kennsluhugmynd-
um. Slíkt tengslanet er mikilvægt og
lærdómsríkt.“
Kristrún hvetur skóla endilega
til að hafa samband hafi þeir áhuga á
að gerast UNESCO- skólar. Netfang
Kristrúnar er kristrun@un.is.
Efst
Kristrún María
Heiðberg,
verkefnastjóri
UNESCO-skóla.
Til hægri
Eliza Reid forseta-
frú er verndari
Félags Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi.
Hún hefur tekið
þátt í vinnu að
bættum heimi með
nemendum.
Til vinstri
Verkefni um
heimsmarkmiðin
sem nemendur í
7. bekk Kelduskóla
Korpu unnu.