Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 4
Samvinna og samhugur í verki hefur einkennt undangengna mánuði. heilbrigðis-
starfsfólk víðs vegar um heiminn hefur deilt myndböndum á samfélagsmiðlum af
sér að dansa til að létta undir á þessum erfiðu tímum og gleyma sér í smástund. heil-
brigðisstarfsfólk hér á landi lét ekki sitt eir liggja og ölmörgum myndum og mynd-
skeiðum var deilt í ölmiðlum þar sem framlínufólkið okkar tók létt spor í hlífðar-
búnaði frá toppi til táar. Dansinn eykur bæði gleði, brýtur upp erfiða vinnudaga og
veitir auk þess orku til að komast í gegnum daginn. og dansandi heilbrigðisstarfsfólk
fékk okkur hin sem á horfðu til að brosa.
Vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks breyttist dag frá degi og allir lögðust á eitt
að læra og aðlagast nýjum verkferlum í áður óþekktum aðstæðum. Samlíking hrafn-
hildar Lilju jónsdóttur, sérfræðings í bráðahjúkrun á Sjúkrahúsinu á akureyri, um
hvernig starfsfólk dansaði sig í gegnum ferlið á svo einkar vel við tíðarandann. „Það
var bara eins og það hefði verið sett nýtt lag á fóninn sem allir lögðu sig fram við að
læra dansinn.“
og það var ekki bara dansað — heldur var lögð hjartalaga lykkja bæði í loi og á
sjó til þess að þakka heilbrigðisstarfsfólki í framlínunni fyrir þeirra störf. flugvél ice-
landair myndaði hjarta yfir höfuðborgarsvæðið á leið sinni til landsins með tugi tonna
af lækningavörum. herjólfur gerði slíkt hið sama á sjóferð sinni. Við hin tjölduðum
heima í stofu og sefuðum og hvöttum aðra til að gera slíkt hið sama með söng.
fyrsta tilfelli covid-19 greindist hér á landi í lok febrúar þessa árs en sá hinn sami
var jafnframt fyrstur til að leggjast inn á smitsjúkdómadeild a7 á Landspítala. inni-
liggjandi covid-sjúklingum ölgaði hratt og þegar mest var lágu 14 á deildinni. Sjúk-
lingum ölgaði á skömmum tíma og þuri því snör handtök en loka þuri deildinni
fyrir almennar innilagnir. Í þessu tölublaði rekur Berglind guðrún Chu, sérfræð-
ingur í hjúkrun smitsjúkdóma, sögu fyrstu covid-19 legudeildinnar í máli og
myndum og gerir grein fyrir helstu viðfangsefnum sem starfsfólk smitsjúkdóma-
deildarinnar þuri að takast á við.
„Seiglan, fagmennskan og samstaðan kom okkur í gegnum þetta,“ segir fjóla
Bjarnadóttir, deildarstjóri hjúkrunarheimilisins Bergs í Bolungarvík, en þriðjungur
íbúa fór í sóttkví og yfir 60 veiktust þegar heimsfaraldur covid-19 braut sér leið vestur
á firði. Það þuri því snör handtök en á tveimur dögum var hefðbundnu hjúkrunar-
heimili breytt í covid-deild. fjölmargir hjúkrunarfræðingar hafa staðið vaktina í
framlínunni undanfarið og þeir brugðust skjótt við í kjölfar þess að félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga auglýsti eir reynslusögum þeirra. Þessar sögur hafa verið birtar
á samfélagsmiðlum félagsins og stiklað á stóru í þessu blaði. kærar þakkir til ykkar.
Sérstakar þakkir til Þorkels Þorkelssonar, ljósmyndara Landspítala, sem hefur
fangað fólkið í framlínunni á filmu og fyrir að veita okkur leyfi til að nota þessa glæsi-
legu ljósmynd eir hann til að prýða forsíðuna.
4 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Helga Ólafs ritstjóri.
Ritstjóraspjall
Dansaðu maður, dansaðu!
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Suðurlandsbraut 22, 108 reykjavík
Sími 540 6405
netfang helga@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður helga Ólafs Fagritstjóri Margrét hrönn Svavarsdóttir Ritnefnd aðalbjörg
Stefanía helgadóttir, alda Ásgeirsdóttir, anna Ólafía Sigurðardóttir, hafdís Skúladóttir, hrund Scheving
Thorsteinsson, Margrét hrönn Svavarsdóttir, Sigurlaug anna Þorsteinsdóttir Blaðamaður Magnús hlynur
hreiðarsson Forsíðu mynd Þorkell Þorkelsson Ljósmyndir Þorkell Þorkelsson o.fl. Yfirlestur og próförk
ragnar hauksson Auglýsingar Erna Sigmundsdóttir sími 821 2755 Hönnun og umbrot Egill Baldurs son ehf.
Prentun Prenttækni ehf.
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu ritstjori@hjukrun.is. Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræði-
greina er að finna á vefsíðu tímaritsins.
iSSn 2298-7053