Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 39
„það sem ekki drepur mann, það herðir mann!“
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 39
Það sem gerðist í þessu öllu var að þeir sjúklingar sem við
erum hvað oftast að sinna komu ekki. Það var eins og allt
annað hafi lagst í dvala. Enda sýnir tölfræðin það þegar rýnt
er í hana fyrir fyrstu mánuði ársins. En nú erum við aftur farin
að fá slys, heila-, æða- og hjartaáföll til okkar. Deildinni hefur
verið breytt til baka að mestu í sitt fyrra horf. Síðastliðnar vikur
hafa einungis verið gerðar bráðaaðgerðir. Að vonum hafa
biðlistar vegna ákveðinna valaðgerða lengst en unnið verður
markvisst að því að vinna á því. Starfsemin á vöknun er komin
í fyrra horf og það er farið að gera valaðgerðir eins og áður,“
segir Ólöf.
Umfangsmikið starf
Ólöf segir að deildarstjóri hafi þríþætta ábyrgð, í fyrsta lagi fag-
lega ábyrgð, í öðru lagi starfsmannaábyrgð og í þriðja lagi fjár-
hagslega ábyrgð, þannig að starfið er umfangsmikið. Með
henni starfa þrír öflugir aðstoðardeildarstjóra en það eru þær
Elín Jónsdóttir, Sigríður Árna Gísladóttir og Þóra Gunnlaugs-
dóttir. „Við erum stjórnunarteymi deildarinnar. Þekking á sviði
stjórnunar og starfsemi sjúkrahúss er nauðsynleg og leiðtoga-
hæfileikar þurfa að vera til staðar. Það þarf að tryggja gæði
þeirrar þjónustu sem veitt er og tryggja öryggi sjúklinganna.
Það er meðal annars gert með því að viðhalda og þróa fagþekk-
ingu. Starfsfólk þarf að fá tækifæri til þess að eflast og þróast í
starfi sínu. Hlusta þarf á viðhorf starfsfólksins og hvað það
hefur fram að færa,“ segir Ólöf og bætir strax við. „Það þarf
líka að tryggja aðföng og að nauðsynleg tæki séu til staðar.
Stjórnun þarf að vera í samræmi við starfsmannastefnu spít-
alans. Gera þarf starfs- og verklýsingar og mannaflaáætlanir.
Það þarf að hvetja og hrósa starfsfólki og takast á við starfs-
mannamál sem upp koma. Fjárhagsáætlun er gerð í samráði
við rekstrarstjóra sviðsins og stöðug endurskoðun á sér stað á
þeirri áætlun. Starfið er umfangsmikið og á gjörgæsludeild er
sífellt verið að veita flóknari og sérhæfðari meðferð þar sem
þörf er á sérþekkingu meðal hjúkrunarfræðinga. Samvinna
fagstétta er það sem skiptir máli.“
Veikustu sjúklingar sjúkrahússins
Á gjörgæslunni liggja veikustu sjúklingar Landspítalans sem
þurfa flókna sérhæfða meðferð sem veitt er undir stöðugu eftir-
liti og skráningu. Mikil samvinna er milli gjörgæsludeildanna
á Landspítalanum, en ákveðin verkaskipting er þó milli deild-
anna sem tengjast ákveðnum sérgreinum. „Já, gjörgæslan í
Fossvogi tekur við fjöláverkasjúklingum, brunum, heila-
áföllum og áverkum, alvarlegum sýkingu o.fl. Það hafa verið
opin 6 rúmstæði á deildinni. Vöknun eftir skurðaðgerðir fellur
undir starfsemi gjörgæsludeildanna en þar fer fram skamm-
tímaeftirlit með sjúklingum eftir aðgerðir, rannsóknir, svæf-
ingar og deyfingar,“ segir Ólöf.
Á gjörgæsludeildinni með Ólöfu vinna um 90 manns, hjúkr-
unarfræðingar, sjúkraliðar og sérhæfðir starfsmenn. „Enginn
dagur í mínu starfi er eins. Það má segja að grundvallarreglan
sé sú að kortleggja daginn, setja sér markmið, skipuleggja sig
en vera undir það búinn að allt fari á annan veg en ætlað er.
Maður þarf að vera búinn undir það versta en vona hið besta,
endurskoða og skipuleggja allt upp á nýtt og setja sér ný mark -
mið. En alltaf þarf að hafa ábyrgðarsvið í huga og sinna þeim
verkefnum í jafnvægi við viðfangsefni sem lúta að þeim sjúk-
lingum sem eru á deildinni hverju sinni,“ segir Ólöf aðspurð
um starfið á deildinni og hvernig dagarnir séu.
Það hefur verið mikið lagt á Ólöfu og hennar starfsfólk á gjörgæslunni
í kringum covid-19 eins og annað heilbrigðisstarfsfólk víða um landið.
Hún segist aldrei hafa haft áhyggjur af því að smitast sjálf af kórónu -
veirunni enda notaði hún og hennar starfsfólk alltaf hlífðarbúnað á
deildinni þegar þess þurfti.
„Enginn dagur í mínu starfi er eins. Það má
segja að grundvallarreglan sé sú að kortleggja
daginn, setja sér markmið, skipuleggja sig en
vera undir það búinn að allt fari á annan veg en
ætlað er. Maður þarf að vera búinn undir það
versta en vona hið besta, endurskoða og skipu-
leggja allt upp á nýtt og setja sér ný markmið.“