Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Page 51
úr. Á listanum kemur fram að hún ætli ekki að ganga í óþægi-
legum skóm, ekki að þagga niður innsæi og betri vitund, ekki
drekka vont kaffi, ekki kvarta yfir veðrinu, ekki sleppa tæki-
færum til að ferðast, ekki halda í dauða hluti — elska frekar
upplifanir, fólk, dýr og blóm, ekki gera lítið úr eigin tilfinn-
ingum og annarra, ekki láta fram hjá sér fara tækifæri til að
verja þá sem minna mega sín og ekki taka þátt í illu umtali og
aldrei, aldrei leggja neinn í einelti.
Líf hennar hefur tekið stakkaskiptum og hún þarf sífellt að
vera á varðbergi að fara sér hægt. „Hvað mig sjálfa varðar þá
snýst líf mitt enn þá um það að reyna að koma einhverjum
böndum á sjálfa mig. Fyrir utan kvíðann, sem er órökréttur og
tekur ótrúlega mikla orku á hverjum degi, þá snýst líf mitt um
það að hlaupa ekki of hratt. Jafnvel þótt heimurinn hafi
minnkað niður í það að vera innan veggja heimilisins og hafa
fáum skyldum að gegna hef ég endalausa tilhneigingu til að
búa til fleiri kröfur, meiri kröfur, kröfur um fullkomnun og ég
þarf alltaf að vera á varðbergi gagnvart því. Orkan sem áður
var nægilega mikil til að bruna í gegnum dagana leyfir nú ekki
meira en að dóla í rólegheitum, allt sem er utan þess kostar
hvíld og tíma til að ná jafnvægi aftur,“ skrifar Inga.
„Ég trúi því að ég hefði dáið, ef ekki líkamlega þá að
minnsta kosti andlega, hefði ég ekki farið í þrot og að ég sé vel
stödd miðað við það sem hefði getað orðið. Að hafa glatað svo
stórum hluta af því sem mótaði mig í augum annarra gefur
mér möguleika á því að byrja aftur með hreint borð. Nú get ég
orðið eins og ég sjálf kýs að vera og það er þó nokkuð!“
Bókin Konan sem datt upp stigann er einlæg og átakanleg
reynslusaga Ingu Dagnýjar Eydal af því að lenda í kulnun og
um leiðina til baka. — Helga Ólafs tók saman.
„það er sko miklu eftiðara að komast þaðan aftur en að lenda þar“
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 51
UMHVERFISVERÐLAUN
ATVINNULÍFSINS
Brim er stoltur handhafi Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2019.
Með skýrri sýn, virðingu fyrir umhverfi okkar og ómetanlegu starfsfólki, hefur okkur tekist að
verða leiðandi í umhverfismálum á Íslandi. Verðlaunin eru okkur hvatning til að ganga enn
lengra í sátt og samlyndi við náttúruna - takk fyrir okkur.
Náttúran er okkar allra
„Ég trúi því að ég hefði dáið, ef ekki líkamlega
þá að minnsta kosti andlega, hefði ég ekki farið
í þrot og að ég sé vel stödd miðað við það sem
hefði getað orðið. Að hafa glatað svo stórum
hluta af því sem mótaði mig í augum annarra
gefur mér möguleika á því að byrja aftur með
hreint borð. Nú get ég orðið eins og ég sjálf kýs
að vera og það er þó nokkuð!“