Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Qupperneq 54
Betra að vera seinn og sætur en fljótur og ljótur
— Nanna Bryndís Snorradóttir
Fullkomin hamingja er … að vera jákvæður og sáttur við sjálfan sig og aðra. Hvað
hræðist þú mest? Að eitthvað slæmt komi fyrir börnin mín. Fyrirmyndin? Ég á fjöl-
margar fyrirmyndir, bæði í lífinu og í hjúkrun. Myndi samt segja að mamma og pabbi
hafi mótað og ég hafi náð að tileinka mér margt gott frá þeim sem hefur gert mig að
þeim einstakling sem ég er í dag. Eftirlætismáltækið? Betra að vera seinn og sætur
en fljótur og ljótur. Hver er þinn helsti kostur? Jákvæðni, seigla og atorkusemi. Hvað
vildirðu verða þegar þú varst ung? Flugmaður. Eftirlætismaturinn? Mjög margt í
uppáhaldi, en þessa dagana er það langa á veitingastaðnum Hipstur. Hvaða löst áttu
erfiðast með að þola í fari annarra? Neikvæðni. Hverju ertu stoltust af að hafa
áorkað? Klárað hjúkrunarnámið mitt og sjá öll tækifærin sem hafa myndast við að
hafa slíka menntun. Endalausir möguleikir. Eftirminnilegasta ferðalagið? Ferðalag
til Taílands með útskriftarhópnum mínum 2012. Ofmetnasta dyggðin? Úff, ekki
hugmynd, kannski dugnaður. Hver er þinn helsti löstur? Já, kannski fljótfærni —
en oftar en ekki er það líka bara gott. Hverjum dáist þú mest að? Að fólki sem er já-
kvætt, auðmjúkt, heiðarlegt, kröftugt og kemur hlutunum í verk. Eftirlætishöfund-
urinn? Vilborg Davíðsdóttir. Ofnotaðasta orðið eða orðatiltækið? Þetta reddast.
Mesta eftirsjáin? Engin eftirsjá, lífið er of stutt til að líta í baksýnisspegilinn. Eftir -
lætisleikfangið? Já, ég á fullt af skemmtilegum spilum — myndi telja að spilið Part-
ners væri skemmtilegast — lúdó á sterum. Mæli með því! Stóra ástin í lífinu?
Kærastinn til 16 ára og börnin okkar tvö. Hvaða eiginleika vildirðu helst hafa? Geta
„teleportað“ mig á staði. Myndi henta mér ákaflega vel, á erfitt með að áætla tíma í
umferð. Finnst að allt taki 5 mínútur. Þitt helsta afrek? Eignast tvö heilbrigð börn.
Eftirlætisdýrið? Hundur. Hvar vildir þú helst búa? Garðabæ. Hvað er skemmtileg-
ast? Að vera með þeim sem manni þykir vænt um, fjölskyldu og vinum. Hvaða eigin -
leika metur þú mest í fari vina? Heiðarleika, jákvæðni, gleði, glens og almennt stuð.
Eftirlætiskvikmyndin? Forrest Gump. Markmið í lífinu? Að vera hraust, heilbrigð
og hamingjusöm. Eftirminnilegasti sjúklingurinn? Einstaklingur á hjúkrunarheimili
í Húnaþingi. Var dásamlega litríkur karakter og skemmtilegt að hlusta á hvað hann
hafði að segja. Hvaða starfsvettvang myndirðu kjósa annan en núverandi? Ef til vill
flugið en ég er annars mjög stolt og ánægð með hjúkrunarfræðimenntunina mína.
Eitthvað að lokum … Lífið er núna!
setið fyrir svörum …
54 tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020
Nanna Bryndís Snorradóttir hjúkrunar-
fræðingur.