Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 65
til fleiri og flóknari matstæki sem er erfiðara að leggja fyrir
aldraða og eru þess vegna minna notuð (Læknablaðið; 2000:
Jakob Smári o.fl., 2008).
Meðferð við þunglyndi
Ýmsir meðferðarmöguleikar eru til að meðhöndla þunglyndi.
Þegar meðferð er valin þarf að hafa í huga hversu alvarlegt
þunglyndið er og hvað einstaklingurinn vill sjálfur. Mikilvægt
er að beina sjónum að þörfum hvers og eins því þær geta verið
mismunandi. Þau úrræði sem helst eru notuð við vægu þung-
lyndi eru atferlismeðferð, hugræn atferlismeðferð, samskipta -
meðferð og fjölskyldumeðferð, ásamt lyfjameðferð. Atferlis -
meðferð er veitt hjá sálfræðingum og er notuð til að vinna úr
atferli, breytt atferli felur í sér betri líðan. Meðferðin getur leitt
til betri samskipta, t.d. gagnvart nánustu aðstandendum. Ef
hinn aldraði nær tökum á breyttri hegðun færir það honum
yfirleitt betri heilsu (McClafferty, 2012). Hugræn atferlis með -
ferð er mjög mikið notuð við þunglyndi hjá öldruð um og hefur
reynst vel. Meðferðin miðar að því að hinn aldraði nái tökum
á þessum hugsunum og takist á við daglegt líf án þess að
gagnrýna sjálfan sig (Gould o.fl., 2012). Sálfræði meðferð, sam-
skiptameðferð og fjölskyldumeðferð hefur einnig reynst vel til
að meðhöndla þunglyndi hjá öldruðum. Rannsóknir hafa sýnt
að framantalin meðferðarúrræði bæta verulega líðan og stuðla
að bata hjá þeim sem tekur virkan þátt í meðferðinni (Kennedy-
Malone o.fl., 2019). Lyfjameðferð er mikið notuð við þung-
lyndi og er sérstaklega gagnleg við alvarlegu þunglyndi. Við
upphaf lyfjagjafar aldraðra með þunglyndi þarf að finna rétta
lyfið sem óhætt er að taka samhliða öðrum lyfjum sem hinn
aldraði tekur svo ekki komi fram óæskilegar milliverkanir.
Einnig er mikilvægt að hafa í huga að hjá öldruðum er niður-
brot lyfja í líkamanum hægara en hjá yngra fólki. Helstu geðlyf
sem gefin eru öldruðum eru í flokki SSRI-lyfja. Lyfin henta
öldruðum vel vegna þess að þau hafa ekki áhrif á minni, hjarta-
starfsemi, blóðþrýsting og eru ekki slævandi (Alduhisky,
2018). Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem hafa greinst með
þunglyndi meðal aldraðra: einkenni, orsök , mat og meðferð
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 65
Hugræn atferlismeðferð er mjög mikið notuð
við þunglyndi hjá öldruðum og hefur reynst vel.
Meðferðin miðar að því að hinn aldraði nái
tökum á þessum hugsunum og takist á við dag-
legt líf án þess að gagnrýna sjálfan sig. Sálfræði -
meðferð, samskiptameðferð og fjölskyldumeð -
ferð hefur einnig reynst vel til að meðhöndla
þunglyndi hjá öldruðum.