Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 83
Tuttugu og órir þátttakendur slepptu einni eða tveimur spurn -
ingum og tíu slepptu þremur eða fleiri. Tæplega helmingur
þátttakenda svaraði ekki spurningum um vinnu og nám og 25
slepptu að svara spurningu um kynlíf innan undir kvarðans um
samskipti. Við endurtekna fyrirlögn á HL-stöð inni náðist til
58 manns af þeim 67 sem svöruðu í fyrra skiptið og svarhlut-
fallið var 95% (55 listar).
Bakgrunnur og heilsufar
Konur voru í meirihluta á Kristnesi en karlar á HL-stöðinni.
Meðalaldur þátttakenda á Kristnesi var 53 ár (±10,6; 22–73)
en 74 ár (±8,3; 56–89) á HL-stöðinni. Tæpur helmingur þátt-
takenda á Kristnesi var í launaðri vinnu eða námi og rúmur
helmingur fékk örorkubætur. Á HL-stöðinni voru flestir þátt-
takendurnir á ellilífeyri og tæpur órðungur í launuðu starfi.
Tafla 2 sýnir aðalheilsufarsvanda þátttakenda að eigin mati.
Stoðkerfisvandamál voru algengust á endurhæfingardeildinni
en þar á eir kom annar eða óþekktur vandi og síðan ofþyngd.
Á HL-stöðinni voru hjarta- og lungnasjúkdómar algengastir.
Próffræðilegir eiginleikar WHODAS 2.0
Tafla 3 sýnir áreiðanleikastuðla mælitækisins í heild og allra
undirkvarða þess, bæði fyrir heildarhópinn (n = 148) og hóp-
ana tvo sinn í hvoru lagi. Áreiðanleikastuðullinn var 0,95 fyrir
mælitækið í heild og yfir 0,8 fyrir alla undirkvarða hjá báðum
hópum ef frá er talinn undirkvarðinn samskipti á HL-stöðinni
þar sem stuðullinn mældist 0,77.
Áreiðanleikastuðla endurtekinna mælinga er að finna í
töflu 4, en hann var reiknaður út frá gögnum þeirra 55 þátt-
takenda á HL-stöðinni sem svöruðu WHODAS 2.0 tvisvar.
ICC-fylgnistuðullinn var yfir 0,75 fyrir alla undirkvarðana og
mælitækið í heild. Hæsti fylgnistuðullinn var fyrir vinnu og
nám í daglegum störfum og því næst fyrir að komast um.
Tafla 5 sýnir samtímaréttmæti íslenskrar þýðingar WHODAS
2.0 í samanburði við SF-36v2-lífsgæðakvarðann. Fylgni var
marktæk í 36 tilfellum af 48. Í heildina séð var þátttöku kvarð-
inn með sterkustu fylgnina við alla kvarða SF-36v2, og kvarð-
inn fyrir eigin umsjá með þá veikustu.
Umræða
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að próffræðilegir eigin-
leikar íslenskrar þýðingar á WHODAS 2.0 eru góðir. Innri
áreiðanleiki var góður, bæði fyrir mælitækið í heild og alla
undirkvarðana, og hið sama gildir um áreiðanleika endurtek-
inna mælinga. Fylgnin milli viðeigandi undirkvarða WHODAS
2.0 og SF-36v2 var marktæk og því óhætt að álykta að gott
samtímaréttmæti sé til staðar. Þessar niðurstöður ríma vel við
prófun á upphaflegri útgáfu WHODAS 2.0 (WHO, 2010) sem
og niðurstöður erlendra þýðingarannsókna, en mælitækið
hefur verið þýtt á um 50 tungumál (Castro og Leite, 2017;
Castro o.fl., 2018; Cheung o.fl., 2015; Chiu o.fl., 2014; Ćwirlej-
Sozańska o.fl., 2018; Federici o.fl., 2017; Koumpouros o.fl.,
2018; Moen o.fl., 2017; Silva o.fl., 2013).
Innri áreiðanleiki íslensku þýðingarinnar mældist hæstur
fyrir mælitækið í heild og undirkvarðann dagleg störf. Þessum
ritrýnd grein • scientific paper
tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 96. árg. 2020 83
Kristnes HL-stöðin, Akureyri
n = 81 n = 67
Fjöldi (%) Fjöldi (%)
Kyn
Karl 18 (23) 47 (70)
Kona 62 (77) 20 (30)
Búseta
Dreiýli 16 (20) 5 (8)
Þéttbýli 64 (80) 61 (92)
Hlutverk1
Í launaðri vinnu eða námi 35 (43) 16 (24)
Sér um heimili 43 (53) 17 (25)
Sjáloðaliði 5 (6) 1 (2)
Öryrki 42 (52) 7 (10)
Ellilífeyrisþegi 5 (6) 51 (76)
Án atvinnu 4 (5) 3 (5)
Menntun1
Grunnskólapróf 56 (69) 38 (57)
Starfsréttindapróf 25 (31) 33 (49)
Stúdentspróf 15 (19) 4 (6)
Háskólapróf 17 (21) 8 (12)
Önnur menntun 8 (10) 8 (12)
1 Þátttakendur voru beðnir að merkja við allt sem við átti og því eru svörin
samtals fleiri en þátttakendur
Tafla 1. Lýðfræðilegar upplýsingar um þátttakendur
Tafla 2. Aðalheilsufarsvandi að mati þátttakenda
Kristnes HL-stöðin
n = 81 n = 55
Aðalheilsufarsvandi1 Fjöldi (%) Fjöldi (%)
Stoðkerfisvandamál 69 (85) 14 (21)
Hjarta- og/eða lungnasjúkdómur 2 (3) 51 (76)
Vandamál frá miðtaugakerfi 4 (5) 1 (2)
Sálrænir eða geðrænir erfiðleikar 5 (6) 3 (5)
Ofþyngd 10 (12) 3 (5)
Krabbamein eða ónæmissjúkdómar 1 (1) 3 (5)
Skyntruflanir (heyrnar- eða 2 (3) 8 (12)
sjónskerðing)
Annar eða óþekktur vandi 13 (16) 1 (2)
1 Nokkrir merktu við fleiri en einn heilsufarsvanda og því eru svör in sam-
tals fleiri en þátttakendur