Heimilispósturinn - 16.04.1951, Síða 27

Heimilispósturinn - 16.04.1951, Síða 27
er í skipinu. Ég lét .opna lestarhler- ana áðan, til þess að aðgæta, hvort sjór hefði komizt í lestina. Hún getur verið komin þangað niður.“ ,,Hún getur verið í brunaskjólunum, í björgunarbátunum —■ eða í ein- hverri vöggunni." Chris Wamer hafði ekkert lagt til málanna. Að hans áliti var skepnan svo stór, að hún gæti ekki dulizt. Hann var í þann veginn að fara út úr klefanum. Þegar skipstjórinn kall- aði til hans: ,,Það fer enginn héðan út, fyrr en við höfum ákveðið, hvað gera skal.“ „Skipstjóri," sagði Bowman, „við verðum að hefja þegar í stað leit að slöngunni. Og ef við verðum ekki búnir að finna hana fyrir myrk- ur . . .“ „Það dimmir fljótt í kvöld.“ „Ég held, að þetta sé ekki rétt,“ skaut féhirðirinn inn í. „Allir um borð eru ofurseldir sömu hættunni. Allir verða að vera varir um sig. Það er bezt að segja öllum frá þessu strax. Eða við gæt- um gert skyndileit fyrst.“ „Enginn veit, hvaða afleiðingar fréttin getur haft — ég hef séð far- þega á skipi sleppa sér af hræðslu." ,,En það er ekki rétt að leyna þessu. Á þessu augnabliki getur slangan legið hringuð undjir rúmi einhvers kvenfarþegans. Við verðum að segja frá þessu!" „Og við getum ekki heldur leitað um allt skipið, án þess að færa fram einhverja ástæðu. Þetta fréttist fyrr eða síðar. Það má ekki verða um seinan." Wood skipstjóri furðaði sig á því, að hann skyldi ekki vera reiðari út í Chris en raun var á. Pilturinn sat þama þögull og leið hinar mestu sál- arkvalir. „Við leitum fyrst,“ sagði skip- stjórinn að lokum, ,,og beri leitin ekki árangur, vörum við farþegana við hættunni. Vertu ekki svona á- hyggjufullur, Chris —- við látum þig leita á hættulegasta staðnum — í farþegaflutningslestinni.“ Skipinu var skipt í leitarsvæði, og brátt voru leitarmennimir farnir að gá í hvern krók og kima á farrým- unum. Kæruleysið i svip þeirra var svo greinilega uppgerð, að farþeg- arnir störðu undrandi á þá. En hvergi sást rauðbrún slanga með svörtum flekkjum skríða yfir ábreiðuna, og hvergi fannst hún hringuð i dimmu skoti. Það lá við að Warner yrði illt, þegar hann stóð á miðju lestargólfinu og leit í kring- um sig í hálfrökkrinu . . . Titrandi og sveittur fór hann að leita í lest- inni. Hann var með langt prik og kannaði með því allan farangurinn og hvem myrkan krók. En engin slanga var finnanleg. Að lokinni leitinni hittust þeir í klefa skipstjórans. Enginn hafði orð- ið var við slönguna. Það varð að að- vara farþegana. Lífið um borð varð nú eins og mar- tröð, sem varð æ skelfilegri eftir því sem lengur leið. Menn þorðu ekki að sofa um nætur, og enginn hafði lyst á mat. Óttinn lá á öllum eins og mara. Það voru aðeins börnin, sem vom jafn kát og áður, því að þau gátu ekki lesið skelfinguna í augum foreldra sinna. En fram að þessu hafði óttinn verið þögull og lamandi, engin ofsahræðsla hafði brotizt út. Þá var það einn dag, að tveir svertingjar, sem voru kynd- arar á skipinu, komu allt í einu æð- andi upp á þilfarið og hlupu æpandi fyrir borð. Þeir sukku strax. Sumir héldu, að þeir hefðu séð slönguna, en aðrir voru þeirrar skoðunar, að þeir hefðu brjálazt af ótta við hana. Nokkrum stundum seinna ætlaði göm- ul kona að varpa sér fyrir borð, en HEIMILISPÖSTURINN 25

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.