Blik - 01.04.1955, Blaðsíða 40

Blik - 01.04.1955, Blaðsíða 40
38 B L I K Bekkurinn minn Bekkurinn minn er fámenn- asti bekkur skólans, eða 14 nem- endur. Þessir 14 nemendur ætla sér að reyna við landsprófið í vor. Það er vonandi, að það blessist. Landsprófsdeild kvað eiga að vera fyrirmyndarbekkur skólans, en mjög er vafasamt að svo sé. 1 fremstu víglínu situr Ólafur, hinn mikli stærðfræðingur. Ólaf- ur er lágur vexti og grann- ur. Hann er mikið fyrir ærsl og ólæti, sem tíu ára væri. Bak við Ólaf sitja tveir merkir menn, Sigfús, sonur héraðslæknisins, og Kristján, sonur lögreglu- stjóra og bæjarfógeta Vest- mannaeyja. Báðir eru þessir menn mátulega í holdum og góð- ir námsmenn. Þá koma þeir Haukur og Kjartan, öldungar og gluggastjórar, þ. e. þeir opna glugga stofunnar á morgnana, og eru þeir vel til þess starfs fallnir, þar eð báðir eru mjög skankalangir. Til vinstri handar Kjartani sitja þrjár fríðar og skrafhreyfnar yngismeyjar að nafni Kristín, Þórunn og Unnur. Samvinna þessara kvað vera mjög mikil, enda eru þær allar miklum námshæfileik- um gæddar, eins og Bryndís og Valgerður, sem fyrir framan þær sitja og mér til hægri hand- ar. Fremstir í þessum flokki eru þrír ágætir piltar. Já, ágætir sagði ég. Og þeir eru það líka. Við, sem að baki þeim sitjum, erum alltaf öðru hvoru hrædd- ar um að hausinn á þeim Gylfa og Friðriki detti af þeim þá og þegar. Þetta er þá mannfólkið, hið fagra og gáfum gædda, í bekkn- um mínum, landsprófsdeildinni í Gagnfræðaskóla Vestmanna- eyja árið 1954-—1955. Ein í Landsprófsdeild. Við prjónana Sólin var að ganga til viðar og varpaði róslitum bjarma inn um litla gluggann, svo að fátæk- lega stofan fékk á sig æfintýra- legan blæ. Það er eins og ilmur liðinna tíma liggi í loftinu. Ekk- ert rýfur kyrrðina nema tifið í gömlu Borgundarhólmsklukk- unni og marrið í ruggustól gömlu konunnar, sem situr og prjónar í ákafa. Hún horfir dreymandi augnaráði blöndnu söknuði út yfir hina tilbreyt- ingarlausu húsabreiðu borgar- innar. I huga gömlu konunnar bregður fyrir svipmyndum lið- inna æskuára, þegar hún var lít- il og átti heima á litlum bæ lengst inn til dala. Foreldrar hennar voru fátækir, en samt leið henni yndislega. Allir voru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Blik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.