Blik - 01.04.1955, Side 50

Blik - 01.04.1955, Side 50
48 B L I K Hátignar frjóland fríða. friðsæla Vanadís, með skrúðgræna brekku blíða, blómanna Paradís. Hún glóir í glitvefsklæðum og gullhlað um enni ber, í kvöldroðans kynjaglæðum hún kallar mig að sér. í Bjarnarey gista og böl af sér hrista um bjartan sumardag, eykur yndishag, auðugt vængja slag, útsýni fegra og allt glæsilegra ég aldrei fann um kring, fegri fjallahring, fyllri algleyming. Ástsöngur hljómar með yndi og ómar frá eyjunnar fuglakór. blóm dansa á hillum, bekkjum og syllum brumar svo undir sjór. Lognsærinn glitrar, í litbránni titrar hver tindur Eyja-lands. Heillar huga manns Heimaeyjar glans. Ef þú, lesandi góður, ert einn þeirra, er finnur til innilokunar, saknar víðf eðmi og stærðar meg- inlandsins, en smæð eyjanna okkar fyllir þig söknuði og þorsta eftir fegurð, glæsileik og töfrum, þá staldraðu við, og við skulum láta hugann reika stund- arkorn í heimahögum okkar. Við skulum halda til hafs. Sem farkost kjósum við okkur lítinn trillubát. Þegar við höfum fengið vilyrði fyrir farkostinum, þá tökum við til við að útvega nauðsynjar til ferðarinnar. Við höfum ákveðið að dveljast viku- tíma í öðrum syðsta útverði Is- lands. Áform okkar er að ráðast til uppgöngu í Súlnasker. Þó að slíkri ferð sem þessari svipi ekki til ferðar Johns Hunt á Evrest, þá þurfum við þó að taka til höndunum við útbúnað- inn. Margt þarf að hafa með. Ekkert má gleymast. Við tínum það til allt frá því smæsta til hins stærsta. Matarföng öll, eld- unaráhöld, tjald og viðleguút- búnað, bönd, vatnsbirgðir, því að vatn fyrirfinnst ekki í fyrir- heitna landinu, háfa og vara- hluti, sem slíkum veiðitækjum fylgja. Nú fyrst verður okkur fyllilega ljóst, hve mikill farang- ur okkar verður. Þegar öllu hefur verið safnað saman, þá bindum við þetta allt í hæfileg samhengi, sem viðráð- anleg eru tveim mönnum til upp- dráttar. Eftir að hafa hlotið beztu óskir um fararheill, leysum við landfestar og siglum út gegn- um hið töfrandi hlið að gullkistu Eyjanna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Blik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.