Blik - 01.04.1955, Qupperneq 58
56
B L I K
ir ir forða sér í skúta á Neðri-
Kleifum. Sólin er brennheit á
gulu berginu og bergið í Hettu
rofnar með ægigný — fuglinn
tvístrast úr grænum brekkunum
og stærðarbjörg steypast fram-
af hengiflugi niður í sandinn
undir Löngu. — Eða maður situr
með háf undir Siggasteini og
sveiflar eftir lunda með mörg
síli í nefinu.
Og þú sjálfur bara að horfa á
Heimaklett: allt þetta flóð gulra
lita undir grænni hettu við blá-
an sjó og blátt loft. Bara að
horfa, horfa lengi: mínútur eða
eilífð; bátar í forgrunninum,
stórir bátar, litlar fleytur og
niðrií sjónum koli og smáupsi
og marhnútur.
Og síðan nótt og allt þetta
gula brúnt, æ dekkra, loks svart
(það græna líka) : skuggamynd
— útlínurnar eina við dimm-
bláan himin með stellu pólaris
þarna og stórabirni hérna.
Sama þótt þú sért staddur á
öðru landshorni með útsýn til
annars fjalls undir merki
oríons: lokirðu augunum er það
heimaklettur, bergið gult með
lóðréttum línum utan Danskató
þversum og kollurinn grænn
fyrir ofan og svo blátt víðernið.
Það er mikill gagnfræðaskóli
að horfa á Heimaklett, þennan
gula risa með græna kollinn við
bláan himin; öllum gagnfiæða-
skólum meiri- — Hver sem
skynjar þessa litríku tign og
verður af allri sál sinni og öllu
hjarta sínu snortinn töfrum
hennar — hefur tekið mesta
gagnfræðapróf í heimi. Hann
hefur staðizt próf sjálfrar nátt-
úrunnar, próf mannlífsins og
komizt feti nær því að ráða lífs-
gátuna: öðlazt ástina til lands-
ins og þjóðarinnar — þá sönnu
ást, sem felur í sér ástina til
allra landa móður jarðar og til
allra þjóða hennar. Hann hefur
öðlast náðargáfuna að njóta
æðstu fegurðar, jafnt í því stóra
og hinu smáa: tignar fjallsins,
dásemdar blóms og daggar, bliks
í barnsauga, tónaflóðs hljóm-
vöggulags.
Þessvegna er Heimaklettur
þér samnefnari allrar þessarar
tignar, allrar þessarar fegurðar.
Og einmitt þessvegna hefur þú
víðsýni til að sjá fegurðina til
beggja handa: til vinstri röð
f jalla margra gerða — til hægri
bláan sjó, brattar úteyjar,
duggu á miði, hvítt segl ef vel
lætur — og bak við Jökulinn í
upphafinni f egurð.
En eigi að síður festist auga
þitt aftur við Heimaklett. Og
hvað sem þú verður gamall,
hvert sem leið þín liggur: aldrei
muntu gleyma þessari gulu og
grænu dýrð á mörkum dýpsta
bláma, sem sögur fara af.