Blik - 01.06.1969, Qupperneq 7
ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON
Hjónin Sigfús M. Johnsen og Jarþrúður
P. Johnsen
Hvað hafa þau bezt gert fyrir þetta bæjarfélag?
Sumir menn verða ágætastir af út-
gerð sinni og aflaföngum. Aðrir af
baulum sínum og búskap. Sumir feð-
ur verða ágætastir af burum sínum
og börnum öllum, svo barnabörnum,
ef barnalánið er með. Sumir af þjóns-
lund sinni við stjórnmálagarpa og
eiginhagsmunamenn.
Þá tímar líða, munu hjónin Sigfús
M. Johnsen og kona hans, fyrrver-
andi bæjarfógetahjón í Vestmanna-
eyjum, verða ágæt talin af góðvild
sinni og höfðingsskap gagnvart Vest-
mannaeyjakaupstað, íbúum þar og
komandi kynslóðum hér í byggð, fæð-
ingarbyggð hans. Vonandi verður
Sigfús M. Johnsen ágætur talinn af
arfa sínum og afkomendum, en ágæt-
astur af andlegum afrekum sínum í
þágu byggðar sinnar, fyrir hið mikla
sögurit sitt, Sögu Vestmannaeyja, er
Isafoldarprentsmiðja gaf út 1946 í
tveim bindum, og svo allt annað, sem
hann hefur samið, skrifað og skráð
um fólk í Eyjum, ættir, líf og störf.
Töluvert af þeirri fræðslu hefur ekki
enn komið fyrir almenningssjónir. Þó
eru þessi afrek hans og fræðslustörf
ekki einustu ástæðurnar fyrir því, að
ég bið Blik að geyma nokkur orð um
þessi mætu hjón að þessu sinni. Þau
hafa í góðvild sinni til byggðarlags-
ins og höfðingsskap gefið Vestmanna-
eyjakaupstað gjöf, sem aldrei verður
til fjár metin, svo verðmæt er hún.
Hér á ég við málverkasafn það, er
þau með kaupsamningi dagsettum 18.
jan. 1967 seldu bænum að nafninu til,
en það er að viti kunnugra manna,
sem vaxnir eru þar um að dæma, gjöf
að langmestu leyti en ekki sala. Kem
ég að því síðar í greinarkorni þessu.
Segja má með sanni, að afleiðing-
ar þess, að Sigfús M. Johnsen, fyrr-
verandi bæjarfógeti, fæddist í Vest-
mannaeyjum og getur því með réttu
talizt sannur sonur þeirrar byggðar,
sé búferlaflutningur bónda nokkurs
frá Hofi í Öræfum árið 1870. Sá
bóndi hét Arni Þórarinsson, kvænt-
ur Steinunni Oddsdóttur, góðri konu
og mikilli húsmóður. Er þessi bónda-
hjón fluttu búferlum til Eyja, var
Arni bóndi 43 ára og húsfreyjan 45
ára. Með þeim komu tvö börn þeirra
til Eyja, Anna Sigríður, 15 ára, og
Oddur, 5 ára að aldri. Fleiri börn
áttu þau. Hjónin höfðu búið að Hofi
nokkur ár, áður en þau fluttust til
Eyja, að minnsta kosti síðustu 10
árin.
Hjónin Árni Þórarinsson og Stein-
BLIK
5