Blik - 01.06.1969, Síða 91
Drýgðar dáðir
Undanfarna mánuði hafa íslend-
ingar naumast rætt um annað meir
sín á milli en fjármálaöngþveitið í
landinu og áfengisvandamál þjóðar-
innar.
Orsök f j ármálakreppunnar eftir
góðærin á án efa einhverjar rætur að
rekja til skaplyndis okkar Islendinga
og vanþroska okkar um meðferð fjár
eða notkun, ef við þykjumst hafa
nokkur fjárráð. Vissulega fær yngri
kynslóðin sitt að heyra ýmist á bak
eða brjóst, þegar þessi mál ber á
góma. Víst er ástandið ömurlegt bæði
um meðferð fjárins og neyzlu áfeng-
isins. Um þetta mætti skrifa langt
mál og e. t. v. miður geðfellt. Annað
er mér nú ríkara í huga. Það er sá
hópur ungra manna hér í bæ, sem
hefur áskotnazt mikið fé á undan-
förnum árum og notað það þannig,
að til sannrar fyrirmyndar má telj-
ast. Það er rétt eins og okkur sé ann-
að eiginlegra en að ræða eða lofa
drýgðar dáðir og þá ungu menn, er
það gera. Hér á ég við þann hóp
ungra manna, sem kostað hefur kapps
um að eignast íbúðir eða heil hús
fyrir háu launin sín á þessum vel-
gengnistímum og notað til þess
hverja lausa krónu af tekjum sínum.
Þessir ungu menn eru sannarlega
öðru ungu fólki til fyrirmyndar.
Fáum mun kunnugra um atorku
þessara ungu manna við byggingar-
framkvæmdirnar og það fjárhagslega
hyggjuvit, sem þeir sýna og sanna í
þessu dáðastarfi, en mér, sem þessar
línur skrifa. Því veldur starf mitt í
Sparisjóði Vestmannaeyja. Starf mitt
í stofnuninni hefur veitt mér aðstöðu
til að fylgjast með framtaki þessara
ungu manna, með því að stofnunin
hefur eftir megni reynt að lyfta und-
ir hornið með þeim, veita þeim fjár-
hagslegan stuðning. Sú aðstoð hefur
verið veitt með mikilli ánægju. Þeir
drýgja dáðir, þessir ungu menn, og
þjóðin öll nýtur framtaks þeirra og
hyggjuvits, þó að fjölskyldur þeirra
njóti dáða þeirra fyrst og fremst.
Já, þessir dáðadrengir eru mér
jafnan efstir í huga, er mér berast
sögur af ungu fólki, stúlkum og pilt-
um, sem ekki virðast vita sitt rjúk-
andi ráð, ef því áskotnast fé umfram
nauðþurftir. En jafnframt má á þá
staðreynd minna, að fátt af þessum
eyðsluskjóðum eru svo illa komnar,
að þær eigi sér ekki viðreisnarvon,
eigi ekki þess kost að sjá að sér.
Mætti sem flest af því öðlast hið
fyrsta vit og skilning á gildi spar-
semi og fjárhyggju. Sá þroski mundi
veita þeim hinum sömu mesta gæfu
í lífinu, kenna þeim þannig að drýgja
dáðir öllum til gengis og farsældar.
Vestm. 25. jan. 1969 — Þ. Þ. V.
89
blik