Blik - 01.06.1969, Síða 385
Einn af góðborgurum okkar hér í
Eyjum er Agúst Ulfarsson að Mel-
stað við Faxastíg (nr. 8B). Honum
til heiðurs og ánægju, að Blik ætlar,
og okkur öllum til nokkurs sögulegs
fróðleiks, birtir ritið hér mynd af
honum í systkinahópnum gjörvilega
frá Fljótsdal í Fljótshlíð, þar sem
foreldrarnir bjuggu um árabil.
Fremri röð frá vinstri:
1. Guðrún Ulfarsdóttir, ráðskona í Drangs-
hlíð undir Eyjafjöllum, f. 29. okt. 1897
í Fljótsdal.
2. Ingunn Úlfarsdóttir, f. 6. jan. 1899 í
Fljótsdal. Dáin 18. nóv. 1958. Hún var
gift Sigurði Sigurðssyni, sjómanni og
skipasmið í Vestmannaeyjum.
3. Ingibjörg Úlfarsdóttir, f. 13. okt. 1893
í Fljótsdal. D. 14. jan. 1969. Maður
hennar var Guðjón Kr. Þorgeirsson,
verkamaður frá Vestmannaeyjum.
4. Guðbjörg Úlfarsdóttir, f. 7. sept. 1901
í Fljótsdal. Eiginmaður hennar er Kjart-
an S. Norðdal í Rvík.
5. Þórunn Úlfarsdóttir, f. 31. jan. 1903 í
Fljótsdal. Hún var gift Birni H. Eiríks-
syni bílstj. í Reykjavík. Hann lézt 19.
jan. 1931.
Aftari röð frá vinstri:
1. Brynjólfur Úlfarsson, f. 18. febr. 1895 í
Fljótsdal. Hann er bóndi í Stóru-Mörk
undir Eyjafjöllum, kvæntur Olafíu Guð-
laugu Guðjónsdóttur frá Stóru-Mörk.
2. Jón Úlfarsson, f. 22. júlí 1892 í Fljóts-
dal, d. 25. nóv. 1954. Hann var kvæntur
Guðbjörgu Auðunsdóttur frá Eyvindar-
múla. Þau bjuggu í Fljótsdal.
3. Sæmundur Úlfarsson, f. 7. ágúst 1905
í Fljótsdal. Kvæntur Guðlaugu Einars-
dóttur. Þau búa að Heylæk í Fljótshlíð.
4. Óskar Úlfarsson, f. 27. des. 1889 í Fljóts-
dal, d. 5. febr. 1946.
5. Ágúst Úlfarsson, f. 9. júní 1896 í Fljóts-
dal. Kvæntur er hann Sigrúnu Jónsdótt-
ur frá Vilborgarstöðum í Eyjum. Heim-
ili þeirra er að Melstað (Faxastíg 8 B
hér í bæ). Ágúst Úlfarsson var hér út-
vegsbóndi um árabil.
6. Guðjón Úlfarsson, f. 24. maí 1891 í
Fljótsdal, d. 13. maí 1960. Hann var
kvæntur Þuríði Guðrúnu Vigfúsdóttur
frá Hrauk í aLndeyjum. Hún lézt 30.
ágúst 1946. Þau hjón bjuggu í Vatnsdal
í Fljótshlíð.
Frú Þuríður ólst upp í Baldurshaga í
Vestmannaeyjum. Hún er nefnd í Bliki
1963, í grein þar um Ágúst kennara Árna-
son. Ymislegt er þar rangt með farið
vegna óábyggilegra heimilda, og bið ég af-
sökunar á þeim missögnum, sem ég befi
fyrst fengið leiðréttingu á 5 árum síðar.
Það er erfitt að ætla öðrum að fara með
fullyrðingar, sem hvergi eru í námunda
við sannleikann.
7. Sigurþór Úlfarsson, f. 3. febr. 1907 í
Fljótsdal. Kvæntur er hann Katrínu Ein-
arsdóttur frá Reykjavík.
Smámyndirnar beggja vegna eru af for-
eldrum systkinanna: Dlfari bónda Jónssyr.i
og konu hans, Guðlaugu Brynjólfsdóttur.
Úlfar bóndi var fæddur í Fljótsdal 24. sept.
1854, d. 1932. Frú Guðlaug fæddist í Vest-
urkoti á Skeiðum 21. apríl 1871, d. 1910.
Þau gengu í hjónaband árið 1890. Þau
bjuggu í Fijótsdal í Fljótshlíð til dánar-
dægurs og ólu þar upp hjálparlaust öll
sín börn.
Þ. Þ. V.
blik
383