Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Side 22
20
Fengu flestir sjúklingar talsverðan hita, en sérstaklega mikla upp-
sölu og magnaðar innantökur ásamt óstöðvandi niðurgangi.
Akureijrar. Veikin allslæm, sérstakleg'a í janúarmánuði.
Höfðahverfis. Nokkur tilfelli — aðeins eitt alvarlegt.
Reijkdæla. Enginn sjúklingur skráður, en veikin gerði þó vart við
sig sumarmánuðina.
Seyðisff. Aðallega börn, sem veiktust.
Hornaff. Algengt hér alla tíð, síðan ég kom, einkum þó eftir 1934.
Virtist þá koma ný tegund (ekki veit ég þó hvaðan), sem oftast mætti
fremur heita magakvef. Hefir það verið landlægt síðan með smærri
og stærri faröldrum, sein einkum byrja á vorin og' sumrin og eru
svo að seitla út um héraðið fram á vetur. Lýsti ég kvilla þessum að
nokkru í síðustu skýrslu og hvernig hann þá varð ungri og hraustri
konu að bana. Á þessu ári varð hann enn mannsbani. Var það 12 ára
drengur, hraustur og' efnilegur. í þetta sinn voru meningitiseinkenni
óljós eða engin, aðeins hiti, smáhækkandi upp undir 40°, höfuð-
verkur og óstöðvandi uppsala, reflexar smádofnandi. Dó eftir ca.
viku, að því er virtist af exhaustio. Var um þessar mundir smáfar-
aldur að byrja og stóð aðallega mánuðina júni, júli og' ágúst.
Síðu. Stakk sér niður. Vægt.
Mýrdals. Gerði helzt vart við sig i ágústmánuði.
Vestmannaeyja. Einkum áberandi í sláturtíð, annars stungið sér
niður.
Keflavíkur. Reytingur flesta mánuði, en vægt.
9. Inflúenza.
Toflur II, III og IV, 9.
Sjúklingafföldi 1929—1938:
1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935
Sjúkl. .. 7110 1168 7362 1282 6578 670 11229
Dánir 21 5 22 1 14 6 23
Inflúenza er talin hafa gengið aðallega á Austurlandi, sem kemur
heim við það, að Austfirðir töldust hafa sloppið við inflúenzuna,
sem gekk um landið árið fyrir. Sumir læknar utan Austfjarða, sem
telja, að inflúenza hafi g'engið hjá sér, þóttust veita því athygli, að
liún tæki aðallega það fólk, er slapp við sýkingu árið áður. En að
vísu hagaði þessi faraldur sér að ýmsu Jeyti öðru vísi en veniuleg
inflúenza, og mannskæður var hann ekki. Er þar ólíku saman að
jafna, honum og inflúenzunni 1937, sem var óvenjulega mannskæð.
Læknar láta þessa getið:
Dala. Sneinma um vorið gerði vart við sig, einkum í Saurbænum
og Skarðsströndinni, kvefsótt, sem í ýmsu minnti á væga inflúenzu.
í einu tilfelli fylgdi henni lungnabólga. Tel ég mjög sennilegt, að
kvefsótt þessi hafi átt skylt við inflúenzu, þó að væg væri, enda virt-
ist skyldleikans einkum gæta, þar sem menn höfðu sloppið við
„flenzuna“ árið áður.
Blönduós. Er talin á mánaðarskrám fyrir ágúst og september, og
1936 1937 1938
212 21977 1301
5 87