Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Blaðsíða 96
94
Hóls. Þrifnaði að ýmsu leyti ábóta vant í þessu þorpi. Er þetta
að vonum, með því að ekki hefir enn tekizt að fá fé til vatnsleiðslu
fyrir þorpið og frárennsli aðeins frá 4 húsum. Gerð hefir verið lög-
reglusamþykkt fyrir Bolungarvík, sem væntanlega verður staðfest
bráðlega. Má þá gera sér vonir um, að sú krafa nái fram að ganga,
að gerð verði vanhús bæði við aðalsamkomuhúsið og við bryggjuna
(brjótinn), þar sem flest af vinnufæru fólki þorpsins, körlum og'
konum, stundar vinnu langan tíma á ári. Nýlega var grennslazt eftir
því, hve margar fjölskyldur i þorpinu hefðu ekki salerni eða aðgang
að því. Reyndust það vera 50 fjölskyldur. Vatnssalerni eru í .2 hús-
um í þorpinu og baðklefar. Götur þorpsins hafa verið lýstar á þess-
um vetri. Engin ný hús hafa verið íiyggð á árinu, en hins vegar
hefir nokkuð verið gert að því að steypa utan uin gömul timburhús eða
steinhúða. Þykir þetta hentugt og rnikil bót á hinum gömlu húsum.
Ögur. Húsakynni batna með ári hverju. Torfbæir hverfa smám-
saman og koma víðast steinsteypt hús í staðinn með miðstöðvar-
liitun, vatnsleiðslum og vatnssalerni. Þrifnaði er enn víða mjög ábóta-
vant, og á ég' þar sérstaklega við lúsina, sein er mjög þrálátur kvilli
við sjávarsíðuna.
Hesteyrar. Húsakynnum er víða ábóta vant, og eru framfarir hægar
i þeim efnum. Skortir mjög á, að héraðsbúar yfirleitt hagnýti sér
rekaviðinn sem skyldi, þótt þess séu einstök dæmi. Hvergi er raf-
lýst nema á síldarstöðinni þann tíma, sem liún starfar á sumrin.
Eru þó víða möguleikar til rafvirkjunar í ám og lækjum. Vatns-
leiðslur eru á nokkrum stöðum, en þeim er öllum ábóta vant. Skólp-
leiðslur fáar. Miðstöðvarhitun húsa fer í vöxt. Þrifnaði er einnig all-
ábóta vant. Lúsin heldur velli enn þá. Umgengni utan húsa og innan
er hvergi nærri góð á mörgum stöðum.
Hólmavikur. Húsakynni fara mjög batnandi í héraðinu. Lélegir
torfbæir eru nú einsdæmi. Mikið er byggt upp, þar sem lakast var.
Steinsteypuhús með tvöföldu reiðingstorfi milli steypuveggjanna
reynast ágætlega.
Miðfj. Noltkur ný hús voru byggð á árinu bæði í sveitinni og í
kauptúninu. Nota sér ýmsir styrki, sem veittir eru til nýbygginga, og
eins nýbýlalán.
Blönduós. Húsakynni fara heldur batnandi, þvi að árlega er byggt
upp á einhverjum jörðum. Annars eru bæir margir orðnir hér mjög
gamlir. En mörg hús í sveitum bæði fyrir menn og málleysingja
bera vott um lítinn smekk og þann menningarlega gutlarahátt, sem
víða gerir vart við sig. Þetta hefir að visu batnað að því er hlut-
föll íveruhúsanna snertir, síðan teiknistofa landbúnaðarins fór að
hafa hönd í bagga með byggingu þeirra, svo að nú standa þau þó að
minnsta kosti á jörðinni, en dingla ekki í lausu Iofti með minnstu út-
lilið sína snertandi grunninn, en um peningshús er öðru máli að
gegna. Þeim er klínt niður í námunda við bæjarhúsin án nokkurs
samræmis við þau, hornskökkum og hlálegum, með haughús og
votheysgryfjur út frá sér eins og einhvern æxlisvanskapnað, oft og
tíðuin með mykjuhliðið blasandi við hlaði eða heiinreið. Á sama
hátt er salernunum A'alinn staður, ef þau fyrirfinnast á annað borð.