Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Síða 57
urnar báðar hafa ger og konuna auk þess digitalis. Og hvort sem
það var post eða propter, þá skipti þeg'ar um, og fór þeirn dagbatn-
andi. Þó leið alllangt (6—7 mánuðir), þar til konan taldi sig jafn-
góða. Rachitis: Get eltki sagt, að ég hafi séð þann sjúkdóm hér.
Stundum sjást þó börn, sem eru að byrja að ganga, einkum ef þau
eru mjög feit, með bogna fótleggi, sem þó réttast með aldrinum.
Lýsisnotkun hefir færzt mjög í vöxt síðuztu árin og ekki óalgengt, að
mæður gefi börnum sínum lýsi rétt strax frá fæðingu.
Mýrdals. Scorbutus: 1 tilfelli.
Vestmannaeyja. B-f j ör efnaskortur gerir hér vart við sig ár-
lega, einkum seinni part vetrar, þó að ekki sé um greinilega beri-
beri að ræða. Vegna grænmetisskorts í héraðinu, einkum á vertíð-
inni, verður að ráða bót á með dýrum B-Iyfjum. Rachitis: Veikin
gerir vart við sig' árlega. Mæðrum eru gefin ráð til þess að fyrir-
byggja veikina og' lækna hana, þegar á henni ber, en því miður er
læknis of leitað í ótima, þegar veikin er búin að gera meira tjón en
nauðsynlegt hefði annars verið.
Grímsnes. ‘2 tilfelli sá ég af tannholdsblæðingum, sem ég áleit vera
skyrbjúg. Að minnsta kosti batnaði það við appelsínusafa. Voru þetta
móðir og' barn. Nóg mjólk var á heimilinu, en þetta var síðari hluta
vetrar og fóður kúnna mjög lélegt eftir sumarið, sem kunnugt er.
5. Diabetes.
Öxarff. 1 kona fannst með diabetes á háu stigi. Helzt við með
insúlíni og viðeigandi fæði.
6. Diathesis haemorrhagica.
Hofsós. 19 ára piltur kom með maculae haemorrhagicae innan í
munni, á brjósti og útlimum. Diagnosis mín A-ar scorbutus. Af til-
viljun sáu 2 aðrir læknar piltinn, og' var diagnosis þeirra hin sama
og hjá mér. Þrátt fyrir það, að pilturinn fékk viðeigandi meðferð,
kom hann aftur eftir nokkra daga og' þá mjög illa haldinn með
blæðingar frá nefi, munni, tracf. alimentar. renes og' víða arinars
staðar. Dó eftir 3 daga.
7. Erysipeloid.
Seijðisff. Erysipeloid í fingrum gerði talsvert vart við sig í slátur-
tíðinni (6 tilfelli). Viðhafði ég bakstra með 1% rivanolupplausn,
og reyndist það ágætlega.
Norðff. 8 tilfelli í ág.—okt., flest af að sýsla við slátur. Mér reyndist
kvillinn yfirleitt þrálátur, og vill krómsýran enga yfirburði sýna hér.
Reyðarff. Allmörg tilfelli í sláturtíðinni, sum þrálát.
Eyrarbakka. 3 sjúklingar síðastliðið haust eins og áður á þeim
tínia árs.
Keflavíkur. 3 tilfelli í sláturtíðinni.
8. Granuloma.
Reyðarff. Sjást nokkur á hverju hausti í sláturtiðinni, einkum á
þeim, er fást við að saga horn af hausum og hrufla sig. I janúar-
mánuði kom til mín bóndi með stórt granulom á vinstri augabrún.
Var hann að leiða hrút út úr húsi, en rak sig á dyrastaf og skeind-
ist á augabrún. Þreif hann hendi upp í andlitið og þurrkaði af sér
blóðið. Litlu síðar var komið granulom í skeinuna,