Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Page 71
69
tilfelli. Fæðin gar gengu óvenjulega erfiðlega þetta ár, sóttin oft
injög dauf og afkastalítil og pituitrín brást stundum alveg, þótt ný-
legt væri. Allt gekk þetta nú slysalaust á endanum. Hraustleg kona
á bezta aldri fa'ddi í annað sinn, sitjandi fyrir, vatnið farið, lélegar
eu sárar hviður, og ekkert gekk. Pituitrin reynt tvisvar eða þrisvar
án þess að örfa hríðar nema rétt í svip, og' ekkert gekk, hjartsláttur
barnsins dofnaði, reyndi töng á sitjandann, en þá losnaði hann ujiji,
lór þá inn með hönd, náði í fót, og þá gekk allt vel. Lítil kona með
tvíbura gafst alveg upp, gat ekki fætt með nokkru móti, þreyta og
miklar stöðugar þrautir. Ég varð að taka fyrra barnið með töng og
bitt með vendingu strax á eftir, því að seinna barnið var mjög líf-
lilið, en raknaði þó við og fékk cardiazol og því um líkt. í 2 önnur
skipti varð ég að taka börn með töngum.
Olnfsvíkur. Einstaka menn virðast hafa áhuga á takmörkun barn-
eigna með notkun lyfja til fyrirbyggingar getnaði.
Dala. 5 sinnum vitjað til sængurkvenna. Tilefnið oftast lítið. 1
tvíburafæðing, framdráttur á seinna barni. Konu og börnum heils-
aðist vel. Ljósmóðir Skarðsstrandarhrepps getur í skýrslu sinni um
eitt fósturlát. Abortus provocatus enginn svo að vitað sé, en tvisvar
hefir verið farið fram á slíkt við mig á árinu.
Flateyjar. Læknir sóttur tvisvar til fæðingarhjálpar. Önnur konan
primipara, 26 ára. Lítils háttar grindarþrengsli og hypodynamia,
Engin fósturlát. Aldrei gerður abortus provocatus. Enn þá er fólk
liér illa að sér um það, hvernig takmarka megi barneignir. Þó á
það sér stað, að notuð séu varnargögn (kondom, patentex). Er
það mín hyggja, að meira mætti að því gera. Barnkoma er nægileg
samt og þá helzt þar sein sízt skyldi.
Flateyrar. Mér er ekki kunnugt um neitt fósturlát á árinu, og eng-
inn hefir farið fram á fóstureyðingu. Aftur á móti hafa inargir leitað
i'áða hjá mér viðvíkjandi takmörkunum á barneignum. 6 sinnum
á árinu vitjað til konu í barnsnauð. Oftast var tilefni lítið, en einu
sinni þurfti ég þó að taka barn með töng vegna adynamia og grindar-
þrengsla, og' einu sinni varð að gera vendingu og framdrátt á seinni
tvíbura vegna hríðaleysis. í kona fékk phlegmasia alba dolens. Lá
2 mánuði í heimahúsum og batnaði.
ísafj. Sectio caesarea var gerð þrisvar á árinu, tvisvar vegna pelv.
eontract. og einu sinni vegna placenta ])raevia. Konum og börnum
heilsaðist vel. Tang'arfæðing var gerð þrisvar — einu sinni vegna
öjúprar þverstöðu höfuðs.
Ogur. Öllum konum og börnum heilsaðist vel. Engin fósturlát. Það
ber við, að konur, margra barna mæður, biðja um fóstureyðingu, en
eigi hefir fundizt nægileg ástæða til að gefa því gauin. Nokkrar
honur hafa leitað ráða um varnir gegn því að verða barnshafandi.
Hesteyrar. Læknis vitjað einu sinni. Multipara, atonia uteri, sitj-
nndastaða. Náð í fót og gerður framdráttur. Móður og barni heils-
aðist vel.
Hólmavikur. Læknis vitjað 9 sinnum til fæðinga, sem allar gengu
^iysalaust. 1 kona fékk eclampsia. Dró mikið úr köstunum með því
eð hálfsvæfa konúna strax í byrjun kastanna (með chlorof. aether.),