Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Síða 75
73
á sótt eða deyfa í lok fæðingar. Engin töng á árinu. Lögin um fóstur-
eyðingar hafa létt manni afgreiðslu þeirra kvenna, sem koma í
þeim erindum. Þegar konum er skýrt frá þvi, að slíkt fáist gert, ef
gildar ástæður séu fyrir hendi að dómi þeirra, er um það fjalla, en
annars ekki, er erindinu venjulega lokið. Fósturlát er mér kunnugt
Um 2 á áxúnu. Abortus provocatus eng'inn. Varnarlyf gegn getnaði
eru töluvert notuð, einkum spermex og patentex, en þykja dýr í
notkun.
Beruff. 5 sinnurn vitjað til sængurkvenna, auk einnar, sem fæddi
í sjúkrastofu Iæknisbústaðarins, var lögð þar inn við blæðingu
vegna placenta praevia. Hjá 4 hinna var sóttleysi eða ég sóttur til
þess að deyfa. Hjá 1 var fóstrið dáið fyrir fáum dögum og sótt léleg.
Tókst að koma af stað sæmilegri sótt, en fæðing gekk illa (fram-
höfuðstaða). Þegar ég var búinn að vera sólarhring hjá konunni,
fékk hvín háan hita, og var þá gerð perforatio og framdráttur með
töng', og' loks varð að sækja og losa fylgjuna xneð hendi. Konan fékk
skjálftakast að lokinni aðgerðinni og yfir 40° hita. Var henni gefið
omnadín og prontosíl, og batnaði henni bæði fljótt og vel.
Hornafj. 7 sinnum var ég við fæðingar. Einu sinni allhá og erfið
töng við framhöfuðstöðix. Mikil ruptur. Við hinar fæðingarnar var
aðeins um að ræða deyfingu og tvisvar pituitrín. 1 kona fékk phleg-
masia alb. dol. Ekki vissi ég um fósturlát á árinxx, og aldrei var
ég beðinn um fóstureyðingu né leitað ráða hjá mér um conceptions-
varnir.
Síðu. Þrisvar sóttur til sængurkvenna. Tvisvar laus fylgja, sem
var innilokuð af samdráttuxn í leghálsi. I eitt skipti þurfti að herða
á sótt. 1 sængurkona fékk pxxrulent xnastitis. Engin barnsfararsótt.
Engir abortar, sem mér er kunnugt um, en annars munu Ijósmæður
oft gleyma að geta þeirra.
Mýrdals. Plac. accreta. Mors. Þrátt fyrir Credé, inj. per umbilic.
og pituitrín losnaði plac. ekki. Var þá sótt með hendi, placenta mikið
gróin. Virtist ganga vel að losa hana, góðir samdrættir, engin eftir-
blæðing. Hiti frá 2. degi vaxandi og' mors. Konan hafði áður átt
14 börn, hjartabiluð og heilsuveil.
Vestmannaeyja. Fóstri lét 19 ára, ógift stúlka, sexn hafði einu
sinni áður misst fóstur. Ó1 5—6 mánaða fóstur andvana. Hafði það
legið dautt í móðurkviðnum að minnsta kosti % mánuð. 4 önnur
fósturlát. Barn, sem fæddist vanskapað, var andvana, og svo mjög
vanskapað, að ekki var unnt að greina kyn (samvaxið).
Eijrarbakka. Vitjað alls 14 sinnum til sængurkvenna. Allar konur
óska nú orðið eftir deyfingu, og aulc þess virðist mér kjarkur yfir-
setukvenna vel flestra ekki vera nema í meðallagi. í eitt skipti var
um tvíburafæðingu hjá fjölbyrju að ræða. Fyrri burðurinn var í
livirfilstöðu, en hjá hinum síðari bar sitjanda að. Þann burð dró ég
fram á fæti. Spangarsprungur, ofast þó smávægilegar, verða hjá
% sængurlcvenna. Alltaf hjá frumbyrjum. Auk þeirra fósturláta,
sem skýrslur Ijósmæðra greina frá, var ég við 2 fósturlát, þar sem
engin Ijósmóðir var viðstödd. Er því vitað um 6 fósturlát alls í hér-
aðinu. Alltaf ber það við öðru hverju, að stúlkur, og stundum giftar
10