Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Blaðsíða 92
90
Læknar Iáta þessa getið:
Skipaskaga. Sú breyting varð á árinu á þessum málum, að skyldu-
trygg'ing var ákveðin með samþykkt og stofnað Sjúkrasamlag Akra-
ness. Hjúkrunarfélagið var lagt niður, og sjúkrasamlag það, sem
fyrir var, rann inn í hið nýja samlag. Samningar þess við læknana
eru í aðalatriðum þeir, að sjúklingar hafa frjálsar hendur um læknis-
vitjanir, en samlagið greiðir eftir gjaldskrá héraðslækna 15%.
Það hefir ráðið hjúkrunarkonu. Samlagið tók til starfa 1. okt.
Ólafsvikur. Hjúkrunarfélag Ólafsvíkur starfar sem að undanförnu
að hjúkrun sjúkra og veitir fátækum sjúklingum fjárhagslegan
stuðning. Fyrir atbeina þess var hafin lýsisgjöf hér við barnaskólann.
Kvenfélag starfar á Hellissandi og veitir sjúkum hjálp eins og að
undanförnu.
Patreksfj. Röntgenstofan: Gegnlýsingar alls 75. Ljóslækningastofan:
Sjúklingar alls 96. Hjúkrunarfélagið Hjálp hefir stúlku í þjónustu
sinni með föstu mánaðarkaupi, kr. 70 pr. mánuð. Stúlkan er til að-
stoðar með fastri dvöl á heimilum, þar sem veikindi eru. Þeir, sem
þessa aðstoð þiggja, greiða félaginu kr. 1,50 pr. dag fyrir aðstoðina,
þeir, sein eiga hægt með, en oftast er félaginu ekkert greitt. Á þessu
ári veitti félagið aðstoð við að kaupa sjúkrastól fyrir lamaðan sjúk-
ling, og borgaði það úr sjóði sínum þá upphæð, sem ekki fékkst
cndurgreidd af opinberu fé. Á árinu lagði félagið kr. 300,00 í barna-
heimilissjóð í tilefni af 10 ára starfsemi sinni. Félagið nýtur einskis
opinbers styrks, en aflar sér tekna með skemmtunum og veitinga-
sölu við einstök tækifæri og árgjöldum félaga.
Flateyrar. Eins og' síðastliðið ár starfrækti Minningarsjóður Maríu
Össurardóttur Ijóslækningatæki (kvarz- og solluxlampa) hér á Flat-
eyri þelta ár. Alls notuðu 12 sjúklingar ljósin á árinu. Á Suðureyri
var haldið uppi sólböðum að sumrinu, þegar því varð við komið.
Notað var eins og áður sólbyrgi, sem er sunnan við samkomuhús
kaupstaðarins. Þátttakendur voru alls 31, þar af 5 fullorðnir.
Blönduós. Sjúkrasamlag fyrir almenning er hér ekkert og enginn
áhugi fyrir stofnun þess, en nemendur og starfsfólk Kvennaskólans
hafa með sér samlag á þann hátt, að ég er ráðinn húslæknir skólans,
og geldur hver heimilismaður 2—3 krónur á ári fyrir læknishjálp í
þessu skyni, en skólasjóður leggur afganginn fram. Er þetta náms-
meyjunum hagkvæmt, ekki sízt þeim, sem þurfa að láta hreinsa úr
sér tennurnar, en þær eru alltaf nokkrar árlega.
Svarfdæla. Til er hér gamalt Berklavarnarfélag Svarfdæla, stofnað
upp lir Svarfdæladeild Heilsuhælisfélagsins, með 80—90 meðlimum
nú og nokkrum sjóði. Tilgangur aðallega að styrkja til ferða og
fatakaupa fátæka berklasjúklinga, sem verjast vilja því að þiggja
af sveit. Engar styrkveitingar né önnur starfsemi á þessu ári.
Akureyrar. í bænum starfar eitt sjúkrasamlag, og er meðlimatala
þess nú 2937, og má því heita, að flestallir tryggingarskyldir bæjar-
búar séu þegar komnir í samlagið, enda virðist samlagið nú vera
mun vinsælla en raun bar vilni um árið áður. Lyfjanotkun sam-
lagsmanna hefir verið jafn óhóflega mikil á þessu ári og árið áður,
og' hefir því samlagsstjórn fallizt á að gera þannig lagaðan samning