Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1938, Side 97
95
Þrifnaður í kauptúnunum hefir tekið sjáanlegum breytinguni til
kóta, síðan tekin var upp almenn hreinsunarvika á vorin með með-
lylgjandi húsvitjun heilbrigðisnefndar. Hefi ég tekið þátt í þessari
húsvitjun einnig á Skagaströnd, og þó að enn sé pottur brotinn í
þessu efni, þá cr hann þó að minnsta kosti spengdur. Einna til-
l’innanlegasta vöntunin í þessu efni er það, að salerni eru við fá hús,
einkum á Skagaströnd, en illa gengur að ráða bót á þessu vegna
tilkostnaðarins.
Sauðúrkróks. Stöku bændur byggja ný steinhús hjá sér, en þau
eru lélegar húsabætur að því er hollustusemi snertir. Fæst munu
þau vera laus við raka, þó að álitlegri séu til að sjá. Loftræsting og
upphitun ófullkomin. Á Sauðárkróki eru kjallaraíbúðir algengar. Eru
þær flestar hin ómögulegustu húsakynni.
Ólafsfí. Húsakynni á 7 bæjum í sveitinni má segja að séu fyrir
neðan allar hellur. 1 steinhús var reist í stað bæjar, sem brann. I
kauptúninu var ekkert hús reist. Yfirleitt má segja, að þrifnaði utan
húss sé mjög ábóta vant.
Höfðahverfis. Litið um nýbyggingar þetta ár. Húsakynni hér í
Grýtubakkahreppi eru að verða sæmileg. Á 3 kirkjusjóðsjörðum hér
í hreppi er mjög illa hýst, en það mun standa fyrir dyrum að byggja
upp á þeim. Þrifnaður mun á flestum bæjum vera góður. Salerni
eru mjög óvíða, fljósin eru notuð í þeirra stað viða, að minnsta
kosti á sumrin.
Reykdæla. Flestir búa í góðum bæjum. Steinhús voru byggð nokkur
í ár, og næstu undanfarin ár hefir þeim fjölgað svo, að nú búa
flestir i steinhúsum. Þrifnaður í góðu lagi.
Öxarfj. Að minnsta kosti 8 ný íbúðarhús voru byggð á árinu, þar
að auki ýmis einhýsi, hlöður, fjárhús o. s. frv., þá og nýleg hús
löguð (vatnsveita, bað, salerni) og byggðar geymslur við þau sums
staðar. Enn fremur 1 harnaskóli, 1 kennarbústaður og 1 samkomu-
hús við Öxarfjarðarskóla — við það fær hann leikfimissal. Þrifnaður
nærri alls staðar góður innan húss, og er á síðari árum í mikilli
framför utan húss. Á Raufarhöfn og jafnvel Kópaskeri er þó utan-
hússþrifnaður hágborinn.
Vopnafj. í sveitinni byggð 2 íbúðarhús úr steinsteypu fyrir lán úr
Byggingar- og landnámssjóði. Að þriðja húsinu — nýbýli — var
steyptur kjallari. Um húsakynni í héraðinu er annars það að segja,
að þau eru víða mjög Iéleg og' á stöku stað öldungis óhæf til ibúðar.
Fátækt og skuldabasl bænda stendur hér í vegi og gerir erfitt fyrir.
Sinn verulega þátt í þessu ástandi á einnig rótgróinn trassaskapur
og skeytingarleysi um allt, sem að viðhaldi lýtur. Allt er látið drasla
og drabbast niður eftir því, sem atvikin og veðuráttan vilja vera
láta. Til framfara má það telja, að salernum hefir mikið fjölgað
liér síðustu árin, síðan farið var að styrkja verulega áburðargeymslur
og safnþrær. Eru salernin flest yfir safngryfjunum og tæmast beint
1 þær.
Hróarstungu. 5 ný steinhús byggð á árinu. Eru þau með mið-
stöðvar- og vatnsleiðslum. Er það einkurn fyrir fé úr Byggingar- og
landnámssjóði, sem byggt er. 1 nýbýli er þó þar á meðal. Vatns-