Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Page 155
— 153 —
1967
slíkar tilhneigingar eða tilburði áður og ekki grunaður eða kærður um
þær. Ekki þyrfti að leggja neitt teljandi upp úr því, að hann er lang-
dvölum á afgreiðslu vörubifreiðastöðvarinnar, þegar unglingar sækja
þangað til sælgætis- og gosdrykkjakaupa. Er þess að gæta, að G. er
vinafár, á heimili með öldruðum foreldrum og virðist sjálfur andlega
nijög vanþroska og því ekki óeðlilegt, að hann leiti niður fyrir sinn
aldur eftir félagsskap á sinn fátæklega hátt. Auk þess er þetta að
nokkru leyti hans vinnustaður.
Ekkert sérstakt er líkamlega athugavert við G., hann er meðalmað-
ur á hæð, heldur luralegur og feitur, en hraustlegur að öðru leyti.
I viðtali kemur G. heldur fákænlega fyrir. Hann er áttaður á stað og
stund, ekki haldinn neinum ranghugmyndum eða ofskynjunum. Hann
virðist heldur innhverfur og er nokkuð afundinn eins og hálffúll eða öllu
fremur eins og stúrinn krakki. Hann gerir illa grein fyrir sér, minni
hans er óskýrt, hann er lengi að hugsa sig um, frásögn hans er slitrótt
°g treg, skilningurinn takmarkaður.
Þar sem vandi G. virðist fyrst og fremst vera í tilfinningasamskiptum
við aðra og greindarskortur, eru gerð á honum nokkur sálfræðileg próf
«1 þess að varpa frekara ljósi á persónugerð hans ( .......... sál-
fræðingur).
Við athugun með greindarprófi Wechslers er frammistaða hans mjög
Jéleg, en fremur jöfn, ekki áberandi misræmi í einstökum þáttum.
Þykir það benda til þess, að það greindarstig, sem mælist hjá honum,
s® raunverulegt. Reikningur er sýnu lakastur, en þættir eins og minni,
orðaforði og skilningur litlu betri. Einna skást er almenn þekking, sem
bendir til, að vel hafi verið hugsað um G. í uppvexti, hann ekki verið
utanveltu eða útundan á heimilinu. Greindarvísitala fyrir prófið í
heild er 67, þ. e. ekki meira en meðalgreinds barns 8—9 ára gamals.
G. er því vangefinn eða á mörkum þess.
Önnur próf, sem fyrir hann eru lögð, staðfesta þetta. Persónuleika-
Próf benda til þess, að G. kunni að vera heldur innhverfur, dulur og
omannblendinn, þ. e. a. s. sennilega heldur rólegur og afskiptalítill og
veyndar ekki sérlega líklegur til áleitni við aðra að fyrra bragði. Eðli-
leg afleiðing af þessu ætti að vera, að ef áleitni kæmi fram á annað
oorð, væru líkur til þess, að það kæmi fram á mjög frumstæðan hátt og
Vjð mun yngri einstaklinga, sem væru nær hans eigin þroskastigi, og
filfinningasamskipti frumstæð og yfirborðsleg.
I stuttu máli er um að ræða 29 ára gamlan vörubílstjóra á ... .,
ö- B-son, sem aliim er upp í foreldrahúsum, hefur barnaskólagöngu
Vlð lítinn orðstír og einn bekk í gagnfræðaskóla við engan. Að lokinni
skólagöngu vinnur hann alla venjulega vinnu til sjós og lands. Ekki
ier orð af erfiðleikum í samskiptum við annað fólk, á heimili, í skóla
eða á vinnustöðum. Hann er í foreldrahúsum fram á þennan dag nema
eitt ár 1963—64, að hann var kvæntur, en það samband slitnaði fyrir
20