Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Blaðsíða 25
FJARÐARFRÉTTIR
25
að mörgu leyti. Við höfum ekki
persónulega reynslu af öðrum
deildum en það virðist t.d. sem að í
félagsvísindadeild sé mikið um
verkefnavinnu sem skilar sér oft vel
með tilliti til námsins og mætti vera
meira um slíkt. í lögfræðinni er
kennslan öll í formi fyrirlestra en í
viðskiptafræðinni eru bókfærslu
og reikningsdæmi, sem eru mjög
gagnleg.
Finnst ykkur þið hafa fengið
nœgilegan undirbúning í Flensborg
fyrir háskólanám?
Það má segja að 16 ára unglingar
hafi í flestum tilfellum ekki gert
upp hug sinn varðandi hvað þeir
vilja leggja fyrir sig, velja e.t.v. þá
braut sem þeim sýnist léttust, upp-
götva síðan þegar í H.í. er komið að
undirbúningi er ekki nægilega vel
háttað t.d. stærðfræðikunnátta
ekki nægileg. Félagsfræði, sálfræði
og slíkar greinar ættu frekar að vera
til kynningar en sem undirstaða.
Það ætti að leggja mun meiri
áherslu á raungreinar og mála-
kennslu. Við höfum heyrt frá fólki
sem við þekkjum í t.d. félagsfræði,
að áfangar í þeim greinum í Flens-
borg hafi skilað þeim sáralitlu.
Einnig mætti leggja meiri áherslu á
betri vinnubrögð en maður þarf
stórlega að bæta sín vinnubrögð
milli stofnana. Þetta á auðvitað við
um það skólamynstur sem fólk
kemur úr og á e.t.v. ekki frekar við
um Flensborg en aðra framhalds-
skóla, sjálfsagt ekki.
Hver er ástœðan fyrr því að þið
sœkið nám í H.I.?
Ætli það sé ekki til að bæta
möguleika sína sem einstaklingur í
þessu þjóðfélagi. Þá einnig mennt-
un menntunarinnar vegna, þ.e. að
þroska sig. Framtíðar þjóðfélag
hlýtur að byggja á menntuðu fólki
og þá ekki endilega háskólamennt-
uðu heldur vel verkmenntuðu fólki.
Maður sér það í nágrannalöndun-
um að það er ekki menntað fólk
sem gengur um atvinnulaust heldur
þeir sem enga menntun hafa, nema
e.t.v. í Danmörku þar sem dæmi eru
um að allt of margir hafa menntast
til sömu greinar.
Er erfitt fjárhagslega að stunda
þetta nám?
Við erum heppin að því leyti að
við höfum húsnæði okkur að
kostnaðarlausu hér hjá foreldrum
sem styðja okkur einnig á annan
hátt, t.d. varðandi pössun. Með því
að vinna langan vinnudag yfir
sumarmánuðina, leggja fyrir og lifa
spart þá er þetta hægt. Við höfum
ekki leitað til Lánasjóðsins en
verðum líklega að gera það eftir
áramót. Strætó-styrkurinn kemur
sér vel enda dýrt að fara á milli. En
talandi um þennan styrk þá er það
auðvitað rangt að styrkja mennta-
skólanema til náms í Reykjavík.
Frekar væri að nota þá peninga til
tækjakaupa fyrir Flensborgarskóla
og búa betur að honum. En hvort
þetta nám skilar sér fjárhagslega,
þá gerist það sennilega á endanum.
Viðskiptafræðin er líklega með
praktískari fögum í háskólanum
auk læknisfræðinnar og raun-
greina. Hins vegar má segja að með
því að fara t.d. í eitthvert iðnnám og
fyrr út á vinnumarkaðinn, þá eru
menn síst ver settir með tilliti til
hefðbundinna lífsgæða. En þá
kemur á móti að lengra nám býður
upp á fjölbreyttari atvinnutæki-
færi.
GCeðifefj jóCí
FarsæCt riycLrí
Pökkurtt viðskiptin á órinu sem er að Cíða.
OPIÐ kl. 8 - 18
Símsvari á kvöldin
og um helgar
Sendibílastöé
Hafnarfjarðar
i
1111
Gleðileg jól
með jólairéfiú
Hjúbarsveit sföta í
Hajnaíjirði
Hjálparstarf okkar fjármögn-
um við með árlegri jólatrés-
sölu. Allur ágóði rennur
óskiptur til Hjálparsveitarinnar.
Jólatréssala okkar hefur alltaf verið
vinsæl og við höfum ávallt boðið upp
á góð og falleg jólatré. Svo er einnig í
ár, því öll okkar tré eru nýfelld og
standa þess vegna lengur.
Normannsþinur: 100 - 250 cm. Barr-
heldið.
Omorica: I50 - 250 cm. Barrheldið.
Skógarfura: 150 - 250 cm. Barrheldið.
Rauðgreni: 70 - 250 cm. Þétt og fallegt.
Greinar: Cypris, fura, normannsþinur
og nobilis.
Við geymum trén og sendum þau
heim, ykkur að kostnaðarlausu.
Opið mánudaga - föstudaga kl. 14 - 22. Laugardaga og sunnudaga kl. 10 - 22.
JOLATRESSALA
HJÁLPARSVEITAR SKÁTA
HRAUNBRÚN 57
HAFNARFIRÐI, S.53111, 53674